Sameiningin - 01.02.1917, Page 27
370
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
Deild |»essa annast séra Kristinn K. óiafsson.
Blaöiö “Missionary Review of the World” segir frá því, að í
New Yörk borg séu mörg félög, er gangi undir ýmsum nöfnum, en
hafi fyrir aöal markmið sitt að styðja að útbreiðslu trúleysis. Láta
þau prédikara halda fram erindi sínu á strætum og gatnamótum og
í listigöröum, og hvar sem áheyrn fæst. Auk þess er gefið út mán-
aðarrit til að styrkja starfið, samfara iþví, að mikið er að því unnið,
að útbreiða rit Ingersolls, Paines, Voltaires og annara afneitunar-
postula. Fjórir “sunnudagsskólar” kváðu vera haldnir í New York
6org til að gróðursetja frækorn afneitunarinnar hjá hinurn ungu.
Hvílík þörf, að kristin kirkja láti ljós sitt skína, en hylji það ekki
undir mælikeri!
-------o-----—
Búddhatrúarmenn i Japan hafa gripið til þeirra ráða, að stofna
hjá sér sunnudagsskóla, sniðna eftir sunnudagsskólum kristinna
manna, til eflingar og viðhalds Búddhatrúnni. Ytra fyrirkomulag alt
er hið sama og á kristnum sunnudagsskólum. Jafnvel kristilegir
sálmar eru notaðir, en nafn Búddha allsstaðar sett í stað nafns Jesú
Krists. iÞannig slæðast með brot af kenningu kristindómsins, og eins
kvað vera í lexíublöðum, sem notuð eru. jSá hælir bezt, sem hefir
eftir, má segja um þessa viðleitni að gera eftirlíkingu af kristilegri
starfsemi. Er þetta ljós vottur þess, hve mjög kristindómurinn er
að ryðja sér til rúms í Japan, því hann myndi ekk verða fyrir þannig
lagaðri samkepni, ef hans gætti lítið.
---------o--------
Ágústana sýnódan sænska er að safna til ýmsra skóla og fyrir-
tækja upphæð er nemur einni miljón og sjö hundruð þúsund dollars.
Tala fermdra meðlima í þessari kirkjudeild er um 187 þúsundir. Þarf
því hver meðlimur að meðaltali að gefa um tíu dollars. Og þetta er
auk hinna venjulegu þarfa.
---------O--------
Fyrir hundrað árum voru í borginni Philadelphia 5 lúterskar
kirkjur. Nú eru þær 81.
---------O--------
Bókin alkunna, “The Way of Salv'ation in the Lutheran Church”,
eftir dr. Gerberding, er nú að koma út í nýrri og endurskoðaðri út-
gáfu. Bók þessi hefir fengið meiri útbreiðslu, en nokkur önnur bók
lútersk, er lit. hefir komið á ensku í Ameríku.
---------o--------
Sænskur prestur, Byström að nafni, þjónar þremur söfnuðum
Ágústana sýnódunnar í grend við Portland, Orcgon. Til að rækja
starf sitt þarf hann að ferðast frá sjö til tíu þúsund rnílur á ári.