Sameiningin - 01.04.1916, Side 30
60
nokkru sinni áSur. Hann heldur áfram a5 rætast spádómurinn sá,
að “margir falsspámenn muni koma og afvegalei'ða marga.”
----—o--------
Næsta ársþing Sameinuðu kirkjunnar norsku verður haldið i
Fargo, N.-Dak., 15. Júní og næstu daga.
------o-------
Blaðið Lutheran Church Work and Ohserver vekur athygli á
á því, að ný lög í ríkinu Pennsylvania um skaðabætur til verka-
manna, er slasast við vinnu sína, nái einnig til launaðra starfsmanna
safnaða, svo sem presta, organista, söngmanna, þeirra er hirða
kirkjur o.s.frv. Slasist einhver þeirra i starfi sínu, þá hvíli sama
skylda á söfnuðunum og öðrum v’erkgefendum gagnvart vinnufólki
sínu. Eru þetta víst fyrstu lög af þessu tagi.
------o-------
í Janúar síðastl. sendi brezka biblíufélagið 260,000 eintök af
biblíunni til herfanga á Rússlandi.
------o-------
Á fundi erindreka frá söfnuðum þeim í Sameinuðu kirkjunni
norsku, er ensku nota, var gerð eftirfylgjandi samþykt: “Nefnd sé
skipuð til að starfa að því, að löggjafarvaldið leyfi og almennings-
álitið krefjist þess, að veitt sé kensla hálfan dag í viku hverri í
trúarlegum fræðum.” Þetta fyrirkomulag hefir þegar komist á á
einstöku stað í landinu. Tilgangur ofangreindrar tillögu er, að þetta
geti orðið alment í opinberum barnaskólum landsins. Hver trúar-
flokkur á að leggja til kennara fyrir sín börn, svo ekki v'erði trú-
bragðafrelsinu raskað.
Þanti 23. Jan. síðastl. andaðist í Madison, Wis., Francis J. Lamb,
dómari, níræður að aldri. Stóð hann á sinni tíð mjög framarlega
sem lögfræðingur, en hætti fyrir tíu árum að gefa sig við lögfræðis-
störfum. Alla æfi var hann áhugamikill kristindómsvinur, en síð-
ustu ár æfinnar fékk hann starfað með óskertum sálarkröftum að
því, að halda uppi vörn fyrir kristinni trú. Bezt þekt af ritum hans
er bók, er nefnist “Miracle and Science” ("Kraftaverk og vísindij,
gefin út 1909. Um þá bók segir kennarinn í kristilegri trúvöm v'ið
Princeton háskólann, að “hún sé yfirleitt bezta hókin til að fá í
hendur leitandi manni og efasjúkum.” Beitir höf. þeim reglum, sem
Viðteknar eru í réttarfari, til að dæma um trúverðugleik ritningarinn-
ar, og er aðferðin bæði óvanaleg og sannfærandi. Lamb dómari var
Kongregazíónalisti. 1 þvínær hálfa öld var hann embættismaður í
söfnuði sínum í Madison.
------o-------
Prestaskólann lúterska í Chicago hafa á þessum vetri sókt
fleiri nemendur en dæmi eru til á síðustu tiu árum. Horfur fyrir
næsta ár einnig sagðar góðar.
------o-------
Prof. Haeckel, kennari við háskólann í Jena á Þýzkalandi, heims-
frægur náttúrufræðingur og svarinn óvinur kristindómsins, hefir enn