Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1917, Síða 6

Sameiningin - 01.08.1917, Síða 6
166 næstum því ofbýður það. Reyndar hljótum vér við það að kannast, að vér gerum oss sjaldan í fullri alvöru grein fyrir því, hvað markmiðið er, livað af oss er lieimtað. Yér teljum oss kristna menn, vér köllum oss lærisveina Jesú, — en vér höfum sjaldan gert oss að öllu leyti Ijóst, hvað það er, að vera kristinn maður, hvað það kostar, hvað það í rauninni er, sem til þess úiheimtist. Það er ákveðið í grundvallarlögum flestra félaga, livað sé markmið félagsins. Þeir sem í félagið ganga, skuldbinda sig til þss, að stefna að markmiði félagsins. Sé það einhver siðferðis-hugsjón, sem fyrir félagsmönn- um vakir, þá er sjálfsagt að hafa hana sífelt fyrir aug um og vinna að henni af öllum kröftum. Hann, sem ritað hefir grundvallarlög kristinnar kirkju, hefir gert markmið félagsins einkar skýrt. Hann hefir skuldbundið alla, sem í félagið ganga, til þess að játast undir þessa stefnuskrá: “Verid' þér því fullkomnir, eins og yðar himneski faðir er fullkominn”. 1 sjál'fu sér finst líklega engum manni markmið þetta aðfinsluvert. Það finst líklega engum manni það ilt eða ljótt að vera líkur Gluði. Miklu fremur munu það allir játa, að þetta sé göfug stefna og- góð. Flestir munu jafnvel geta látið sér koma saman um það, að þetta sé hæðsta og háleitasta markmiðið, sem mönnunum hefir sett verið. Þrátt fyrir allan ágreining og deilur, þá virðist það og er í rauninni undur einfalt að vera kristinn mað- ur, markmið kristindómsins er svo sjálfsagt, að allir menn ættu að geta verið sammála og samtaka um það. Á sjálft markmið kristindómsins, eins og það er sett af Kristi sjálfum, getur enginn í rauninni verið vantrúaður. Eða þorir noltkur algáður maður að mæla á móti því, að menn- irnir kappkosti að líkjast himneskum föður sínum og reyni að vera góðir eins og Guð í Það er markmið kristins manns. Ef nokkuð mætti finna að markmiði þessu, er Kristur setti lærisveinum sínum, þá væri það það, að það væri of hátt. Það haá kalla það draumsýn, sem ekki gildi í vöku og veruleika. Til eru og þeir menn, sem skoða Krist

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.