Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1919, Síða 31

Sameiningin - 01.04.1919, Síða 31
61 starf í Shiusfayn-héraSi. Takashima sagöi þeim aS hann skyldi grenslast eftir manni fyrir þá, og láta þá svo vita bréflega um árangurinn. þ>egar hann var aö fara frá þeim, sögSu þeir honum, aö hann væri rnaSurinn, sem þeir vildu fá. En hann haföi þá ekki veriö við\ hiö óháöa trúboösstarf sitt nema tvo mánuöi, og var því ófús til aö þiggja boö þeirra, af því aö honum fanst aö með því væri hann að bregðast því málefni, er hann hefði aö sér tekiö og afsala sér frelsinu, sem því fylgdi. En eftir nokkrar fortölur af þeirra hálfu lét hann loks til leiðast aö lofa þeim því, aö hann skyldi hlýta úrskurði “forstöðumannsins” í Tokio í því máli. Annar út- lendinganna var trúiboöi innan hins júterska trúboös Einna, og hann vildi fá Takashima fyrir aöstoöarmann sinn. 1 Desember 1911 fékk Takáshima svo köllun írá trúboði Einna til aö vera tungumálakennari og aðstoðarmaður. Hann tók þeirri köllun, og fluttist fyrir árslokin með fjölskyldu sína til þorps er nefnist Tida; en það var gagnstætt þvi sem venja var í Japan, þvá þar ríkir sú hjátrú, aö þaö viti ekki á gott að flytja sig búferlum rétt fyrir áramótin. Þarna starfaði hann þangað tij árið 1914, og það tímabil telur hann sér hafa verið' þarft námsskeið og til styfkingar í trúnni, því trúboðinn, sem haföi þar umsjón, veitti honum mikla aöstoð í því að eignast ljósari skilning á sannindum ritningarinnar. Samt sem áður var hann ekki með ölíu búinn að vinna bug á hinni gömlu tilhneigingu sinni til að vilja vera “óháður”; og þegar trúboðsfélagið bauö honum að gjörast r-eglulegur trúboði sinn, baöst hann undan því. En trú- boðarnir lögðu fast að honum aö hætta viö þessa sérvizku, svo aö hann lét loks undan ög var skipaður trúboði í Shimosuwa; þar átti hann aö annast einn um starfið, en trúboðinn, sem hafði umboö með því trúboði, átti að koma til hans viö og viö. Meðan hann dvaldi þar, varð sálarheill verksmiðjustúlkna honum aftur mikið áhugamál, því hann veitti því eftirtekt, aö það voru mestmegnis verksmiöju- stúlkur, sem sóttu kvöldguösþjónustur hans. Hann fór þá að leggja sig eftír því sérstaklega, aö hjálpa þeim, og annað árið, sem hann dvaldi þar, tók hann að gefa út mánaðarrit, sem hann nefndi “Verk- smiðju-ljósið”, og þaö tímarit gefur hann enn út. Hugsið ykkur, að það eru yfir 70,000 stújkur, sem vinna í verksmiðjum í þeim bæ einum! (í Nagoya-borg er^áætlað að séu 17,000 verksmiðjurj. Vegna striðsins varö mjög örðugt að koma peningum frá Finn- landi til Japan, og af þeirri ástæðu neyddist trúlboð Finna til þess aö minka mjög starfsemi sína. Og með Iþví aö okkur vantaöi þá trúboða í Nagoya JMr. Chiga, sem áður hafði verið þar prestur, haföi verið fluttur til trúboðsstöðvar okkar í Hakata á Kyushu- eyju), buðu bræðurnir finsku okkur einn sinna manna. Við kölluð- um þá Takaslhima, og snemma í Septembermánuði síðastliðnum flutt- ist hann hingað til Nagoya meö fjölskyldu sína, til þess að starfa með okkur. Þau hjónin eiga 5 börn fyngsta barnið, drengur, fædd- ist í þessari viku, 24. Fébrúar), og yngsta systir hans er líka hjá þeim; foréldrar hans, sem bæði eru öldruð, flytja sig líklega líka hingað, til þess að vera hjá honum. f

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.