Sameiningin - 01.10.1922, Side 18
306
aldar í þessu máli. — Enginn má ætla, að allir andatrúarmenn
klæöi boðskap sinn í gerfi kristindómsins. Þaðan koma líka
raddir, sem andæfa sögulegum kristindómi ákveöið.
16. Erlendar bœkur sendar til umsagnar. Er þar ítarleg-
ur ritdómur um kirkjusögu Jóns biskups Helgasonar, og bók
Arne Möller Hallgrímur Pétursson Passionssalmer. Er , það
doktorsritgerS viS háskólann í Kaupimannahöfn, 'isamin af
dönskum presti, sem þó er víst íslenzkur i móSurætt, því rit-
gerSin er tileinkuS “föðurlandi móður minnar". “Af öllu, sem
ritaS hefir veriS um Hallgrím, er þetta hiS lang veigamesta og
ítarlegasta,” segir Dr. J. H. í ritdóminum. ■— Svo eru ýmsir
smærri ritdómar um ýmsar bækur, danskar, norskar og sænskar.
17. og 18. Prestafélagið (útdráttur úr fundarbók) eftir
dócent Magnús Jónsson, og Reikningur Prestafélagsins 1921.
Af ummælum um PrestafélagiS vekur þaS einkum eftirtekt,
aS sagt er, aS PrestafélagiS sem slíkt, gefi sig ekki viS trúmálum.
VerSur þetta efalaust aS skiljast öSruvisi, en orSanna hljóSan
bendir til.
Fjárhagur félagsins var í góðu lagi viS lok síSasta árs.
iNærri þúsund krónur í sjóSi. K.K.Ó.
Samkomulags tilraunir.
Eins og kunnugt er, fór fram um kirkjuþingsleyti í sumar
samtal milli erindsreka kirkjufélagsins og prests og fulltrúa
safnaSa, sem utan viS kirkjufélagiS standa. VarS þaS mál ekki
þá til lykta leitt, en nýrri nefnd af kirkjufélagsins hálfu var
faliS aS hafa máliS áfram til meSferSar. í nefnd þeirri eru:
séra Guttormur Guttormsson, séra Kristinn K. Óilafsson, séra
Siguröur Ólafsson, séra Friðrik Hallgrímsson, dr. B.. J. Brand-
son, hr. Gunnar B. Björnsson 0g Björn B. Jónsson. Nefndin
hélt fund um mánaSamótin næstsíSustu. Vill hún aS almenning-
nr safnaSanna fái aS vita alt um gerSir sínar, og lætur því birta
bréf þaS, er hún reit til embættismanna utanfélags-safnaðanna
og hér fer á eftir:
Til skrifara N N safnaðar.
Kœri herra!
Á síðasta kirkjuþingi var kosin nefnd, til að hafa með hönd-
um málið um samkomulag við söfnuði, er standa utan við'