Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 27
57
Missouri-sýnodan lúterska er um þessar mundir aö safna þremur
miljónum dollars í sjóð til styrktar gömlum og heilsubiluöum prest-
um og þurfandi prestsekkjum. Gangast leikmenn einir fyrir þessu,
og ái máli'S upptök sín hjá þeim. Vilja þeir þannig tryggja öllum
prestum kirkjufélags sins nauSsynlegan ellistyrk og ekkjum þeirra
lífeyri ef þeirra missir viS. Mæla þeir fyrir þessu sem réttlætis-
kröfu, en ekki sem ölrnusu. Ekki er talinn neinn vafi á þvi, aö upp-
hæöin fáist, og telur þó kirkjufélag þetta ekki fulla þrjá fjóröu
úr miljón fermdra meölima.
Meþódista-kirkjan í Ameriku á von á góöum gesti innan skamms.
Er það frú Lois Lee Parker, sem í sextiu og eitt ár er búin aö
starfa sem trúlboði á Indlandi. Hún kemur til aö vera viöstödd á
fimtíu ára afmælishátíö trúboösfélags kvenna í Meþódista kirkjunni.
ETún var ein af stofnendum' þess félags, |þá á ferö í Ameríku, eftir
éllefu ára starf á Indlandi. Kona þessi er ekkja Parkers bis'kups,
sem látin er fyrir skömmu. Hefir hún unniö mikiö og fagurt verk
; þarfir indverskra kvenna, stofnaö kristilega skóla þeim til afnota,
og yfirleitt veriö brautryöjandi í trúboösstarfinu. Ósegjanlega
mörgum einstaklingum hefir hún verið til blessunar meö starfi sínu,
og eftir þvi sem árin líöa veröa það fleiri og fleiri, sem njóta árang-
urs af starfi hennar. Hún ætlar til baka til Indlands eftir stutta
dvöl hér og starfa þar áfram meðan dagur endist.
Lúterska kirkjan í Bandaríkjunum setti sér þaö markmiö aö
safna hálfri miljón dollars til viöreisnar og liknarstarfs í Norður-
álfunni. jþví takmarki hefir verið meir en náð, en ekki eru komnar
nákvæmar skýrslur enn um hve mikið hefir safnast.
Lúterski söfnuöurinn í bænum Stanley í Wisconsin-riki lagði
til fast að hundraö manns í her Bandaríkjanna í stríöinu nýafstaðna.
Þó margir þeirra lentu í orustum, komust þeir þó allir lífs af.
Söfnuöurinn ætlar aö byggja sjúkrahús í þakklætisskyni, fyrir aö
hafa fengið menn sína aftur heila á húfi.
Síðustu skýrslur sýna að nú séu í lútersku kirkjunni í Ameríku
9,923 prestar, 14,830 söfnuðir og 2,443,812 fermdir meðlimir. I
þessum skýrslum eru einungis þeir taldir, sem formlega tilheyra
söfnuðum. Tala fermdra meðlima hefir aukist um 17,211.
Erkibiskupinn í Sviþjóð hefir í hyggju að heimsækja á komandi
sumri ýmsa söfnuöi í útlöndum. Ferö hans er heitið til Lundúna-
borgar, Parisar, Berlínar og Kristjaníu, en á öllum þessum stöövum
eru sænskir söfnuöir.
Eftir skýrslum í amerískum blöðum var því nær átta miljón
krónum varið fyrir áfengi í Svíþjóö áriö 1917, en áriö 1918 tólf
miljónum. Sé rétt farið meö, er þar sannarlega þörf á kristilegri
bindindisstarfsemi.
Þann 17. Janúar síöastl voru liöin fimtíu ár síðan stofnaður