Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1910, Page 27

Sameiningin - 01.01.1910, Page 27
363 útliti. Hiö þunna hár hans féll í hvítum lokkum niðr fyrir túrbaninn, sem algjörlega huldi höfuð hans að ofan, og þétt og sítt skegg, enn hvítara, veifðist um brjóstið á hinum grófa gráa kufli hans. Hœgt fœrðist hann áfram, því bæði var hann orðinn aldrhniginn og i tilbót hélt hann á smíðatólum — öxi, sög, tvískeftu—, sem öll voru stórgjör og þung, og var auðsætt, að hann hafði gengið svona góð- an spöl án þess að hvíla sig. Hann stóð við, er hann var kominn fast að, til þess að líta yfir þennan mannsöfnuð. „Rabbí, góði rabbí, Jósef!“ — kallaði kona nokkur, sem hljóp til hans. „Hér er bandingi; kondu og spurðu hremennina um hann, svo við fáum að vita, hver hann er, hvað hann hefir til saka, og hvað þeir ætla að gjöra við hann.“ Andlit öldungsins var dauflegt og breyttist ekki; hann leit þó á bandingjann og gekk að yfirmanninum. „Friðr drottins sé með þér!“ — mælti hann með ó- sveigjanlegri alvörugefni. „Og friðr frá guðunum sé með þér!“ — svaraði for- inginn. „Ert þú frá Jerúsalem?" „Já.“ „Bandinginn, sem þið eruð með, er ungr.” „Já, ungr að aldri.“ „Má eg spyrja, hvað hann hefir gjört fyrir sér?“ „Hann er morðingi." Fólkið endrtók orðið forviða, en rabbí Jósef hélt spurningum sínum áfram. „Er hann Israels son ?“ „Hann er Gyðingr“ — svaraði Rómverjinn þurrlega. Hikandi meðaumkun þeirra, er við voru staddir, hreyfði sér enn. „Mér er alveg ókunnugt um kynkvíslir ykkar“ — hélt hann áfram, er orðið hafði—, „en um ættfólk hans hið ná- komnasta get eg talað. Þið hafið ef til vill heyrt getið um fursta einn, kenndan við Jerúsalem, að nafni Húr — Ben Húr var hann nefndr. Hann var uppi á dögum Heródesar." „Eg hefi séð hann“ — mælti Jósef. „Jæja, þetta er sonr hans.“ Nú urðu þeir margir, sem fóru að hafa hátt, og for- ingi riddaranna flýtti sér að þagga niðr í þeim. „1 fyrra dag var hann út á stræti í Jerúsalem kominn fast að þvi að deyða Gratus landstjóra með því að þeyta tígulsteini í höfuðið á honum niðr af þakinu á stórhýsi einu — eg held það hafi verið höllin hans föður hans.“

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.