Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1917, Síða 9

Sameiningin - 01.02.1917, Síða 9
361 úr hempunni—og samtímis er þessi vanhugsaða spuming komin á dagskrá úti fyrir: “Hvernig þótti þér ræöan ?” petta er komiö í herfilegan vana. Yæri páfagaukur settur í búri viS kirkjudyr, þá myndi eilíf endurtekningin kenna honum að herma eftir fólkinu þessa spumingu: “Hvemig þótti þér ræðan ?” petta er óhreinn andi, sem ekki fer út, nema við bæn og föstu. Engin furða, þó skelfilega rír sé árangurinn oft- ast nær. Góða sæðið glatast aftur að vörmu spori. “Fugl- ar himinsins átu það upp.” Prédikanir eru ekkert bama- glingur. Að hlusta á alvörumikinn og kröftugan flutning orðsins guðlega, þess orðs, sem um er ritað: “Er ekki orð mitt eins og eldur, eins og hamar, sem sundurmolar klett- ana?” — og spyrja síðan: “Hvernig þótti þér ræðan?”, það er að óvirða opinberun Drottins, fara með hana eins og smá- glingur, sem haft er til sýnis og gamans. Vér höfum skírn- arfont við dyrnar, að fornum sið, héma í kirkjunni. Hann stendur á þrepi og málverk uppi yfir á veggnum, fögur mynd 1 náttúrlegum litum, af skím frelsarans í Jórdan. Fyrir nokkru síðan sýndum vér konu einni aðkominni kirkjuna og skímarfontinn um leið. “Er það ekki snot- urt?” sagði hún. Vér hefðum getað tárfelt yfir slíkri léttúð og smekkleysi. Er ekki þjóðin vor að verða fálát og sinnulaus um þessa hluti, svo að henni stendur varla ógn eða lotning af nokkrum helgidómi framar? Stólræður eiga ekki að vekja aðdáun; þær eiga að kveikja eld. “Orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði, og smýgur inn í instu fylgsni sál- ar og anda, liðamóta og mergjar, og er vel fallið til að dæma hugsanir og hugrenningar hjartans.” Ef örin smýgur inn, þá er bölvunin rekin út. Jóhannes skírari, Jesús frá Naza- ret, Pétur og Páll postular,—þeir leituðust ekki við að þókn- ast mönnum með ræðum sínum. pvert á móti. Mjög margir kennimenn, og einkum þeir yngri, hafa reynt um of að þóknast mönnum, og haft ilt af. peir hafa lagt eyru við spurningu áheyrendanna: “Hvernig þótti þér ræðan?”— og reynt svo að dekra við fólkið með öllu mögulegu móti, í stað þess að flytja Guðs orð. “pann tíma mun að bera,” segir ritningin, “að menn þola ekki hina heilnæmu kenning, heldur kitlar þá á eyrunum og þeir sópa að sér kennurum eftir eigin fýsnum sínum.” pað er “fíni” presturinn, áfram um að koma sér í mjúkinn, ísmeygilegur, ilmvatni drifinn, fullur af hégómadýrð hið innra og tepruskap hið ytra, færð- ur í mjúkan klæðnað eftir nýjasta tízkusniði, maður, sem mieira er um hvíta hanzka gefið en hjarðmanns-stafinn, meira um rósótt hálsbindi, en um leðurbeltið—það er því- líkur tízku-prestur, sem um fram alt vill tala svo öllum líki

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.