Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1918, Síða 7

Sameiningin - 01.10.1918, Síða 7
231 En þá ríður á því, að allir séu víðsýnir, stórhuga og nm fram alt — sanngjarnir. Frá upphafi vega hefir kirkjufélagið kappkostað að flytja með sér inn í hérlenda þjóðfélagið sem allra mest af gæðum þeim, sem vér höfum erft frá feðrum vornm. Kirkjufélagið hefir verið sterkasta taugin, sem tengt hefir fortíð og nútíð. Sú aðstaða þess er að öllu leyti óbreytt enn, og verður vonandi aldrei breytt, enda þótt framþróunin þjóðernislega krefjist nýrra starfs-aðferða. Oss dylst það ekki, og mú ekki dyljast það, að fyrir það, að fæðast í þessu landi, eða fyrir það, að hafa unnið liinn dýra borgara-eið og fyrir það orðið aðnjótandi barnarétt- ins, erum vér, — líkami og sál, — hérlendir menn, Amer- íkumenn — vér undanskiljum ekki sálina þá vér sverjum oss í samfélag við hérlenda þjóð. Að gefa hönd, en ekki hjarta, er jafn glæpsamlegt gagnvart fósturjörð sem fest- armey. En þar fyrir er ekkert því til fyrirstöðu, frá þjóðernislegu sjónarmiði, heldur alt sem til þess knýr, að varðveita og f-lytja ávalt með sér mál og menning þess lands, sem feður manns eru komnir frá. Auðvitað verður tunga þessa lands tung’a barna vorra; eins og þeirra sál er hérlend sál. En samt er ])að skylda vor gagnvart þeim að kenna þeim alt, er vér getum af fræðum feðra vorra og fá þau til að læra tungu forfeðra sinna — varðveita tengslin við fortíðina. Menningar-gildi íslenzkrar tungu og íslenzkra bókmenta á umfram alt að kenna öllum náms- mönnum að meta. Kirkjufélagið hefir leitast við eftir mætti að varð- veita tengslin við fortíðina íslenzku. A síðustu fimm árum hefir það kostað liingað vestur frá íslandi og til um- ferðar um söfnuði sína þrjá þjóðkunna menn: séra Fr. Friðriksson, dr. Guðm. Finnbogason og cand. S. A. G ísla- son. Með ærnum tilkostnaði hefir það ráðist í að koma upp skóla og starfrækt liann nú á sjötta ár. Auðvitað er aðal-augnamið skólans að veita æskulýð vorum kristilegt og kirkjulegt uppeldi og leiða hann til mannkyns frelsar- ans Jesú Krists og vekja upp menn til kristidóms-starfs í söfnuðum vorum. En af öllu kappi er af því unnið í skólanum, að veita nemendum þekking á íslenzkum fræð-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.