Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 6

Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 6
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 IÐNAÐUR Erfitt eða ógjörlegt gæti orðið að afla orku til álvers Norð- uráls í Helguvík fáist ekki orka samkvæmt fyrirliggjandi samn- ingum við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í ársskýrslu Century Aluminum Co. þar sem fjallað er um áhættu- þætti í rekstri. Norðurál Helguvík sem reisir álverið er að fullu í eigu Norðuráls, sem á og rekur álver- ið á Grundartanga og er aftur að fullu í eigu Century Aluminum. Verði hætt við álverið, eða það tefst verulega, er það sagt munu hafa verulega neikvæð áhrif á fjármögnun, afkomu og lausafjárstöðu Century Aluminum. Áréttað er að félagið hafi engin tök á að stjórna, hafa áhrif á eða spá fyrir um þætti sem tafið gætu eða hindrað framleiðslu og afhend- ingu orku til álversins. „Þar með er talin geta orkufyrirtækjanna til að fjármagna þróun nýrra jarð- varmavirkjana og tengda upp- byggingu mannvirkja til afhend- ingar orkunnar.“ Framkvæmdir við byggingu álversins í Helgu- vík hafa verið stöðvaðar að mestu á meðan ekki hefur verið leyst úr vandamálum við að afla því orku. Í ársskýrslu Century Aluminum er tekið fram að óvissa ríki um hvort eða hvenær framkvæmdum verði haldið áfram, hvort lokið verði við smíði álversins eða hvort rekstur álversins verði arðbær. Í umfjöllun um áhættuþætti í ársskýrslu Century Aluminum eru einnig slegnir margvíslegir aðrir varnaglar varðandi afkomu félagsins. Fjallað er um sveiflur í álverði, óstöðugleika á mörkuðum með hráefni, hækkandi raforku- verð og fleiri þætti. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir framsetninguna í ársreikningnum kunna að vera Íslendingum framandi, en vestra sé sá háttur hafður á að velta upp með þessum hætti margvísleg- um áhættuþáttum. „Þetta er eig- inlega upptalning á margvísleg- um þáttum sem einhvern tímann gætu komið upp við einhverjar aðstæður,“ segir hann. Ragnar segir gerðardóms- mál vegna samninga félagsins við HS Orku verða tekið fyrir í maí og niðurstaða eigi að liggja fyrir í sumar. „Og það er svo sem ákvörðunarpunktur í því. En auð- vitað vonumst við til þess að menn klári samningaleið áður en til þess kemur og teljum vel tækifæri til þess, hafi menn áhuga á því.“ olikr@frettabladid.is En auð- vitað vonumst við til þess að menn klári samninga- leið. RAGNAR GUÐMUNDSSON FORSTJÓRI NORÐURÁLS Century varar við óvissu í Helguvík Í ársskýrslu Century Aluminum er varað við fjárhagslegum skakkaföllum félagsins verði ekki af álveri í Helguvík. Geti HS Orka og OR ekki útvegað orku er verkefnið fyrir bí. Niðurstaða gerðardóms segir til um framhald málsins. ÁLVER Í BYGGINGU Áætlað hefur verið að á framkvæmdatíma byggingar álvers í Helguvík yrðu til um 3.200 ársverk auk afleiddra starfa. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar að mestu meðan óvissa ríkir um það hvort orka fáist til álversins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is Askja 132, fimmtud. 7. apríl kl. 5:30 Ljúffeng ánauð úr heimildarmyndaröðinni “China Screen” Þjóðlegur veitingahúsarekstur í harðri samkeppni á ört vaxandi markaði. Lögberg 201 miðv. 6. apríl kl. 12:10 Deborah Sommer: Vestrænar birtingamyndir Konfúsíusar. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Nánar á konfusius.hi.is Öllum opið! Aðgangur ókeypis! Viðburðir Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa: Aumir og stífir vöðvar? Voltaren Gel® (Díklófenaktvíetýlamín 11,6 mg/g) er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Voltaren Gel® er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Verkjastillandi og bólgueyðandi við verkjum í mjóbaki, öxlum og vöðvum Nýtt lok! Auðvelt að opn a AÐALFUNDUR HÚSEIGENDAFÉLAGSINS Aðalfundur Húseigendafélagsins 2011 verður haldinn fimmtudaginn 14. apríl nk. salur Ásatrúarfélagsins, Síðumúla 15, Reykjavík og hefst hann kl. 16.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin. STJÓRNMÁL Sex þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram frumvarp um afnán skila- nefnda fyrir viðskiptabankana sem fóru í þrot við hrunið. Verkefni skilanefndanna færist til slitastjórna 1. september verði frumvarpið samþykkt. Fjármálaeftirlitið skipaði skilanefndir fyrir föllnu bankana þrjá eftir setningu neyðar- laganna í október 2008. Samhliða tóku til starfa slitastjórnir skipaðar af héraðsdóm- ara. Þingmennirnir segja nokkuð hafa verið rætt á Alþingi um það fyrirkomulag að hafa skilanefndir og slitastjórnir starfandi sam- hliða. Viðskiptanefnd Alþingis hafi talið eðli- legt að svo væri ekki því „tvöfalt kerfi væri ekki heillavænlegt til framtíðar“ eins og segir í greinagerð sexmenninganna. Ekki hafi þó verið sett tímamörk á hvenær þetta fyrir- komulag tæki enda. „Séu í hópi skilanefndarmanna einstakling- ar sem hafa víðtæka þekkingu og góð per- sónuleg sambönd við kröfuhafa ætti að vera mögulegt að ráða viðkomandi einstaklinga til starfa fyrir slitastjórnina,“ segja sexmenning- arnir og svara þannig helstu rökum sem færð hafa verið fyrir því að hafa bæði skilanefndir og slitastjórnir starfandi fyrir hvert og eitt þrotabú gömlu bankanna þriggja. - gar Þingmenn úr öllum flokkum flytja frumvarp um að leggja af skilanefndir gömlu bankanna næsta haust: Vilja afnema tvöfalt kerfi slitastjórna og -nefnda ALÞINGI Skilanefndir föllnu bankanna munu hafa starfað í nærri þrjú ár þegar þær verða lagðar niður í haust, hljóti frumvarp þess efnis brautargengi. NEYTENDUR Flugmálastjórn hefur sent frá sér á þriðja tug ákvarðana á þessu ári vegna kvartana neyt- enda. Kvartanirnar snúast flestar um ágreining flugfarþega við flug- félög um skaðabótaskyldu vegna seinkunar eða aflýsingar, glataðs eða skemmds farangurs og upp- lýsingaskyldu flugrekanda til far- þega. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Neytendasamtökunum. Lögum um loftferðir var breytt síðasta sumar, meðal annars til að efla neytendavernd laganna. Flug- málastjórn var veitt heimild til að úrskurða um ágreining á milli neytenda og flugrekenda. Stofnun- in gefur út bindandi úrskurð sem flugrekanda er skylt að fara eftir. Þó er hægt að kæra ákvörðunina til innanríkisráðuneytisins innan þriggja mánaða. Nokkrar ákvarðanir byggja á úrskurði Evrópudómstólsins frá árinu 2009, þar sem niðurstaðan var að ef flugi seinkaði um meira en þrjár klukkustundir ættu far- þegar rétt á sömu skaðabótum og ef fluginu hefði verið aflýst. Flugmálastjórn hefur ákvarð- að kvartendum 400 evrur í skaða- bætur í nokkrum málum þar sem þriggja tíma seinkun hefur orðið. Skaðabætur verða hærri eftir því sem flugtími er lengri. - sv Flugmálastjórn ákvarðar að farþegum skuli greiddar bætur vegna seinkana: Á þriðja tug kvartana sendar út SEINKUN Á KASTRUP Farþegar eiga rétt á skaðabótum ef flugi seinkar um þrjár klukkustundir eða meira. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Hljópstu apríl? Já 10,6% Nei 89,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Á að halda ríkisstjórnarfundi oftar utan höfuðborgar- svæðisins? Segðu skoðun þína á vísir.is Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Ljósmyndakaffi Ljósmyndasafns Reykjavíkur verður haldið í dag klukkan 12 í Tryggvagötu. Þar munu ljósmyndararnir Guðmundur Ingólfsson, Bára og Sissa spjalla við Leif Þorsteinsson um ljósmyndun. Í tilefni Hestadaga í Reykja-vík verða á boðstólum steikt tryppaeistu að enskum hætti í gamla söluturninum á Lækjartorgi í dag. Tryppaeistu eru heimskunnur frygðarauki enÍslendingum fágætt hÉ óvenjulegt en sérpantað í tilefni hátíðarinnar Hestadaga í Reykja- vík sem nú stendur yfir.„Tryppaeistu eru eftirsóknar- vert hráefni og í þess iaf þ í niður í kynorkuaukandi drykki.„Bragðið minnir talsvert á hrútspunga, en áferðin er g ófenda stó Úlfar Eysteinsson stendur í ströngu í dag þegar hann matbýr gómsæt tryppaeistu fyrir gesti og gangandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11.30 Hneggjandi gott lostæti KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.