Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1919, Page 7

Sameiningin - 01.04.1919, Page 7
37 býli; væri ekki svo, mmidi eg þá bafa sagt yður, að eg fari burt til að búa yður stað ? ’ ’ Hér er liinn dýrlegasti búningur orðsins mn eilíft líf: Föðurhús liinmn anegin; ekki er í kaldan eða dimman lieim að hverfa, heldur til föðurhúsa; ákveðinn staður, ekki ráp né sveim um dular- geim óvissrar tilveru; og viðtökur og samfundir hinum megin, “Eg mun taka yður ti!l mín, til þess að þér séuð og þar sem eg er”. Dásamlegt er þetta orð frelsarans: “Yæri ekki svo, myndi eg þá hafa sagt vður, að eg færi burt til að búa yður stað?” Með þessum orðum segir hann við sálu mannsins: Óttast ekki, meðsköpuð þrá þín er sönn, það er líf hinum megin grafarinnar, og ef þú vilt trúa mér til þess, þá skal eg búa þér stað hjá sjálfum mér heima í húsum míns himneska föður. Hann þekti von og þrá mannshjartans og fullvissar oss um, að alt muni rætast, alt. sem vér ihöfum vonað og þráð og beðið Guð að full- vissa oss um. Hann segir sama sem: Efcki vildi eg að þér gerðuð yður neinar tálvonir, eða ímynduðuð vður það, sem ekki er; eg hefði sagt yður það hreinskilnislega ef spádómar hjartans ættu ekki að rætast. Þegar vér minnumst þess, að Jesús talaði á þessa leið á sjálfri skilnaðar-stundinni, þá verður umsögn hans mn þetta efni jafnvel enniþá helgari. Hvorki kvíð- inn fyrir kvala-krossinum, sem beið hans, né tilhlökkunin til heimkomunnar í föðurhúsin, aftraði honum frá því að taka fylsta tillit til þeirra, sem fléttað höfðu líf sitt við haun, og fulivissa þá um, að alt væri gott, aldrei skyldu þeir devja og í rauninni aldrei skilja. Eða hugsum vér til frelsaraus á þessari stundu, sem þess, sem stóð í sjálfs vor sporum og átti fyrir höndum sömu rauu og. vér, en ineð meiri útsýni andans og reynsluiþekking á föðurhúsunum himnesku? Mér finst vér hafa rétt til þess, að liugsa oss Guð-manninn eins og sjálfa oss, að því leyti sem hann “ sampíndist veikleika vorum”. Hann unni jarðnesku lífi og öllum dásamleg- um margbreytileik tilverunnar hér, fuglunum, btómunum, náttúrudýrðinni og samfélagi við menn — eins og vér. Hann vafði allan heiminn að hjarta sér: hæðirnar, þar sem hann lék sér lítill drengur, bernskuheimilið sitt og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.