Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 16
16 5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR
Ég ætla að samþykkja Icesave-samninginn í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 9. apríl. Ástæðan er
einföld, jafnvel þótt málið sé flók-
ið. Samningaleiðin er farsælli fyrir
þjóðina en svokölluð dómstóla-
leið. Samningaleiðin leiðir til lykta
ágreining við vinaþjóðir okkar. Í
henni felst engin uppgjöf, heldur
skynsemi og breytni sem er sið-
ferðislega sterk. Ég er sannfærður
um að samninganefnd Lee Bucheit
náði í desember eins góðum samn-
ingum og kostur var á. „Nei“ þann
níunda apríl hleypir af stað ára-
löngum málaferlum. Hætt er við að
það leiði til kyrrstöðu og mikillar
óvissu næstu árin. Það mun rýra
lífskjör almennings í landinu og
draga enn meir úr tiltrú erlendra
fjárfesta og lánardrottna á íslensku
efnahagslífi. Dómstólaleiðin verður
dýrkeypt.
Margir spyrja sig „Af hverju á ég
að taka á mig skuldir einkabanka?“.
Svarið er að samningurinn kemur
einmitt í veg fyrir það. Hann er
samkomulag um að eignir þrota-
bús gamla Landsbankans gangi upp
í skuldbindingar Tryggingarsjóðs
innistæðueigenda og fjárfesta.
Þessar skuldbindingar snúast um
lágmarkstyggingar fyrir sparifé
fólks í öllum útibúum Landsbank-
ans. Þar sem eignir Trygging-
arsjóðs dugðu ekki til að greiða
sparifjáreigendum í útibúunum í
Bretlandi og Hollandi, voru trygg-
ingarnar greiddar af þarlendum
yfirvöldum. Sem stofnandi Trygg-
ingarsjóðsins ábyrgist ríkissjóður
aðeins vaxtagreiðslur og uppgjör ef
eitthvað verður enn eftir af skuld-
bindingum sjóðsins þegar búið er
að borga úr búi Landsbankans árið
2016.
Það er umdeilt meðal íslenskra
lögfræðinga hvort Íslendingum beri
lagaleg skylda til að ábyrgjast lág-
marksgreiðslurnar. Eftirlitsstofnun
EFTA hefur hins vegar gefið út það
álit að Ísland beri ábyrgð á því að
íslenska innistæðutryggingarkerfið
geti staðið við lögbundna lágmarks-
tryggingu sparifjáreigenda í öllum
útibúum íslensku bankanna. Allar
nágranna- og vinaþjóðir okkar
munu vera sömu skoðunar. Fyrir
þeim vegur jafnræðisreglan þungt.
Íslensk stjórnvöld bættu íslensk-
um sparifjáreigendum í útibúum
Landsbankans upp tap sitt en ekki
útlenskum sparifjáreigendum í
útibúunum. Þau gerðu greinarmun
á Íslendingum og útlendingum.
Það kann að vera skiljanlegt út frá
sjónarmiði landlægrar þjóðernis-
hyggju en siðferðislega er það
forkastanlegt.
Hvað siðferðisþáttinn varðar er
gamalt og gott ráð að setja sig í spor
annarra. Snúum dæminu við, eins
og Hallgrímur Helgason gerði um
daginn. Segjum að breskur banki
hefði stofnað útibú hér á landi, lofað
háum vöxtum og fjöldi Íslendinga
hefði sett sparifé sitt inn á þessa
reikninga, enda hefðu breskir ráða-
menn og breski seðlabankastjórinn
farið lofsorði um bankann og hrós-
að innlánastefnu hans sérstaklega.
Það þarf ekki að halda áfram með
dæmið en það gleymist stundum í
umræðunni að Tryggingarsjóður
innistæðueigenda er hugsaður til
koma í veg fyrir að fólk tapi öllu
sparifé sínu í bankahruni og fái
ekkert bætt. Sumir andstæðing-
ar samningsins hafa gengið mjög
langt og kallað þá sem vilja stað-
festa hann í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni lyddur og gungur. Slíkur mál-
flutningur einkennist annaðhvort af
örvæntingu eða oflæti.
Við höfum reynslu af því að
oflætið hjálpar okkur Íslending-
um ekki neitt. Örvæntingin gerir
það ekki heldur. Við þurfum held-
ur ekki að örvænta. Við staðfestum
góðan samning við vinaþjóðir okkar
Breta og Hollendinga, rjúfum kyrr-
stöðuna, eyðum óvissunni og höld-
um vongóð áfram inn í framtíðina.
Eyðum óvissunni – segjum já
Icesave
Hjálmar Sveinsson
varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
Kæri Ragnar. Við biðlum til þín um að sýna miskunn og mann-
úð og sjá til þess að öllum börnum
með þroskahömlun standi til boða
skólavist í sérskóla. Ekki bara
sumum. Við gerum athugasemd-
ir við skýringar frá menntasviði
á þrengdum inntökuskilyrðum í
Öskjuhlíðarskóla:
1. Sagt er að ný inntökuskilyrði í
Öskjuhlíðarskóla séu ekkert annað
en staðfesting á því hvernig nem-
endahópurinn sé nú.
Þetta er ekki rétt. Í skólanum eru
börn sem falla utan ramma núgild-
andi skilyrða. Auk þess hefur börn-
um verið synjað um skólavist á
forsendum nýju skilyrðanna.
