Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1922, Qupperneq 2

Sameiningin - 01.10.1922, Qupperneq 2
290 um að eins ,ekki gleyma því, að slíkar trúfræðilegar (kiogmatic) skýringar eru umbúðir trúarinnar, en ekki kjarni hennar. Per- sóna Jesú er stærri en svo, að skilningur okkar geti gert sér hana ljósa, eða skilið, hvernig hún er tengd Guði og mannkyni. Við skiljum ekki einu sinni okkar eigin litlu persónu, eða hvernig hún er í sambandi við Guð og við aðra menn, ef við treystum á rökfræðina eina saman. Þegar við viljum skygnast inn í leyndardóma Guðs, þá verðum við að rjúfa fortjald hinn- ar köldu skynsemi og nálgast náðarsól guðlegrar opinberunar. Persóna Jesú, eins og hún birtist í orðum hans og verkum í guðspjöllunum, er sú opinberun, sem enginn getur hrundið með neinum rökum. “Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir'k hver.nig svo sem mannleg rökfræði og heimsseki taka stakkaskiftum, og hvernig sem við þrætum um persónu- eðli hans. Jesús stendur í hug og hjarta hvers einasta manns, sem les guðspjöllin með óbrjálaðri hugsun, sem einstæð persóna, dýrleg, máttug og elskuverð. Hinn lifandi Kristur guðspjall- anna er sú hin guðlega opinberun, sem hrindir kaldri skynsemi af stóli, og neyðir jafnvel hinn ákveðnasta trúníðing til þess að falla á kné á móti vilja sínum. Frá hvaða sjónarmiði, sem menn líta á persónu Jesú, hlýtur hún að yfirstíga mannlegan skilning, þ.e.a.s., menn geta ekki gert sér grein fyrir henni á náttúrlegan hátt, því að hennar finst hvergi neinn líki. Þeir, sem ekki vilja viðurkenna yfirnáttúrlegt eðli Jesú, verða að vefengja guðspjöllin; þess vegna hefir hin neikvæða “hærri krítik” gert sinar ítrustu tilraunir til þess að hnekkja áreiðanleik guðspjallanna. En árangurinn af biblíurannsókn- unurn hefir orðið sá, að sögulegt gildi guðspjallanna hefir verið viðurkent, í aðal atriðunum, af öllum málsmetandi mönnum, sem við rannsóknir hafa fengist, frá báðum hliðum. Hið eina, sem bygt verður á til þess að hnekkja skoðunum kirkjunnar um yfirnáttúrlegt eðli Jesú, er þess vegna vantrúin, þ.e.a.s. neitun að samþykkja hið yfirnáttúrlega í guðspjöllunum, á þeim grund- velli, að það komi í bága við eðlilegan gang náttúrunnar, eins og við þekkjum hann, og sé þvi óvísindalegt og ósannanlegt. — En það er eftirtektarvert, að þeir, sem vefengja guðspjöllin, að því leyti sem þau skýra frá hinu yfirnáttúrlega, byggja samt sem áður á áreiðanleik ritanna í öðrum atriðum. En það sýnir ekki góða dómgreind. Ef hið yfirnáttúrlega, sem skýrt er frá í guðspjöllunum, er óáreiðanlegt, þá er ekki vísindalegt, að byggja á öðrum atriðum sömu rita (nema þau atriði styðjist við önnur rit, sem talin eru ábyggileg). — Við höfum engar viður-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.