Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1917, Page 28

Sameiningin - 01.08.1917, Page 28
188 FYRIR UNGA FÓLKIÐ. Deild þessa annast séra Friðrik Hallgrímsson. CHUNDRA SELA. Fyrir hér um bil 80 árum var mikiS um dýröir i bæ, sem heitir Kaski í Nysal-fylki nyrst á Indlandi. ÞaS var veriö aö halda brúS- kaupsveizlu, sem stóS yfir marga daga, og fjöldi fólks sótti þá veizlu alsta'Sar aS úr fylkinu. BrúSurin hét Chundra Sela og var 7 ára aö aldri; hún var dóttir merks Brahmana-prests þar í bænum. En brúS- guminn var sonur annars auöugs Brahmana. Vegna þess hve brúð- urin var ung, var hún ekki látin fara þá þegar heim til eiginmanns síns, heldur dvaldi enn um hríS heirna hjá föSur sínum. Hann var maSur vel læröur, og kendi dóttur sinni aö lesa og skrifa, þó aö ekki v’æri þá siSur þar í landi aS setja ungar stúlkur til rnenta. Þegar Chundra Sela var orSin 9 ára gömul, bárust henni einn dag fréttir, sem fyltu heimiliS harmi. MaSurinn hennar var dáinn. En nú trúa Hindúar því, aö ef kvæntur maöur deyr, þá sé það aö kenna einhverri synd, er kona hans hafi drýgt, ef til vill í einhverri fyrri tilveru, og fyrir þaS verSur hún þaS sem eftir er æfinnar fyrirlitin af öllum og er látin búa við hin verstu kjör. Chundra varð þess vegna aS fara úr fööurgarði, raka höfuö sitt og leggja á sig föstur og vinna verstu heimilisverkin fyrir ættfólk mannsins síns. Þegar hún var tólf ára gömul misti hún fööur sinn. Skömmu áSur en hann dó lét hann sækja hana til sín og afhenti henni lykla- kippu, og sagöi henni aS í hirzlunum sem lyklarnir gengju aS, væri geymt þaS gull, sem hún heföi erft eftir eiginmann sinn. ÁriS næsta notaöi hún allar tómstundir sínar til þess aS lesa hinar helgu bækur Hindúa. Þær kenna þaS, aS hverjum þeim, sem tilbiðja á öllum helgistöSum þjóSarinnar, verSi allar syndir fyrir- gefnar. Chundra trúði þvi, aö hún hlyti aS vera ákaflega vond, því ann- ars hefði maSurinn hennar ekki dáiö. Hún afréö því aS fara píla- grímsferö til fjögurra helztu hofa Indlands; eitt þeirra var austast í landi, annað vestast, hiS þriSja sySst, og hiS fjórSa norSur í Himalaya fjöllum. Þessa ferS þurfti hún aS fara aS mestu fót- gangandi, en vegalengdin var álíka og yfir þvera Ameríku frá Atlanz- hafi til Kyrrahafs, fram og aftur. Og hún var ekki nema 14 ára gömul. En hún þráöi heitt a’S fá fyrirgefningu þeirra synda, sem hún vissi ekki af, og til þess var hún fús til aS leggja á sig hvaö sem þaS kostaSi. Hún þóttist þess fullviss, aS ef tengdafólk hennar vissi um

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.