Fréttablaðið - 05.04.2011, Side 4
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR4
LANDBÚNAÐUR Íslenska ríkið seldi
um tvö hundruð bújarðir í sinni
eigu á árabilinu 2000 til 2010.
Þorri jarðanna var seldur fram
til ársins 2007 en frá og með
hrunárinu 2008 hafa samtals
tuttugu jarðir verið seldar.
Kaupendur ríkisjarða voru
framan af áratugnum af ýmsu
tagi; ábúendur, sveitarfélög,
félagasamtök og einstaklingar
sem ekki stunda búskap. Eftir
hrun hafa ábúendur keypt svo til
allar seldar ríkisjarðir.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytinu var nokkuð um að
ábúendur sem áttu lögvarinn
kauprétt að jörðum og höfðu
lýst áhuga á kaupum hættu við
eða ákvæðu að bíða eftir hrunið.
Sömu sögu er að segja af sveitar-
félögum, sem fram að þeim tíma
höfðu keypt allnokkrar jarðir.
Heildarfjöldi bújarða í land-
inu er 6.562. Af þeim eru 4.290 í
ábúð og 2.272 í eyði. Skilgreining-
in er tæknileg og snýr fyrst og
fremst að lögheimilisskráningu
bónda. Eru mörg dæmi þess að
jörð sem skráð er í eyði sé nýtt
til landbúnaðarnota.
Ríkið á nú, samkvæmt nýjustu
upplýsingum, 400 bújarðir. Af
þeim eru 350 á forræði sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytis-
ins og 50 á forræði annarra ráðu-
neyta. Af þessum 400 eru 239 í
ábúð og 161 í eyði. Á ríkið um sex
prósent allra jarða en um alda-
mótin átti ríkið um níu prósent
jarða í landinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytinu var sú stefna tekin
upp í ráðuneytinu árið 2009 að
auglýsa ekki ríkisjarðir til sölu
á frjálsum markaði, nema sér-
stakar ástæður mæltu með
GENGIÐ 04.04.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,0842
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,73 114,27
183,74 184,64
161,69 162,59
21,682 21,808
20,642 20,764
17,994 18,100
1,3514 1,3594
180,13 181,21
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Ríkið á 400 bújarðir
Bújörðum í eigu íslenska ríkisins fækkaði um tvö hundruð á fyrsta áratug
aldar innar. Sala ríkisjarða hefur nánast stöðvast frá hruni. Árið 2009 var
mörkuð sú almenna stefna að auglýsa ekki bújarðir til sölu á frjálsum markaði.
slíku. Vegna ástandsins á mark-
aði hefur lítið reynt á þá stefnu-
breytingu.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, boðaði
við upphaf nýafstaðins búnaðar-
þings frumvarp til breytinga á
jarðalögum. Markmið breyting-
anna er að formfesta skynsam-
lega landnýtingu með tilliti til
fæðuöryggis þjóðarinnar, eins
og hann orðaði það í ávarpi sínu.
Frumvarpið var ekki lagt fram á
Alþingi áður en tilskilinn frestur
til að leggja fram þingmál rann
út á föstudag. bjorn@frettabladid.is
Í SVEITINNI Ríkið á um sex prósent allra jarða í landinu. Hlutfallið var níu prósent
um aldamót. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sala ríkisjarða 2005-2010
Jarðir á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins
■ Seldar jarðir
■ Seldar ábúendum
30
25
20
15
10
5
0
2005 2006 2007 2008 2009 2010
14
25
21
8
7
5
29
17
14
7
6
4
FERÐAMÁL Tvö ný snyrtihús með
átján salernum verða í sumar
tekin í notkun á Hakinu á Þing-
völlum. Átján ára og eldri þurfa
að greiða tvö hundruð krónur
fyrir afnot af salernunum.
Til þess að innheimta salern-
isgjaldið verða sett upp sérstök
gjaldtökuhlið sem Þingvalla-
nefnd hefur ákveðið að kaupa af
fyrirtækinu Icelux. Hliðin eru
sjálfvirk og munu taka við 50
króna og hundrað króna mynt.
Þrátt fyrir að Þingvallanefnd
hafi samþykkt gjaldtökuna á
Hakinu mun áfram verða hægt
að komast frítt á önnur salerni í
þjóðgarðinum.
Hliðin frá Icelux kosta þrjár
milljónir króna með uppsetn-
ingu á staðnum. Þingvallanefnd
gerir ráð fyrir því að tekjur af
þeim verði sex milljónir króna á
ári miðað við að 30 þúsund manns
greiði þjónustugjaldið.
