Sameiningin - 01.04.1916, Síða 14
44
fengist við erfiðara hlutverk. Frá Kapernaum til Jerú-
salem fetaði hann krossferilinn, í vonbrigðum og sorg.
Trúuð sál tekur eftir naglaförunum, þegar á ferðum
lmns í Galíleu, og heyrir stunurnar frá hjarta Jesú, er
hann talaði í samkundunum; en kirkja hans mun þó ætíð
telja síðasta daginn sem aðal krossferilinn, og hver á-
fangi þess krossferils mun ætíð vera henni skýr í liuga.
Eins og vínviðurinn veitir vínþrúgunum vökva alt sum-
arið og blárauð vínberin eru á haustin troðin í vínpress-
unni, þannig gaf Jesús af lífi sínu í bikar sáluhjálpar-
innar, og heimurinn hefir fengið að bergja af unaði þess.
Sorgin liafði fylgt lionum alla æfi, og krýndi liann að
síðustu þeirri sorgar-kórónu, sem engan rúbín vantaði í.
Hann var svikinn af einum lærisveinanna, honum afneitað
af öðrum og var yfirgefinn af þeim öllum. Hann var
fyrirlitinn af þjóð sinni, útskrífaður af kirkju sinni
(g’amla testamentis kirkjunni), dæmdur af yfirvöldum
þjóðar sinnar og neitað. um rétt sinn af Rómverjum.
Hann var sakaður um að afvegaleiða alþýðuna, um að
gera uppreisn móti lögmálinu, og að fara með guðlast.
Hann var tekinn höndum, bundinn og húðstrýktnr. Þeir
hræktu á hann, hæddu hann og krossfestu. Og eftir ó-
umræðilegar kvalir á líkama og sál, virtist hann yfirgef-
inn af Guði sjálfum. Þannig fetaði liann krossferil
sinn.
Eins og mannkvnið eitt sinn gekk með Guði meðal
trjánna í Eden, og eftir langa ferð mun koma til þess
staðar, þar sem vex lífsins tré með tólf tegundum ávaxta
og- laufblöð til lækningar þjóðunnm, þannig byrjaði og
enti krossferillinn í garði, eins og mannlífið sjálft.
Fyrst er garðurinn Getsemane, þar sem Jesús dvaldi á
bæn til Guðs og englar Guðs þjónuðu honum. Og svo er
garður Jósefs, þar sem Jesús var lagður til hvíldar af
þeim, er hann liafði frelsað, og hann svaf í friði eftir
sára raun. A milli garðanna lá krossferillinn um öll
svæði lífsins: yfir Kedrons dal og Golgata liæð, meðal
vínviðar- og olíutrjánna út á landsbygðinni, og um götur
og innan um fjölmenni borgarinnar. Jesús kom í Ixöll
konungsins, fvrir í’áðið, fyrir veraldlegan dómstól og í