Sameiningin - 01.10.1922, Síða 5
293
sem eru ánægSir meö gang lífsins, eins og hann kemur þeim
fyrir sjónir. Erum viS ánægSir meö ósamlyndi, hræsni, lygi og
ótrúmensku í allskonar myndum, sem viS sjáum hér um bil
hvar sem við lítum í kringum okkur? Erum við ánægSir með
að sjá glæpi framda, og þjófnað, rán, morð, ófriö—stríð, sem
kosta líf miljóna manna og .leiða af sér hina hörmulegustu
eymd? Erum viS ánægðir með það aS vita, aS við sjálfir höf-
um ástríðu til þess að gera það, sem í raun og veru er andstyggi-
legt í augum sjálfra okkar, já, vitum, ef til vill, aS viS höfum
gert þaS? Nei, við erum ekki ánægðir með heiminn, ekki á-
nægSir með okkur sjálfa. En hvaS sættir okkur viS lífiS ? Og
hvaS heldur okkur frá því aS sökkva dýpra og dýpra í þessa
spillingu, sem okkur hryllir við? HvaSa ljós lýsir þetta hræði-
lega myrkur?
Er nokkur efi um þaS í huga nokkurs manns, aS það er
Jesús, og kenningar hans, sem sætta okkur viS lifiS, aS það er
dýrðarljóminn frá honum, sem lýsir myrkrið í mannlífinu?
Jesús sagði líka sjálfur: “Eg er lj'ós heimsins; hver sem fylgir
mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós lifsins”
fjóh. 8, 12).
í Jesú Kristi sjáum viS þaS, sem er gagnstætt ranglætinu,
og gagnstætt öllu hinu illa og ljóta í mannlífinu. í honum sjá-
um viS persónu, sem aldrei gerir neitt ljótt, sem aldrei segir
neitt, sem sé ósatt eSa óviðeigandi. Jesús hjálpar öllum, sér-
staklega þeim, sem lítilmótlegastir eru og bágast eiga. Jesús ver
lífi sínu til þess að kenna niönnunum aS þekkja sannleikann, og
elska GuS og menn; og hann telur ekki líf sitt of dýrmætt til
að fórna því fyrir vini sína og óvini. Jesús ávítar alt óréttlæti,
alla grimd, allan hefndarhug, alla hræsni, i einu orði, alt þaS.
sem ljótt er og auvirðilegt í fari mannanna. — Við sjáum engan
blett á lífi Jesú.i ViS sjáum i honum þaS fullkomnasta og
bezta, sem okkur getur dreymt um. Og þess vegna hrífur hann
okkur á vald sitt; viS trúum honum, og höldum okkur við hann,
og kenningu hans, eins og akkeri,.til þess aS vonzka heimsins
hreki okkur ekki út á haf örvæntingarinnar. Miskunarleysi
eigingirninnar og samkepninnar verður eins og að engu, þegar
við lítum til Jesú, því aS viS vitum, aS í kærleika hans finnum
við sannleikann æðsta, hvað hátt sem hatriö gnæfir, hvað langt
sem ilskan leiSir hugi mannanna.
AS þesu leyti er Jesús okkur fyrirmynd og hugsjónatak-
mark. Annars vegar í huga okkar er hatriS og siSspillingin, en
hins vegar elska Jesú, sem alt sigrar. Og viS lítum til Jesú og