„Þessi aðstaða uppfyllir ströng-
ustu kröfur um umhverfisvernd
og hreinsun fráveituvatns innan
þjóðgarðsins og stórbætir þjón-
ustu við gesti en eykur um leið
rekstrarkostnað,“ segir Þing-
vallanefnd um þetta mál. - gar
Þingvallanefnd kaupir átján salerni og sjálfvirk gjaldhlið til að setja á Hakið:
Reikna með 30 þúsund á klósettið
ÞINGVELLIR Sjálfvirkum gjaldhliðum
verður komið fyrir við salerni á Hakinu á
Þingvöllum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Stuðnings-
menn Alassanes Ouattara, rétt-
kjörins forseta Fílabeinsstrand-
arinnar, hófu í gær sókn inn í
Abidjan, stærstu borg landsins.
Þeir gerðu sér vonir um þetta
yrði lokasóknin í átökum við her-
lið Laurents Gbagbo forseta, sem
hefur neitað að láta af völdum
þrátt fyrir að hafa tapað forseta-
kosningum í nóvember.
Bæði Sameinuðu þjóðirnar og
Afríkubandalagið viðurkenna
sigur Ouattaras í kosningunum.
- gb
Átök á Fílabeinsströndinni:
Lokasóknin inn
í Abidjan hafin
ÍSAFJÖRÐUR Dash-8 flugvél Flug-
félags Íslands flaug á svan við
flugtak frá Ísafjarðarflugvelli
á sunnudagsmorgun. Svanurinn
féll særður til jarðar, að því er
fram kemur á fréttavef Bæjar-
ins besta, en var dauður þegar
starfsmenn flugvallarins komu
að honum.
Flugvélin skemmdist ekki og
hélt áfram ferð sinni til Reykja-
víkur. Að sögn starfsmanns Flug-
félags Íslands á Ísafirði er það
afar fátítt að stórir fuglar sem
þessir rekist á flugvélar. Svanur-
inn er stærsti fugl landsins, með
allt að 2,4 metra vænghaf. - sv
Svanur féll særð til jarðar:
Svanur flaug á
Dash-8 flugvél
SVANIR Á FLUGI Óalgengt er að stórir
fuglar verði fyrir flugvélum hér á landi.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
18°
15°
9°
17°
18°
8°
8°
19°
14°
22°
15°
27°
6°
17°
15°
8°Á MORGUN
8-13 m/s, hvassast
við S-ströndina.
FIMMTUDAGUR
Stíf suðvestanátt.
4
5
5
5
5
7
6
2
4
3
4
5
7
5
6
7
4
5
6
3
4
4
4
5
5
33 4 4
5
5
7
DÁLÍTIL VÆTA
Næstu dagar verða
svipaðir en suð-
vestanátt verður
ríkjandi með vætu
einkum sunnan
og vestan til. Á
fi mmtudag lítur út
fyrir heldur hlýn-
andi veður en þá
megum við búast
við stífum vindi og
blautu veðri.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
VIÐSKIPTI Reynt verður að svara
spurningunni um það hvers
vegna stór fyrirtæki íhugi að
flýja land á hádegisverðarfundi
Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga í dag.
„Er það vegna gjaldeyrishafta,
skattahækkana eða erfiðleika við
að nálgast fjármagn? Eða er rótin
annars staðar?“ er spurt í til-
kynningu frá félaginu.
Meðal ræðumanna á fundinum
eru Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, og
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis. Fundurinn er á
Grand hótel. - þeb
Fundur á Grand hóteli:
Hvers vegna
flýja fyrirtæki?
FÓLK Hjálparsími Rauða krossins
stendur fyrir átaki næstu vikuna
undir yfirskriftinni Geta pabbar
ekki grátið?
Rauði krossinn segir að margir
finni fyrir fjárhagsáhyggjum um
þessar mundir. Karlar eigi stund-
um erfitt með að ræða um vanda-
mál sín opinskátt, jafnvel við
sína nánustu. Þá geti verið lausn
að hringja í Hjálparsímann,
1717. Starfsfólk Hjálparsímans
undirbjó átaksvikuna í samstarfi
við umboðsmann skuldara, sem
veitti upplýsingar um úrræði
vegna efnahagsþrenginga. - þeb
Hjálparsími Rauða krossins:
Átaksvika fyrir
karla hjá RKÍ
FRAKKLAND, AP Allt að mánuður
getur liðið þangað til hægt verð-
ur að hefja vinnu við að ná flaki
franskrar Airbus-farþegaþotu af
botni Atlantshafsins, þar sem það
hefur legið á 3.900 metra dýpi
síðan vélin hrapaði í júní 2009.
Um borð voru 228 manns, sem
allir létu lífið. Vélin var á leið-
inni frá Rio de Janeiro til Parísar
þegar hún lenti í þrumuveðri í
háloftunum. Orsakir slyssins
eru enn ekki þekktar og „svarti
kassinn“ með flugrita vélar-
innar hefur enn ekki fundist.
Mikil áhersla er lögð á að finna
flugritann. - gb
Þotan fundin á hafsbotni:
Reynt að ná
flakinu upp
EINN ÞOTUHREYFLANNA Myndir af
flakinu voru sýndar á blaðamannafundi í
Frakklandi í gær. NORDICPHOTOS/AFP