Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 8

Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 8
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR8 FANGELSISMÁL Áætlaður aukakostn- aður við staðsetningu nýs fangels- is á Hólmsheiði er 26,2 milljónir króna á ári. Sú fjárhæð samsvar- ar 584 milljónum króna yfir nýt- ingartíma fangelsisins, fjörutíu ár, núvirt. Sú fjárhæð hækkar eftir því sem staðsetning fangelsisins fjarlægist höfuðborgarsvæðinu. Deloitte FAS reiknaði út kostn- aðarauka tengdan staðsetningu hins nýja fangelsis sem áætlað hefur verið að reisa á Hólmsheiði fyrir innanríkisráðuneytið í októ- ber á síðasta ári. Í skýrslu Deloitte kemur fram að áhersla hafi verið lögð á að greina hvaða liðir hefðu kostnaðartengd áhrif í för með sér. Ákveðið var að reikna með kostn- aði vegna yfirheyrslna, túlkaþjón- ustu, flutnings fanga í dómsal og ferðakostnaðar lögfræðinga. Kostnaðaraukinn er metinn miðað við að fangelsið verði byggt í 55 kílómetra fjarlægð frá höfuð- borgarsvæðinu og er þar miðað við Hólmsheiði. Kostnaðurinn eykst eftir því sem fjarlægðin verður meiri frá Reykjavík. Því er talið ólíklegt að nýtt fangelsi muni rísa annars staðar á landinu en á Hólmsheiði, en ekki verður gert ráð fyrir þeirri staðsetningu í útboðsgögnunum. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu er ástæða þess að útboðsgögnin liggja ekki fyrir sú að Reykjavíkurborg hefur átt í viðræðum við Mosfellsbæ og eigendur Vilborgarkots á Hólms- heiði varðandi lóðamál. Ágúst Jónsson, hjá fram- kvæmdasviði Reykjavíkurborg- ar, segir að nú hafi komið fram frá Mosfellsbæ að lóðin sé á svæði Reykjavíkur, en jörðin Vilborgar- kot liggur að hluta inni á svæði áætlaðs fangelsis. „Við erum í viðræðum við eig- endur lóðarinnar og ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en að þetta fari mjög vel,“ segir Ágúst. „Þetta er smá skiki sem við erum að tala um, einungis lítil prósenta af jörðinni, sem Reykjavíkurborg mun líklega kaupa af eigendum.“ Jón G. Briem er einn af tíu skráðum lóðareigendum Vilborg- arkots og segir hann að viðræður við Reykjavíkurborg gangi vel. Ekki hefur þó verið gengið frá samningum að fullu. Stefnt er að því að bjóða verkið út síðar í mánuðinum. Um 35.000 fermetrar fara undir lóðina. sunna@frettabladid.is Aukakostnaður við fangelsi 584 milljónir Áætlaður aukakostnaður vegna staðsetningar fangelsis á Hólmsheiði er 26,2 milljónir á ári, sé miðað við fjarlægð frá Reykjavík. Ólíklegt að fangelsi muni rísa lengra frá höfuðborgarsvæðinu þó að útboð verði ekki bundið við Hólmsheiði. HÓLMSHEIÐI Í BLÓMA Um 35 þúsund fermetrar eru áætlaðir undir fangelsið á Hólmsheiði, sem liggur 55 kílómetra utan Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kostnaður á ári - miðað við 55 km frá Hólmsheiði Atriði Milljónir króna Yfirheyrslur 13,4 Túlkar 3,6 Flutningur 4,5 Lögmenn 4,7 Alls 26,2 Miðað við gefnar forsendur er heildar- kostnaðaraukinn við að byggja fangelsið á sambærilegum stað og í sambærilegri fjarlægð og Litla-Hraun er frá höfuð- borgarsvæðinu 26,2 milljónir króna á ári. Það samsvarar 584 milljónum króna yfir nýtingartíma fangelsisins sem er 40 ár. miðvikudaginn 6. apríl islandsstofa.is Borgartún 35 | 105 Reykjavík Benedikt Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Moskvu, verður til viðtals miðvikudaginn 6. apríl. Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðsins þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði. Auk Rússlands eru umdæmislönd sendiráðsins: Armenía, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgisía, Moldóva, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan. Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Íslandsstofu, Borgartúni 35, og má bóka þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti, islandsstofa @islandsstofa.is. Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson, andri@ islandsstofa.is og Hermann Ottósson, hermann@ islandsstofa.is. Viðtals- tímar sendiherra Íslands í Moskvu Bentu í austur landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4000 eða stofnaðu til reglubundins sparnaðar í Einkabankanum á landsbankinn.is. „ Ég held að maður verði bara að byrja einhvers staðar, byrja á þúsundkallinum.“ Reglubundinn sparnaður er ein besta leiðin til að spara. Þú setur þér skýr markmið og ákveður hve háa upphæð þú vilt spara mánaðarlega. Byrjaðu að spara strax í dag. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA N B I H F . ( L A N D S B A N K I N N ) , K T . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.