Sameiningin - 01.10.1922, Side 24
312
minn, fullur áhuga fyrir aö prédika orðið. Hann starfaði í Tovo-
hashi í sumar sem leið, og hefir nú sent inn beiðni til prófnefndar-
innar að fá að verða skipaður fastur prédikari.
I Asuke, fjailstað okkar, hafa tveir verið skírðir. Nokkrir eru
þar og, er leita og beðið hafa um fræðslu. Þegar hópur trúaðra
vex í þessu þorpi, verður að sjá þeim fyrir fastri þjónustu af manni
þar búsettum. A svæðinu milli Nagoya og Asuke, sem er um 30
mílur, eru 15 þorp eða fleiri, nær því ósnert. Þrátt fyrir okkar
Ford hefir ekki verið vinnandi vegur að gera annað úti á lands-
bygðunum, en ofurlítið sáningsverk.
Auk stöðva þeirra, sem nú hefir verið minst, mætti nefna ýms
þorp, þar sem við höfum kynst fólki og trúboðsverki ætti að vera
hrundið áfram og trúuðum safnað saman og sönfuðir myndaðir.
En bæði hefir skort tíma og verkamenn. Nú fyrir skömmu komu
30 ungir menn i þorpi einu við aðal-járnbrautina milli Nagoya og
Toyohashi og báðu þess, að sér væri veitt föst kensla í kristin-
dómi, en enginn vegur hefir verið til þess enn, að verða við beiðni
þeirra. Fyrir fáum dögum kom hópur bankaþjóna hér í borginní
og báðu um kenslu í biblíunni á hverri viku. Þarna kom tæki-
færi, sem við höfum verið að bíða eftir 4 síðustu árin.
Hér í annari eins borg og Nagoya, er þörf á öðrum lúterskum
trúboðshjónum, að minsta kosti, og nokkrum kventrúboðum, ef til
mála á að koma að gera byrjun til þess að keppa við tæki færin,
sem bera að höndum. Samherjar í trúboðsstarfinu hér í fylkinu,
tilheyrandi öðrum kirkjum, verða varir sömu áhrifa anda Drott-
ins og við. Og þykjumst við sjá, að fyrir höndum er uppskera, er
neyta þarf allrar orku til að hirða. 1 hvívetna, og hvað mikið sem
við leggjum á okkur, þá erum við sífelt látin til þess finna, hve fáir
verkamennirnir eru og fátæklegur útbúnaðurinn.
Nagoya, Japan, i janúarmánuði 1922.
Virðingarfylst,
S. O. Thorlaksson.
Sunnudagsskóla-lexíur.
Deild þessa anuast séra G. Guttormsson.
5. LBXÍA :—Jesús tólf ára—Lúk. 2, 40—52.
MINNISTEXTI: Og Jesús þroskaðist a'ð visku og vexti og
náð hjá Guði og mönnunt—Lúk. 2, 25.
í sambandi við lexíuna ætti að lesa sögurnar um Símeon og
Önnu fLúk. 2, 22-39), um vitringana frá Austurlöndum, barna-
morðið og flóttann til Egyptalands ('Matt. 2. kap.).
Guðspjöllin flytja éngar sagnir af uppvaxtarárum Jesú Krists.
nema þessa einu frásögn Lúkasar, sem fyrir liggur í textanum. En
þessi stutta saga nægir til að sýna okkur, að æska frelsarans var