Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1914, Síða 21

Sameiningin - 01.06.1914, Síða 21
101 Séra Jón átti hvað eftir annaö í sáru sjúkdómsstríöi. Skömmu eftir 1890 var hann rétt kominn í dauöann, fór þá undir hvern upp- skuröinn eftir annan, en fékk á endanum all-góða heilsu.. Nokkrum árum seinna fékk hann lungnabólgu og var þá talinn af, en komst þó til heilsu. Ekki leið samt á löngu eftir það, að hann kendi þess sjúkdóms, sem að síðustu leiddi hann til bana. Heimili þeirra hjóna var hið ánægjulegasta, enda voru þau að- dáanlega samtaka og studdu og styrktu hvort annað. Heimilið var ávalt uppspretta hjálpsemi og alls annars, sem gott var, eftir þ\i sem þau frekast höfðu mátt til. Margir höfðu þar heimili sitt, þeg- ar þeir voru fyrst að kynnast þessu nýja landi. Sá, sem þetta ritar, naut góðs af þessu heimili og tilheyrði því um fjögra ára skeið, frá því hann var 14 ára. Sú hjálp gjörði honum það mögulegt, að kom- ast áfram til skólamentunar, sem annars hefði líklega ekki orðið. Að leggja fram ágæta hæfileika og fórna þeim í hinni dýpstu einlægni á altari þjóðar sinnar og kirkju, var æfistarf dr. Jóns Bjarnasonar. Viðurkenningu margvíslega hlaut hann á lífsleiðinni, einkum á hinum síðari árum, en mest af öllu frá hans eigin safnaðarfólki. Hvað eftir annað sýndi það honum á ýmsan hátt heiður. Ekki er það ofsagt, að allir, sem þektu hann, hafi borið virðingu fyrir hon- um, hvort sem þeir voru á sama máli og hann, eða á gagnstæðri skoðun. FERÐAMINNINGAR. Hugleiðingar um eitt og annað, sem bar fyrir augu og eyru á ferðalagi um byggðir Islendinga við Manitoba-vatn í Janúar-mánuði síðastliðnum. Eftir séra Jóliann Bjarnason. (Framh.) Járnbrautarlestin var rétt að renna inn til Mulvihill, þegar við vorum komnir upp í sleðann og vorum i þann veginn að keyra á stað. Lestin kom að norðan og var á leið til Winnipeg. Þetta er hennar vanatími að fara um á suðrleið á stöð þessarri. Hestr Krist- jáns var, einsog hestar voru hér áðr í Nýja íslandi og víðar, óvanr járnbrautarlestum. Bjuggumst við við, að það mundi standa heima, að þá er við kœmum að vegamótunum, þarsem við áttum að fara yfir járnbrautina, þá myndi lestin þar komin og trylla fyrir okkr hestinn. Vorum við því að hugsa um að fara hœgt og lenda ekki

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.