Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1917, Page 13

Sameiningin - 01.02.1917, Page 13
305 gefa honum upp skuldina og sleppa honum.” Eg er maður, og mér kynni að vera óljúft að meiða tilfinningar yðar eða synja yður nokkurs sem vini mínum, og eg kynni að gefa honum upp skuldina; en ef eg gjörði það, þá myndi eg fremja ranglæti við alla þjóðina. Éf Guð getur gjört annað eins, þá er hann ekki réttlátari en eg. Mér er ómögulegt að trúa því um hann.” Biskupinn svaraði engu, og eg hugsaði með sjálfum mér: petta er ein hin þýðingarmesta stund æfi minnar. Landstjórinn hefir borið fram þá þýðingarmestu spurningu, sem nokkur maður getur spurt, og hann á heimtingu á full- nægjanda svari. Kristindómurinn stendur hér fyrir máli sínu gagnvart Múhameðstrúnni. Geti kristindómurinn ekki gefið fullnægjanda svar, þá er hann ónýtur. Landstjórinn hefir svarað vel; hverju skyldi biskupinn svara honum aft- ur? petta var eg að hugsa, þegar landstjórinn sneri sér að mér og sagði: “Dr. Ussher, hvað segið þér um þetta?” Eg hafði ekki hugsað mér neitt svar, en eg bað af öllu hjarta: Drottinn minn, gef þú mér svar! Og hann, sem sagði: “verið ekki áhyggjufullir um, hvernig eða hvað þér eigið að tala”, hann gaf mér svarið. “Yðar hágöfgi,” svaraði eg, “með leyfi yðar vil eg nota yðar eigið dæmi. En eg ætla að breyta því dálítið; eg ætla að kalla yður konung. pér eigið son, sem er vinur minn og elskar mig. Eg er í varðhaldi fyrir skuld svo mikla, að eg get ekki borgað einn þúsundasta hluta hennar. Sonur yðar kemur til yðár og segir: “Faðir minn, vinur minn er í fangelsi fyrir skuld, sem hann getur ekki borgað; vilt þú ekki gjöra það fyrir mig, að náða hann?” Og þér svarið: “Sonur minn, mér þykir líka vænt um hann, og mér þykir sárt að vita hann í varðhaldi, en eg get ekki náðað hann, án þess að gjöra allri þjóðinni rangt til.” “Gott og vel, faðir minn, en vilt þú þá lofa mér að borga skuldina fyrir hann, svo að honum verði slept?” “Já, það vil eg, sonur minn, ef hann vill þiggja það, og eg skal gjöra meira, eg skal taka þátt í því með þér, að borga fyrir hann.” Svo fer sonur yðar á stjórn- arskrifstofuna, án þess að tala neitt um það við mig, og borg- ar skuldina, og hún er kvittuð í bókunum. Hann fær viður- kenningu fyrir skuldgreiðslunni með innsigli ríkisins á, og með hana kemur hann til mín í varðhaldið og segir: “Rís upp, bróðir, þú ert frjáls, skuldin þín er greidd!” Eitt af þrennu gæti eg nú gjört. Eg gæti svarað honum drembilega og sagt: “Nei, þetta þigg eg ekki. Eg vil ekki vera upp á neinn kominn”,—og tekið ekkert tillit til þess, að eg e r öðrum háður á undan og er í skuld. Ef eg færi svo að ráði mínu, þá myndi eg meiða mann, sem hefir af kærleika til mín og án þess að vænta nokkurs endurgjalds af minni

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.