Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1922, Page 25

Sameiningin - 01.10.1922, Page 25
313 heilög og hrein, og að hann gaf öllum börnum fyrirmynd til ai5 breyta eftir. “Sveinnihn óx og styrktist, fullur vizku, og náö Guös var yfir honum,” segir Lúkas. 1 þessu var Jesús fyrirmynd allra barna. Hvert er hiö sérstaka hlutverk æskunnar? Aö þroskast, andlega og líkamlega. En þroskinn er kominn undir næringuhni; áhrifunum, sem við veröum fyrir. Ef viö sækjumst eftir góöri næringu, en foröumst þaö sem óholt er, þá veröur þroskinn góður og farsæll; annars ekki. Frelsarinn óx og styrktist eins og önnur börn, dafn- aði á þeirri andlegu næring, sem skaparinn algóður og heilagur vill veita okkur öllum. Náttúrufegurðin er fjölskrúðug og tíguleg í landinu helga. Himinhá fjöll að norðan, afar-djúp lægð umihverfis farveg Jórdan- ar; hafið að vestan, sandauðnir að sunnan og austan; landið skift- ist í fjalla-öræfi með frjósömum dölum og grundum inn á milli. Jurtalífið ákaflega fjölbreytt, og eins landbúnaðurinn, einkum í fornöld. Og heilög minning var fólgin í öhnefni hverju um alt landiö, svo að segja. En óvíða var þó útsýnið fegurra, en einmitt umhverfis Nazaret, þar sem Jesús ólst upp. Bærinn stendur sunn- an og austan í hæð nokkurri, við norður jaðarinn á fögrum dal og frjósömum í Galíleu sunnanverðri. Þar er ýndislegt um að litast á hæðunum umhverfis dalinn. Og Jesús elskaði fegurð náttúrunnar af öllu hjarta. Þ að sýnir bæði kenning hans og ótal atvik, sem •Guðspjöllin skýra frá. Við eigum að taka eftir fegurðinni í kring um okkur; leyfa henni að heilla hjartað. Hún göfgar lífið og færir okkur nær Guði. Jósef var trésmiður, og Jesús mun hafa lært þá ið(h á meðan hann var barn að aldri. “Smiðurinn, sonur Maríu”, var hann kall- aður í Nazaret ('Mark. 6, 3). Vann i æsku fyrir sér og móður sinni með eigijn höndum. Og þegar hann tók að ferðast um og kenna, þá lagði hann meira á sig en nokkru sinni áður, og hafði yndi af annríkinu JJóh. 5, 34-35; 9, 4). Við þurfum snemma að venja okk- ur á iðni og ástujndun. annars er hætt við, að við verð.um ónytjung- ar alla æfi. Iðjulaust líf er eins og ósáinn akur: ekki að eins arð- laust, heldur gróðurreitur alls konar lasta og óheilinda. Foreldrar Jesú voru góð og guðrækin. Þau fóru dyggilega með ungbarnlið Jesúm eftir lögum og venjum trúar sinnar. Ritning- argreínir mun hann hafa byrjað að læra um leið og hann fékk málið, eins og öninur Gyðinga börn. Frá sjöunda ári til tólf ára aldurs mun hann hafa verið uppfræddur í lögmáli Móse, öðrum ritningum gamla testamentisins og kenningum feðranna. Fjársjóði þessa geymdi frelsarinn í heilögu hjarta, eins og við vitum, og við eigum allir að líkja eftir honurn í því efni. Galíleumenn voru ekki eihs einangraðir og drambsamir i trú sinni, eins og Gyðingarnir í Júdeu. Þ.að var meira af útlendu fólki í norður hluta landsiins. I gegn um Nazaret lágu þrír þjóðvegir. Kaupmannalestir útlendar, þjóðhöfðingjar með fríðu föruneyti, her-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.