Fréttablaðið - 05.04.2011, Side 17

Fréttablaðið - 05.04.2011, Side 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN É g hef verið viðriðinn íþróttir frá því ég man eftir mér. Ég hef verið þjálfari, liðsstjóri og flokksstjóri á landsmótum UMFÍ í gegnum tíðina en aldrei verið kepp- andi,“ segir Flemming Jessen, fyrrver- andi skólastjóri. Hann stefnir á að taka þátt á fyrsta landsmóti Ungmenna- félags Íslands fyrir fólk eldra en 50 ára, sem haldið verður á Hvamms- tanga dagana 24.-26. júní í umsjá Ungmennasambands Vestur- Húnvetninga. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru golf, pútt, sund, frjálsar, blak, hestaíþróttir, þríþraut, bridds, boccia, skák, línudans, hjólreiðar og starfsíþróttir. Sjálfan langar Flemming að taka þátt í boccia, bridds, pútti og sundi en á sínum yngri árum stundaði hann frjálsar og sund. „Allir sem vilja og hafa heilsu til mega vera með,“ upplýsir Flemming, sem kemur einnig að skipulagningu mótsins og er í Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra. Ungmennafélagsandinn mun svífa yfir vötnum á Hvamms- tanga og meginmarkmiðið er að fólk taki þátt en minni áhersla er lögð á keppnina sem slíka. „Enda stuðlar öll hreyfing að aukinni lífsfyllingu,“ segir Flemming. Fyrir utan keppni í hinum ýmsu greinum verður boðið upp á fræðsluerindi og fyrirlestra auk þess sem slegið verður upp balli. solveig@frettabladid.is Flemming Jessen (64) tekur þátt í fyrsta landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri sem haldið verður í júní. Stuðlar að lífsfyllingu Krabbamein er algengasta dánarorsök í heimi en talið er að þrjátíu prósent krabbameinstilfella megi fyrirbyggja. Helstu áhættuþættir eru reyk- ingar, áfengisneysla, offita og slæmt mataræði. Sölustaðir: 10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál M eirapró f U p p lýsin gar o g in n ritun í s ím a 5670300

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.