Sameiningin - 01.09.1921, Page 16
272
Skýrsla trúboðans
Séra S. O. Thorlákssonar, í Nagoya, Japan.*)
Þetta er hin fyrsta opinbera skýrsla, er eg gef SameinuSu
lútersku kirkjunnar í Ameríku, um starfið á Nagoya trúboös-
stöðinni. Ber því aö gefa hér alment yfirlit um ástæSur og aöal
drætti starfsins, sem veriö er að vinna í Aichi-fylkinu**ý í Jap-
an fyrir yöar hönd og í nafni Drottins vors.
Starfiö á Nagoya stööinni felur í sér trúboösverkið í sjálfri
borginni og tænum Chiku'sa. Sem stendur er einnig starfaö i
sveit út frá borginni áleiðis til fjallaþorpisns Asuker, sem er
30 mílur noröaustur frá Nagoya. Síðan í fyrrahaust hefir, auk
þess, trúboðsstarf verið rekið héðan i Toyohashi og umhverfi
þess bæjar.
Nagoya, Chicago Japansmanna, er hafnarborg með 500,000
íbúum, 250 mílur vestur af Tokyo, New York Japansmanna, og
125 mílur norðvestur af Osaka-Kobe éTvíbura-borgirnar).
Nagoya er iðnaðarbær mikill og miöstöð víötækra verzlun-
arviðskifta. Aðal iðnaðurinn er postulínsgerð, leirkerasmíöi,
silki og baðmullar varningur, “cloisonne”- og “lacquer”-munir,
leikföng og hljóðfæri.
Nagoya er og miðstöð mentalífs, með háskóla fyrir lækna,
sem er einn af átta skólum þeirrar tegundar í ríkinu, iðnskóla, og
ýmsum miðskólum bæði fyrir pilta -og stúlkur, er aldrei stunda
nám saman.
■Auk trúboðsins lúterska er öflugt trúboðsstarf rekið af
fjórum öðrum kirkjudeildum í borginni.
Chikusa er bær með 16,000 íbúum. Er sá bær rétt austur af
Nagoya. Þar eru mörg vefnaðar verkstæði, fangahús fylkisins,
miðskóli Búddatrúarmanna fyrir drengi, og utarlega í bænum
nýr æðri verzlunarskóli. |Trúboð vort er hiö eina starfandi í
þessum bæ.
í sveit þeirri, er nefnd var, eru 15 bændáþorp með hartnær
20,000 ífcúum. Naumast er nauðsynlegt að taka það fram, að
ekki er unt að vinna það trúboðsverk, sem hér þyrfti að vinna,
*) Grein þessi er þýðing á skýrslu þeirri, er trúboðinn Islenzki
sendi heiðing-jatrúboSsnefnd Sameinuðu lútersku kirkjunnar í Ameríku,
er hefir aðal-umsjón með starfi hans. Skýrslan kom I maí I vor og
var lesin á kirkjuþing-inu að Lundar, Man. —N. S. Th.
**j Aieh mætti þýða annað hvort að “elska þekkinguna”, eða að
“þekkja kærleikann.”