Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1922, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.10.1922, Blaðsíða 17
305 7- Ýmislegt úr kirkjultfi 'Norðmanna. Eftir præp. hon. Sigurö Gunnarsson. Er þetta stuttur útdráttur úr skýrslum norsku biskupanna. Hjálpar meö ööru til aö gera ritiö fjöl- breytt. 8. Þarft erindi Um starfsrœkslu kirkjugarða, eftir Felix Guðmundsson, úmsjónarmann kirkjugarösins í Reykjaviki Margt af því á erindi til vor hér vestra, því fjarri fer þvi, aö kirkjugarðar séu alment hirtir eins og vera ber. 9. Fágœt biskupsingsla. 10. Frumkristni þjóðar vorrar, eftir dr. theol. Jón Helga- son tiskup. Er þetta ágætt erindi, sem ætlaö er til alþýöu- fræöslu. Er þaö til fyrirmyndar í því efni. 11. Áskorun frá séra Eiríki Albertssyni um aö prestafé- lagiö helzt gefi út Alþýðlcgar biblíuskýringar. ,12. Kirkjan og frjálsar skoðanir um trú og siðgœði Þýtt úr dönsku af præp. hon. Siguröi Gunnarssyni. 13. Sigitr og hnignun Múhameðstrúarinnar, eftir Áge Meyer Benedctsen, flutt á prestastefnunni í Reykjavík 1921. Hér i islenzkri þýöing. Fróölegt erindi og uppbyggilegt. 14. og 15. Hvorttveggja eftir prófessor Harald Níelsson. Fyrst prédikun: l'cgar hjörtun taka að brenna, svo ritgerö: Sálarrannsóknirnar og kirkjan A Englandi. Séra Haraldur er oröinn svo vel kunnur sem prédikari, aö óþarfi er aö lýsa hon- um. Hann talar af áhuga og sannfæringu, og meö krafti lif- andi mælsku. Þessi prédikun lians er gott sýnishorn af stól- ræöum hans, sem komið hafa út á prenti. Hér gætir ekki mjög andatrúar hans, en jx) nokkuö, Hver kristinn maöur getur haft mikla uppbyggingu af prédikun þessari, eins og líka af fjölda af ræöum hans, en athugulum mönnum nnvn oft finnast biblíuskýringar hans nokkuð fjarstæöukendar, þegar hann vill lesa andatrúarfyrirbrigöi nútímans inn i nýja testamentið. — Ritgeröin síöari segir frá framgangi andatrúarinnar innan ensku kirkjunnar, og er óbeint áskorun til íslenzku kirkjunnar aö snúast eins viö þessari hreyfingu. Síöan það var skrifað, hefir biskup íslands komiö mjög eindregiö og ákveöið fram gegn andatrúnni. Bendir hann á bók gegn Spiritismanum eftir Martensen-Larsen, danskan rithöfund og fræöimann. i ritsjá þeirri, er birtist í þessu sanva liefti Prestafélagsritsins. Er i þeirri bók nveöal annars beinlínis tekin fyrir afstaöa séra Har-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.