Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1916, Page 5

Sameiningin - 01.04.1916, Page 5
35 bæði hið ytra, í ríki náttúrunnar og eins liið innra, í sál- um mannanna. Það er því hvorttveggja jafn óholt, andlaus endur- tekning alþektra kenninga, eins og liitt, að stinga öllu góðu og gömlu undir stól og sækjast sífelt eftir nýjum sannleik, eins og það geti nokkurn tíma orðið úrelt, sem er satt. Um þetta ber oss að hugsa sérstaklega með tilliti til meginatriða trúarinnar. Ef vér sækjumst sífelt eftir frumleik og nýjungum í meðferð þess alvörumáls, þá er eitthvað meir en lítið rangt við trúarlíf vort. Menn geta orðið svo spiltir af sællífi, að þeir hafni góðri og heil- næmri fæðu og sækist eftir óhollum kræsingum. Eins fer andlegt dekur oft með sálir vorar. Hver getur til dæmis krafist nýs páskaboðskapar, nema hann sé alveg genginn af trúnni, eða í það minsta dauð-sjúkur hið innraf Sá sem ekki gleðst, þegar hann á þeirri heilögu stórhátíð heyrir orðin: “Kristur er upprisinn!”—yfir hverju svo sem, í heimi trúarinn- ar, getur hann þá fagnaðf Hann er þá annað hvort hættur að trúa þeim orðum, hefir látið vantrúarraddir heimsins stela því dýrmæta fagnaðarefni burt úr sál sinni, eða þá hitt, að hann er orðinn svo sljór, svo dof- inn og tilfinningarlaus, að jafnvel sigur lífsins yfir dauðanum, jafnvel gleðifregnin sjálf um að dauðinn sé afmáður, uppsvelgdur í sigur, liefir engin áhrif á hjarta hans. Gruði sé lof, að enn er páska-guðspjallið sí-ungt og ierskt, eins og vorgroourinn, hversu oft sem það er end- urtekið. Gruði sé lof, að það er eins áþreifanlega satt enn í dag, eins og sá sami vorgróður. Enn hefir hvorki jarðneskri speki, né harðhjartaðri vantrú tekist að raska þeim óbifanlega grundvallar-sannl'eik kristinnar trúar, sem oss er birtur í guðspjalli páskanna. Kristur er upp- risinn, frumgróði þeirra sem sofnaðir eru; dauðinn er liorfinn; mannlífsbölið alt er orðið eins og þoka eða hverfull skuggi; ástvinir vorir, sem vér höfum kvatt, eru sofnaðir en ekki dánir; nú þurfum vér ekki framar að syrgja skilnaðinn, heldur getum með óbifanlegri vissu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.