Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 15
45 Þar sem kappræður og deilur um viss trúaratriði liafa raskað friði kirkju vorrar að meira eða minna leyti, þá teljum vér oss 'bæði ljúft og skylt að lýsa -afstöðu vorri við eftirfylgjandi Kenningar: 1. Um Krist, endurlausn harís og sáttargjörð. Jesús Kristur, Guð og Maður, hefir, eigi aðeins mönnunum til lieill'a, h'eldur og í mannanna stað, tekið upp á sig syndir heimsins með réttmætri hegning 'þeirra. 1 heimsins stað og heiminum til heilla hefir hann með heilögu l'ífi sínu fullnægt lögmálinu, og með þjáningum sínum og dauða, með blóði sínu, lagt fram sektarfórn fyrir allan heim, og komið mönnunum í sætt við þríeinan Guð; en reiði Drottins er lcomin yfir alt mannkynið fit af syndinni, og réttiæti lians krafðist fullnægingar. 2. Um fagnaðarerindið. Fagnaðarerindið er ekki aðeins saga, frásögn um það, sem Jesús gjörði, heldur býður það fram og gefur ávöxtinn af verki Krists — sér- staklega fyrirgefningu syndanna. Það gefur mönnum jafnvel máttinn til að þiggja gjafirnar, sem það býður. 3. Um aflausnina. í sjálfu sér er enginn munur á afiausninni og fvrirgefning þeirri, sem fagnaðarerindið býður. Eina skilgreiningin er sú, að aflausnin heimfærir syndafyrirgefninguna beint til þess einstaklings sem þráir huggun fagnaðarerindisins. Hún er ekki dómsúr- skurður kennimannsins, um að þeir, sem aflausnarorðin eru töluð til, hafi öðlast fyrirgefning. 4. Um shírnina og Guðs orð. Endurfæðingin er verk heilags anda, er hann vinnur með skírninni og Guðs orði. Hvorttveggja er því með réttu kallað endurfæð- ingarmeðal. 5. Um réttlœtinguna. Réttlætingin er ekki verkn- aður í manninum, heldur verk Guðs á ihimni, er hann iýsir þann mann réttlátan, sem iðrast og trúir, eða lætur silíkan iðrandi syndara skoðast sem réttlátan mann, með því að tileinka honum réttlæti Krists fyrir trúna. 6. Um trúna. Trúin er ekki að neinu leyti komin undir mannlegri orku. Hún er verk mannsins aðeins í þeim skilningi, að það er maðurinn, sem trúir. En bæði

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.