Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1922, Page 8

Sameiningin - 01.10.1922, Page 8
296 manna, sem geta fundiö til, og sem þekkja Jesúm, laðast að honum og trúa honum. Þegar við kynnumst Jesú, þá finnum við ósjálfrátt, að hann er Guðs sonur, því að það bezta, sem bærist í brjóstum okkar, er í samræmi við kenningar hans. Ritningin segir, að maðurinn hafi verið skapaður í Guðs mynd. Við höfum fallið í synd og saurgað guðsmyndina i okkur; en samt finnum viö, þegar Jesús birtist okkur, að hann samsvarar guðsmyndinni upprunalegu. Og sælir eru þeir, sem trúa á Guðs-soninn, því að þá skirist aftur guðsmyndin, sem þeir bera inst í sál sinni, og þeir komast í samfélag við Guð. Þessi er dómur sögulegra heimilda og dómur mannlegrar tilfinningar: Jesús er Kristur, sonur hins lifanda Guðs. •— Hann hefir sannað það, með því að lifa heilögu lífi; hann hefir sannað það, með því að fullnægja hjarta tnannsins með lifi sínu og kenningu. Hann hefir sannað það með upprisu sinni, og með áhrifum sínum í sögu mannkynsins. Nýjar Bœkur. i. 7'rúmálavika Stúde'ntafélagsins: Brindi og Umrœöur. Eins og áður hefir verið getið um í “Sam.”, þá gekst Stú- dentafélagið í Reykjavík fyrir fundahöldum um trúmál dagana 13.—18. marz síðastL Vakti “trúmálavika” þessi mikla eftir- tekt og hefir verið um hana rætt og ritað. Nú er komin út bók með erindum þeim, er flutt voru á fundunum og umræðum, sem út af þeim spunnust. Er bókin einkar skemtileg og verður að sjálfsögðu lesin með áhuga af mörgum. Fyrst í bókinni er stutt erindi um aðdraganda og upphaf trúmálafundanna eftir hr. Vilhj. Þ. Gíslason, formann Stúdenta- félagsins Koma þá hver af öðrum fimm fyrirlestrar, um sina trúmálastefnuna hver: 1. 'Nútíma trúfræðin, eftir prófessor' Sig. Sívertsen; 2. K.E.U.M., saga þess, starf og stefna, eftir séra Eriðrik Eriðriksson; 3: Stefnuskrá Guðspekifélagsins, eftir séra Jakob Kristinnsson; 4. Afstaða Sálarrannsóknarfélagsins við kirkjuna, eftir prófessor Harald Nielsson; og 5. Kristur og kirkjan, eftir .séra Bjarna Jónsson. Þar á eftir koma umræð- urnar um fyrirlestrana, og tóku þátt í þeim þeir, er nú skal greina: Vilhj. Þ. Gíslason, form. Stúdentafél.; Jakob Krist- innsson, prestur; Sig. Kristófer Pétursson, rithöfundur; Einar

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.