Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1918, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.10.1918, Qupperneq 15
239 Það ])nrf að vakna í trúnni á Jesúm Krist til heilags lífernis. Það þarf að reka hræsnina úr kirkjunni. Og það má ekki hrekjast láta fyrir hverjum kenning- arvindi. Synd og náð — eins og í passíusálmunum, eins og í guðspjöllunum! Við setning AVþingis, 2. Sept. 1918, prédilcun eftir dr. theol. Jón Helga- son, biskup. Prédikun þessi er 16 bls. bæklingur og hefir liöf. góð- fúslega sent oss eitt eint. Texti ræðunnar er styzti sálm- urinn í sálmabók ísraelsþjóðar, Sálm. Dav. 117: “Lofið Drottin, all'ar þjóðir, vegsamið hann allir lýðir, því að miskunn hans er voldug yfir oss og trúfesti Drottins varir að eilífu. Halelúja ” Hér fylgir stuttur en fagur kafli úr ræðunni: “Og' þetta sama lofgerSar- og þakkarefni er þá ekki síSur gefiS þér, mín eigin elskaöa þjóö, en öðrum kristnum þjóöum. Svo fyrir- ferð'arsmá, lítil og ilágvaxin sem þú ert í fylking heimsins þjóða, hefir þú engu 'síöur en þær fengiö aö reyna trúfesti Guös og miskunn þér til handa í ríkum mæli. Ljós kærleiks opinberunar Guðs í Kristi Jesú hefir lýst þér um senn þúsund ár og börn þin getað vermst af ylgeisl- um guðlegrar föðurelsku í margháttuðum hretv'iörum lífsins og hugg- ast við fyrirheit náðarinnar á ótal situndum mæðu og mótlætis, sem þau hiafa ilifað. En einnig í öðru tilliti hefir miskunn Guös og trúfesti margfald- lega opinberast oss, sem þetta land byggjum, öld eftir öld. Þegar eg renni augunum yfir þjóðsögu vora frá elztu tíð til vorra daga, bæði á upphefðartímum hennar og niðurlægingar, fyllir það hjarta mitt undrun og aðdáun hve dásamlega hluiti Dröttinn hefir gert fyrir þjóð mína á skeiðhlaupi hennar, hversu Drottins miskunn og trúfesti er þar áþreifanleg á öllum tímabilum sögunnar, og handleiðsla Drottins bersýnileg við hv'ert fótmál, sem þjóðin steig. I’egar eg hugsa til þess, sem hún hefir orðið að líða af völdum óhæfilegs stjórnarfars, inannlegs dáðleysis og óviðráðaniegra náttúruafla, — þegar eg hugleiði hver9U drepsóttir, eldgos og óáran, harðrétti og hungur hafa krept að henni á ýmsum tímum, þá finst mér tilvera hinnar íslenzku þjóðar íram á þennan dag vera eitt af furðuverkum forsjónarinnar, jafnframt því, sem það er eitt af undrum veraldarsögunnar. ■ Að jafn fámenn- þjóð skuli hafa staðist alla þá storma, sem buldu á húsi hennar, komist lifandi út úr þeim margvislegu eldraunum, sem urðu hlutskifti hennar,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.