2. Sagt er að þróunin sé og verði
sú að börn með þroskahömlun gangi
í almennan skóla.
Af hverju er menntasviðið svona
visst um þessa þróun? Er það af
því að það sér fram í tímann eða
af því að það telur sig hafa fundið
hina einu sönnu menntastefnu um
aldur og ævi? Hvorugt getur talist
boðlegt. Foreldrar hljóta að eiga að
koma að þessari þróun.
3. Sagt er að „skóli fyrir alla“ sé
stefna borgarinnar í skólamálum.
Sú stefna felur ekki í sér að það
megi eða eigi að meina þroskaheft-
um börnum um skólavist í sérskóla.
Það er hins vegar brot á grunn-
skólalögum að bjóða þessum sömu
börnum hvorki upp á sérdeild né
sérskóla (sjá 17. grein grunnskóla-
laga frá 2008 og 2. grein reglugerð-
ar frá 2010 um nemendur með sér-
þarfir) og það stríðir gegn 76. grein
stjórnarskrárinnar um rétt allra til
fræðslu við sitt hæfi.
4. Sagt er að mörg lönd í kringum
okkur hafi tekið upp þessa stefnu.
Sú staðreynd að einhver hallist
að einhverri stefnu eru ekki næg
rök fyrir því að hún sé alls staðar
og alltaf við hæfi. Það verður að
vera sveigjanleiki í kerfinu og eins
verður að svara málefnalegum
rökum þegar þau eru borin fram,
sérstaklega þegar reynslan sýnir að
hlutirnir ganga ekki upp og mörg
þroskaskert börn njóta sín ekki sem
skyldi í almennum skólum. Með
samanburði við önnur lönd má þó
benda á að yfirvöld í Noregi, sem
fóru með þessa stefnu yfir strikið
fyrir um það bil tveimur áratug-
um, eru að átta sig á mistökunum
og þar er nú rætt um að endurreisa
sérskóla. Þá eru sérskólar víða ann-
ars staðar við lýði, til dæmis í Hol-
landi ganga um það bil 9,6% barna
í sérskóla vegna hverskyns náms-
örðugleika og þar þykja sérskólar
sjálfsögð og eðlileg þjónusta.
5. Sagt er að almenni skólinn
muni ekki sinna þroskahömluðum
börnum af alvöru meðan sérskólar
séu í boði.
Þessi skýring gefur til kynna að
fólk í almennum skólum hafi ekki
trú á sérskólalausu skólakerfi, en
jafnframt að búið sé að ákveða nið-
urstöðuna og það eigi að þvinga fólk
til fylgilags við hana. Geta það tal-
ist boðleg lýðræðisleg vinnubrögð?
Ef þú lumar á góðum og gildum
rökum fyrir því að meina þroska-
heftum börnum um skólavist í sér-
skóla fyrir þroskahefta, viljum við
gjarnan fá að heyra þau. Annars
biðjum við þig vinsamlegast að leið-
rétta inntökuskilyrði í Öskjuhlíðar-
skóla þannig að öll þroskaheft börn
hafi aðgang að skólanum, ekki bara
sum.
Opið bréf frá
foreldrum til fræðslustjóra
Sérskólar
Ásta Kristrún
Ólafsdóttir,
Jóna Á. Gísladóttir,
Nick A. Cathcart-
Jones,
Róbert Jack og
Svafa Arnardóttir
foreldrar barna með
þroskahömlun
AF NETINU
Alíslensk reiði
Það er ekki bara í drykkjuveislum sem rökræður eru stundaðar með þessum
hætti, heldur sér maður dæmi þess alla leið inn á Alþingi. Engin miðja er til,
menn eru annaðhvort með eða á móti og síðan er barist á banaspjótum,
málefnin verða mjög fljótt persónuleg og öllum brögðum er beitt til að hafa
andstæðinginn undir.
Rökræður á Íslandi eru því alltaf í formi glímu. Á hinn bóginn stunduðu for-
feður okkar sína glímu á Alþingi með þeim hætti að þeir byrjuðu á að handsala
hvor öðrum grið, og þótti það mikið níðingsverk að láta kné fylgja kviði. Var
þetta einmitt gert til að tryggja að leikurinn yrði ekki of persónulegur og leiddi
ekki til mannvíga utan vallar. Kannski er kominn tími til að fylkingar á Íslandi
handsali hvor öðrum grið, og jafnvel, einhvern daginn, læri að hafa það sem
sannara reynist?
Valur Gunnarsson dv.is/blogg/skotgrofi n
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
VITA er lífið
Alicante
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti
Verð frá 66.500 kr.
Innifalið: Flug fram og til baka og flugvallarskattar.
Vikulegt flug frá 14. apríl til 6. okt. 2011.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
V
IT
5
44
08
0
3/
11
Áfram-hópurinn eru þverpólitísk grasrótarsamtök fólks
sem telur að best sé fyrir okkur að ljúka Icesave málinu með samþykkt fyrir-
liggjandi samnings í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl nk. Starf hópsins byggir
á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja og sjálfboðavinnu fjölda fólks.
Ég segi já af því að
ég vil að hjól atvinn
u-
lífsins fari að snúast
.
Sigurlaug Anna
Jóhannsdóttir
www.afram.is
„
“
Já er leiðin áfram!