Fréttablaðið - 28.03.2011, Síða 43
MÁNUDAGUR 28. mars 2011 27
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
41
98
0
3/
11
*Gildir út mars 2011.
15%
afsláttur *
af öllum stærðum af
Nicorette Fruitmint.
Dæmi: 2 mg, 210 stk.
Áður: 4.975 kr. Nú: 4.229kr.
Lægra
verð
í Lyfju
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
7
4
1
INGVAR HELGASON og B&L • Sævarhöfða 2, sími 525 8000
www.isuzu.is
* Kynningartilboðið gildir aðeins í takmarkaðan tíma eða meðan birgðir endast. Aukalega á mynd: stærri dekk og gangbretti.
KYNNUM NÝJAN
OG BREYTTAN D-MAX
Í Isuzu D-Max eru þægindi og
öryggi hluti af heildinni. Ökumaður
hefur góða yfirsýn yfir skýrt mælaborð
og allir takkar og stjórnhlutir eru í
þægilegri fjarlægð. Sjálfskiptingin er mjúk
og lipur og rafstýrðir stjórntakkar fyrir fjórhjóladrif
eru á hentugum stað í mælaborði.
HESTAKERRUR FELLIHÝSI
HJÓLHÝSI BÁTAKERRUR
5.99O.ooo kr.VERÐ:
Kynningarpakki: PallhÚS FYLGIR MEÐ!*
HÖRKUTÓL!
D-Max státar af mestri dráttargetu
í sínum flokki pallbíla
HANDBOLTI Fram vann magnaðan
sigur gegn Haukum í gær á Ásvöll-
um í 19. umferð N1-deildar karla,
en leiknum lauk með 34-22 sigri
Safamýrarpilta.
Framarar eru greinilega búnir
að hrista af sér slenið í N1-deild
karla því þeir fylgdu eftir góðum
sigri á Selfossi á fimmtudags-
kvöldið með því fara á kostum á
Ásvöllum í gær.
Framarar hófu leikinn af mikl-
um krafti og náðu fljótlega góðu
forskoti sem þeir héldu út leikinn.
Haukar sáu aldrei til sólar og voru
hreinlega skelfilegir á öllum svið-
um. Einar Rafn Eiðsson, leikmað-
ur Fram, var atkvæðamestur hjá
gestunum með átta mörk. Birkir
Ívar Guðmundsson, markvörður
Haukar, átti í raun fínan leik en
hann varði 18 skot.
„Þetta var bara afhöfðun með
öllu,“ sagði Einar Örn Jónsson,
leikmaður Hauka, eftir leikinn í
gær.
„Það er sama hvar litið er á
okkar leik, það var allt í rusli.
Varnarleikur okkar var hræðileg-
ur og ekkert gekk upp hjá okkur
sóknarlega.“
„Þetta var mun auðveldara en
ég bjóst við,“ sagði Jóhann Gunnar
Einarsson, leikmaður Fram, eftir
sigurinn í gær.
„Við náðum góðu áhlaupi á þá í
byrjun leiks og aldrei þessu vant
héldum við forskotinu. Bæði þessi
lið erum að berjast um að komast
í úrslitakeppnina og því eru þetta
algjörlega fáránleg úrslit. Það
voru allir að leggja sitt af mörk-
um í dag og menn virtust geta
leyst hvaða hlutverk sem er,“ sagði
Jóhann Gunnar sáttur eftir leikinn
í gær. - sáp
Framarar völtuðu yfir Hauka á Ásvöllum í gær:
Tólf marka Framsigur
JÓHANN GUNNAR EINARSSON Lék vel í gær en hér hefur Freyr Brynjarsson náð taki á
boltanum og kannski aðeins meiru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Keflavík komst í gær í
úrslitaeinvígið um Íslandsmeist-
aratitilinn eftir sigur, 70-62, gegn
KR í DHL-höllinni, en þær unnu
því einvígið 3-1.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn
mjög vel og náðu fljótlega ákveðnu
frumkvæði í leiknum. Heimastúlk-
ur komu þá til baka og virtust ætla
ná yfirhöndinni í leiknum en
Keflavík var aldrei langt undan.
Í fjórða leikhlutanum kom virki-
lega öflugt Keflavíkur lið til
leiks en þær gáfu KR-stúlkum
aldrei færi á að komast inn í leik-
inn. Keflavík er því í úrslitum og
mætir þar annað hvort Njarðvík
eða Hamarsstúlkum.
„Við ætluðum okkur í úrslit og
því erum við í toppmálum,“ sagði
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari
Keflavíkur, eftir sigurinn í gær. .
„Þetta var hörkuleikur þar sem
tvö frábær lið mættust en þegar
upp er staðið var það fjórði leik-
hlutinn sem skilaði okkur þessum
sigri. Liðið er skipað gríðarlega
reyndum leikmönnum sem hafa
spilað milljón svona leiki og það
hjálpar mikið í svona leik. Ég er
með stórkostlegt lið í höndum og
það frábært að sigra þær á þeirra
eigin heimavelli,“ sagði Jón Hall-
dór.
„Þetta er alveg hræðilega sárt,“
sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari
KR, eftir leikinn í gær.
„Ég tek stelpurnar aðeins inn á
mig og þegar þeim líður illa líður
mér illa. Þegar upp er staðið þá
komum við bara ekki með nóg
í þetta einvígi. Við vorum með
ákveðin tök á þessum leik alveg
fram í fjórða leikhluta en þá fórum
við að gera of mikið af mistökum,“
sagði Hrafn að lokum. - sáp
Keflavíkurkonur komust í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á KR:
Með stórkostlegt lið í höndunum
LISA KARCIC Keflavík hefur unnið báða
leiki sína með hana innanborðs. Hér er
hún í leiknum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN