Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 26
56 götunum í Reykjaví-k þar sem Úlfur fer fullur, syngjandi og hróp- andi, þar til hann lendir í handalögmál, sleppur þó í þaö sinn, en síðar kemst hann í “Steininn” fyrir dryklkjuskap og áflog. Sagan sýnir þá kvöl, sem syndir hins unga og gerfilega manns, baka sálunum göfugu, sem elska hann, föSurnum og unnustunni, — þótt skríllinn hafi gaman af. Hún sýnir aö kærleikurinn er þó voldugri en alt. Og að því leyti endar sagan vel, þó þau séra- Ljótur og Margrét sitji grátandi úti í Viðey og hafi horft úr landi á Úlf fara í sjóinn í ofveðrinu mikla, þegar tjaldið fell.ur. Það er mikil list og mikill skáldskapur í sögu þessari og lesin mun hún af mörgum með samihygð við “Varginn í véum,” og með aðdáun að séra Ljóti, — en því velur höf. svo f'ógrum manni svo Ijótt nafn? Það var sagt um Charles Dickens, að það væri í Sjálfu sér list. hve nöfnin væru viðeigandi, er hann gaf mönnum og konum í sög- um sínum, svo að af nafninu einu mætti það þegar ráða, hvern mann hver persóna geymdi. ]þá list hefir Gunnar Gunnarsson víst ekki tamið sér, því nöfnin eru oft óviðeigandi. Og nú er allur flokkurinn — sögurnar fjórar af Borgarættinni, eftir Gunnar Gunnarsson — kominn út á íslenzku, og er það með stærri viðburðum í bókmentasögu íslands, slíkt snildarverk sem þar er. Séra J. A. O. Stub, sonur dr. Stub, formanns norsku kirkjunn- ar í Ameriku, hefir meðan á stríðinu stóð gefið sig algjörlega við stanfi í þarfir hermannanna. En niú er hann kvaddur af kirkju sinni til þess að stofna al-enskan söfnuð í miðri Minneapolis-borg, er nefnast s'kal Central Lutheran Church. Leiðtogarnir i þeirri kirkju gera sér grein fyrir, að ekki dugar að loka augunum fyrir því, að ajlur þorri af ungu fólki í stórborgunum hefir ekki gagn af guðs- þjónustu á neinu öðru máli en ensku. Og iþeir sjá eflaust aö engin ræktarsemi við það, sem norskt er, kemur fram í því að tapa fólki út úr kirkjunni vegna þess það hefir ekki not af norsku. — Hvenær skyldi verða tekið eftir því, að eins horfir við hjá oss lúterskum íslendingum á ýmsum stöðum? Annað hvort verðum vér að taka það til greina og hegða oss eftir því, eða eins fer fyrir oss og öðrum, sem blindir eru í þessu tilliti. Unga fólikið tapast, án þess íslenzku þjóðerni sé með því unnið nokkurt gagn.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.