Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 18
5. 2
GRÆNN APRÍL
Árangur af endurlífgunum utan
sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu
á árunum 2004-2007 var umfjöll-
unarefni erindis sem flutt var á
vísindaþingi skurð-, svæfingar-
og gjörgæslulækna dagana 1. til 2.
apríl. Brynjólfur Mogensen, yfir-
læknir á bráðasviði Landspítala,
kom að rannsókninni, sem leiddi
margt áhugavert í ljós.
„Af þeim sjúklingum sem kom-
ust lifandi á Landspítala eftir end-
urlífgun vegna hjartaáfalls útskrif-
aðist fjórðungur lifandi. Það er
betri árangur en
í nánast öllum
öðrum löndum,
þar sem árang-
urinn er yfirleitt
tíu til fimmtán
prósent,“ segir
Brynjólfur og
bætir við að leit-
un sé að öðrum
eins árangri.
Ástæður
þessa góða árangurs eru marg-
þættar að mati Brynjólfs. Hann
nefnir stuttan útkallstíma, gott
starfsfólk á neyðarbíl, algengi far-
símaeignar Íslendinga sem stytti
boðunarkerfið og góða þjónustu
á Landspítala. „Til dæmis var á
þessum tíma farið að kæla niður
sjúklinga sem lentu í hjartaáfalli.
Það breytti meðferðinni til hins
betra og minnkaði auk þess líkur
á heilaskemmdum hjá þeim sem
lifa,“ segir Brynjólfur og bætir
við að ein af afleiðingum hjarta-
áfalls geti verið skortur á súrefni
til heila, sem geti leitt til heila-
skemmda. Þá var einnig komið á
hjartaþræðingarvakt.
Eitt höfuðatriðið í hinum góða
árangri er einnig hátt hlutfall
grunnendurlífgunar, en í 62 pró-
sentum tilvika reyndu sjónarvottar
endurlífgun fyrir komu neyðarbíls.
„Grunnendurlífgun á Íslandi er
með því hæsta sem gerist í heimin-
um,“ segir Brynjólfur. Hann telur
Íslendinga vel upplýsta um fyrstu
hjálp og það verði til þess að auð-
velda endurlífgun og auka hlutfall
þeirra sem lifi.
Brynjólfur segir að rannsókn-
in hafi verið gerð yfir tímabil þar
sem náið samstarf hafi verið milli
læknis á neyðarbíl og sjúkraflutn-
ingsmanna. Í byrjun árs 2008 var
ákveðið að fella þá þjónustu niður
og því var ekki lengur læknir í
neyðarbílnum.“ Hann segir ekki
vitað hvort árangurinn hafi breyst
við breytinguna. „Sjúkraflutninga-
aðilar á höfuðborgarsvæðinu eru
vel menntaðir og margir hafa farið
í framhaldsnám og kunna sitt verk.
Rannsókn mun leiða í ljós hvort við
breyttum rétt.“ solveig@frettabladid.is
Góður árangur endurlífgana
Hlutfall þeirra sem lifa af og útskrifast af Landspítala eftir hjartaendurlífgun er með því hæsta sem gerist í heiminum. Íslendingar eru vel
upplýstir um fyrstu hjálp að sögn Brynjólfs Mogensen yfirlæknis. Kælingarhlutfall, stuttur útkallstími og algengi farsíma skiptir máli.
Brynjólfur
Mogensen Íslendingar eru að sögn Brynjólfs upplýstari en margar aðrar þjóðir um hjartahnoð
og fyrstu hjálp. NORDICPHOTOS/GETTY
■ Af 290 einstaklingum í hjarta-
stoppi var reynd endurlífgun hjá
280. Af þeim 193 tilvikum þar sem
hjartasjúkdómur var talinn orsök
voru karlar 75%, konur 25% og
meðalaldur var 65,1 ár. Lifandi á
sjúkrahús komust 108 sjúklingar
(56%) og 49 (25,4%) útskrifuð-
ust af sjúkrahúsi. Í 62% tilvika var
grunnendurlífgun beitt fyrir komu
neyðarbíls.
Hreyfing stuðlar að betri líðan og dregur úr sjúkdómshættu langt fram eftir
aldri. Staðreyndin er engu að síður sú að við 75 ára aldur er einn þriðji karla
og helmingur kvenna alveg hættur að hreyfa sig.
Fyrstu grænu skrefin:
● Skipuleggðu innkaupin og farðu í færri
innkaupaferðir vikulega.
● Farðu gangandi í vinnuna einn dag í viku eða
notaðu almenningssamgöngur.
● Farðu með börnin í göngutúr á sunnudegi í
stað þess að fara í bíltúr.
● Skilaðu öllum dósum og
flöskum til endurvinnsu.
● Flokkaðu dagblöð
og skilaðu þeim til
endurvinnslu.
● Fáðu þér endurvinnslutunnu.
www.graennapril.is
Skeifunni 3j · Sími 553 8282 · www.heilsudrekinn.is
Jafnvægi fyrir líkama og sál
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
ÍSLENSKT
HUNDANAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
gott í þjálfun og í leik
VINSÆLVARA
Námskeiðin verða haldin í Heilsuhúsinu Lágmúla 5. Hægt er að skrá sig á
lagmuli@heilsuhusid.is eða í síma 578 0300 milli kl. 10 -18 virka daga. Verð kr. 4.500.
Ath! Takmarkaður fjöldi.
Námskeið um ræktun
matjurta og kryddjurta með lítilli fyrirhöfn!
Þessum spurningum og mörgum
fleiri verður svarað á námskeiðinu:
HEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR kennir hve auðvelt er að rækta grænmeti og kryddjurtir
• Hvernig á að sá og forrækta?
• Hvernig er plantað út?
• Hvernig fá plöntur næringu?
• Hvað þarf til að fá uppskeru
allt sumarið?
• Hvaða jurtir eru fjölærar?
Miðvikudaginn 13. apríl kl. 19:30 - 22:15
Miðvikudaginn 27. apríl kl. 19:30 - 22:15
10%OG AÐ AUKI
SÉ GREITT Í EINU LAGI VIÐ PÖNTUN
AF ÖLLUM INNRÉTTINGUM
AFSLÁTTUR25%