Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1918, Síða 2

Sameiningin - 01.10.1918, Síða 2
226 fyrir dyrum er veturinn kaldur og- grimmur, og margur kvíðir honum. 0g samt æða menn áfram, andvaralausir og vondir. Það virðist jafnvel, að margir verði verri menn og grimmari, gálausari og syndugri, á þessum tryltu tímum. Ófriður og ósamlyndi er manna milli. Leiðtogar lýðsins troða illsakir iivor við annan. Tortrygni og rógur spilla félagslífi. Æskulýðurinn eltir munað og sýkist af ósið- semi. Syndabikarinn er barmafullur. Þó stendur enn yfir náðartími. Enn er kostur að snúa af brautum lastanna og fá fyrirgefningu hjá Guði. Til þess er og dagur þessarar miklu reiði kominn, að menn bæti ráð sitt og leiti hjálpræðis hjá Guði. Hver sá, er áfram heldur andvaralaus í syndum sínum, þrátt fyrir aövörun ]>á, sem nú er öllum gefin með viðburðum þeim, er nú verða, eiga vísa reiði Guðs og réttláta hegningu. “Ef eg þá tíð, sem Guð mér gaf, gálaust forsóma næði, Drottins tími þá tekur af tvímælin öll í bræði. ’ ’ Hafi Guð af náð sinni hlíft oss og látið liörmungarn- ar fara fram hjá oss, þá erum vér hinum aumari, ef vér ekki látum það einnig knýja oss til iðrunar synda vorra og afturhvarfs. Vér erum allir brotlegir og verðskuldum einbera hegning- En faðmur Jesú stendur oss opinn. Hann er vinur vor, sem annara syndara. Allir megum vér verða blóðs hans og' benja aðnjótandi. Hver sem ekki hefir soninn, liefir ekki kærleika föðursins, heldur vofir reiði Guðs yfir honum. En það stoðar ekki að látast snúa sértilJesú. Það þarf að vera í alvöru gert. Og það gerir enginn í alvöru nema svo, að hann bæti líferni sitt, snúi af vegum lasta sinna og gangi liinn þrönga veg réttlætis- ins. Þú, sem les þessi orð, það ert þú, sem átt er við, þú, sem beðinn ert í Guðs nafni að bæta ráð þitt. Ber þú nú á sjálfs þín brjóst og bið þú: “Guð vertu mér syndugum líknsamur.” Að öðrum kosti mun dagur reiðinnar vissu- lega koma yfir þig. Trúfasti Jesús, miskunna þú oss!

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.