Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1910, Qupperneq 2

Sameiningin - 01.01.1910, Qupperneq 2
338 liann þar að lijálpa mönnum til að lesa út úr þeim ill kvittni og ódrenglyndi við sig af okkar hálfu. Þetta knýr mig til að birta nú bréfið allt, sem eg sendi biskupi og hér er um að rœða. Lesendr geta þá sjálfir um það dœmt, hvort nokkuð er þar í, sem eg þarf að skammast mín fyrir. Sérstaklega skal á það bent, sem eg sagði þar um hinn unga landa vorn, er varð fyrir þeim lieiðri að liljóta Cecil Rhodes-verðlaunin; því séra Fr. J. B. telr mig ltafa sagt það um hann, sem eg sagði í bréfinu, „að eins til að niðra“. En er sá kafli bréfsins, sem þann mann snertir, birtist nú allr, verðr öllum rétt- sýnum mönnum Ijóst, að lians var þar alls ekki minnzt í því skyni að ófrægja hann, heldr af allt annarri orsök, sem beinlínis var um leið tekin fram. Hornklofar [ ] eru hér settir utan um þá kafla bréfs- ins, sem hr. Þórhallr biskup valdi úr því til þess að láta birtast í ‘Kirkjublaðinu’. J. Bj. Winnipeg, 8. Maí 1909. Háttvirti vin og bróðir! 1 dag kom til mín „Kirkjublaðið“ yðar frá 1. Maí (eftir dagsetningunni) með hinu vinsamlega ávarpi til mín út af hinu kirkjulega ágreiningsmáli voru. Og vil eg tafarlaust kvitta fvrir það með skyldugri þökk fyrir hin hlýlegu orð mér til handa. Mig hefir oft langað til að senda vðr línu í seinni tíð, en síðan málgagn yðar snerist svo eindregið á móti stefnu þeirri í kristilegum trúmálum, sem eg hefi að- liyllzt í dýpstu lijartans alvöru og barizt fyrir í drottins nafni, dofnaði hugsan sú hjá mér, svo ekkert varð úr. Eg fann, að kunningjarnir gömlu hinum megin við hafið vildu flestir enga samsuðu hafa með mér. Eg vissi svo vel af fylkingunni nýju, mér andstœðu og mínum skoðun- um, sem var að myndast á íslandi. Mér var, skildist mér, meir og meir að verða ofaukið í mötuneyti þeirra. Eg er fvrir þessa sök fyrir talsvert löngu hættr að hafa nokkur bréfaskifti við þá. Þó sé eg eftir því, að eiga

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.