Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1922, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.10.1922, Blaðsíða 1
ameiningm. Mánaðarrit til stuðninc/s kirkju og kristindómi íslsndinga gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi XXXVII. árg. WINNIPEG, OKTÓ'BER, 1922 Nr. 10 Persóna Jesú Krists. Erindi flutt á prestafundi kirkjufélags Vestur-íslendinga á Gitnli i()22. Eftir séra Adam Þorgrímsson.. Mér hefir veriö úthlutaS því kæra en vandasama hlutverki, aö flytja hér stutt erindi urn persónu Jesú Krists frá trúfræöi- legu sjónarmiöi. — Málefnið er mjög yfirgripsmikiö, og má taka þaö frá fleiri en einni hlið. Persóna Jesú hefir verið viðfangsefni kristinnar guöfræði á öllum öldum. Menn hafa reynt aö gera sér grein fyrir per- sónueðli mannkynsfrelsarans og skýra með röksemdum, hvern- ig hann er meðalgangari Guðs fööur og mannkynsins.—Þessar skýringar eru tilraunir mannanna til þess að fullnægja skyn- seminni, og móta trú sína í heilsteypt heimspekikerfi. En sá þáttur trúarinnar, sem byggist á heimspeki, er breytingum undir orpinn. Menn hugsa ekki allir á sama veg og ekki eins á öllum tímum, jafnvel þótt rökfræöin sé ávalt hin sama i eðli sínu. Þær skýringar á persónueðli Jesú, sem nú eru alment viður- kendar, voru geröar á þeim tíma, þegar heimspekin var á öðru stigi en hún er nú. Það er þess vegna ekki óeðlilegt, þott skýringarnar kynni að breytast, þó að trúin á Jesúm breytist ekki Sumir geta felt sig við skýringarnar, og sumir ekki, og allur fjöldi manna skilur ekkert í heimspekilegum skýringum um persónu Jesú; en margir þeirra, sem ekki skilja þær, trúa á Jesúm, sem Guðs son, með enn meira sannfæringarafli en ýmsir þeir guðfræðingar, sem finst að þeir geti gert sér grein fyrir eðli persónunnar með skynsenú sinni. — Með þessu er ekki sagt, aö skýringarnar séu ónauðsynlegar. Þær eru ágætur stuðningur hugsun þeirra manna. sem hneigðir eru til þess að hugsa uni persónuna frá heimspekilegu sjónarmiöi. \ ið meg-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.