Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1917, Síða 24

Sameiningin - 01.08.1917, Síða 24
184 oft hefi eg v’iljað saman safna börnum þínum, eins og hæna ungum sínum undir vængi sér—og þér hafið ekki viljaö þaö.” Út af því, sem hér er sagt að framan, vil eg snúa máli mínu til unglinganna, og segja þeim lítiö eitt af lífsstefnu þeirri, er var raöandi á mínu æskuheimili og í nágrenninu. Eg var fæddur á út- kjálka einum á Islandi og ólst þar upp, þar til eg var 16 ára að aldri. Eins og sagt var um ísland til skamms tíma, aS þaö væri útúr-skotið öllu sambandi viö umheiminn, eins mátti segja um þessa litlu, af- skektu bygö, aö hún væri afkróuð frá íslenzku sveitalífi. Þó átti afkymi þessi sína náttúrufegurð í fullum mæli, og þar hefi eg lifaö mínar heillaríkustu stundir. 1 bygöarlagi þessu voru fimm bæir, er mynduðu dálítið sveitarbrot út af fyrir sig. Þar ríkti samúö og eining í bezta skilningi þeirra orða. Allir voru einhuga um að hjálpa, þegar einhverjum lá á. Mátti með sanni segja, að bæjahverfi þetta væri eins og eitt heimili. Erfiöleikar voru þar miklir á lífinu, bæöi líkamlegu og andlegu. Til kirkju var farið vor og haust; leiöin var afar-löng og torsótt. Svo var farið einu sinni á slættinum í aðra kirkju. 1 kaupstað var farið vor og haust, og það látið duga. Prest- urinn okkar kom oftast nær i húsvitjanir haust og vor til aö spyrja og uppfræða unglingana. Komu þá öll börnin saman á eitt heimili. Þau börnin, sem fermast áttu, byrjuðu að “ganga til prestsins” með sjö vikna föstunni, gengu tvisvar í mánuði og voru hjá prestinum þrjá daga í einu. Á hvítasunnu var vanalega fermt að forfallalausu. Þetta var uppfræðslan, sem börnin fengu hjá prestinum. Á æskustöðvum mínum var húslestur alla jafna lesinn á hverri helgi árið urn kring. Með veturnóttum var byrjað að lesa á hv’erju kveldi. Þegar búið var aö kveikja, settust menn að tóvinnu, en einhver unglingur var látinn lesa, fólkinu til skemtunar. Það var mitt verk, á meðan lítið þótti muna um lið mitt til annara vökustarfa. Mest voru lesnar Islendingasögur og Noregskonungasögur. Þótti það góð skemtun og hvetjandi til allra dáða. Hætti sá lestur klukkan tíu; þá var líka hætt við tóvinnuna og guðsorðabækur teknar, sung- inn sálmur og lesin hugvekja og bæn. Þessari reglu var haldið til páska. Guðsorðalesturinn vakti trúarlífið og styrkti mann i traust- inu á Guð. í míríum ófullkomleika hefi eg reynt að fylgja þessari reglu á. lífsleiðinni, og hún hefir gjört mér gott—hvatt mig til að treysta Guði fyrir mér og þakka honum fyrir líf og heilsu, fyrir vernd hans og varðveislu og allar hans ástríku velgjörðir við mig á liðinni æfi. Kæru vinir mínir! Öll hafið þið alist upp á kristnum heimilum, hafið verið uppfrædd í kenningu Jesú Krists. Þegar þið eignist heimili sjálf, þá látið þenna neista kristindómsins lifa á arninum, svo að börn ykkar og ástvinir fái hann að erfðum. Eigi kristindóm- urinn að fá nýtt lif hjá okkur, þá þarf hann að verða heimilis-eign, betur en verið hefir. Biðjum fyrir heimilunum okkar með Hallgrími Péturssyni:

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.