Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 19
Jógatímum í World Class hefur fjölgað ár
frá ári enda er eftirspurnin sífellt meiri.
Tímaúrvalið er fjölbreytt og iðkendur
eru af báðum kynjum og með alls kyns
bakgrunn.
Jógakennarinn Brynjúlfur Jónatansson hefur
kennt jóga í World Class í á tíunda ár og merk-
ir talsverðar breytingar á jógaiðkun lands-
manna. „Þegar ég var að byrja vorum við með
fimm tíma í viku og voru þátttakendur í hverj-
um tíma á bilinu tíu til þrjátíu. Í dag bjóðum við
upp á tuttugu jógatíma í Laugum og yfir þrjá-
tíu tíma í allt,“ segir Brynjúlfur eða Billi eins
og hann er kallaður.
Hann segir aukna eftirspurn kalla á aukið
framboð og að áhuginn sé mikill. „Ég held að
þetta skýrist meðal annars af því að fólk kann
að meta það að geta farið í jóga inni á líkams-
ræktarstöð og margir stunda það samhliða
hlaupum, lyftingum og öðrum tímum. Þegar
ég var að byrja tengdi fólk jógaiðkun svolít-
ið við sérstaka reykelsismettaða staði og fólk-
ið sem stundaði jóga var jafnvel álitið skrýtið.
Það hefur breyst og með því að bjóða upp á það
á líkamsræktarstöðvum opnast dyr fyrir alla.“
Billi segir sérstöðu World Class vera mikið
úrval fjölbreyttra tíma. „Við erum með power
jóga, hot jóga og flæðijógatíma, sem eru allir
nokkuð krefjandi, en líka rólegri hádegis- og
kvöldtíma. Þá erum við með sérstaka jógatíma
fyrir hlaupara, svo dæmi séu nefnd, en þeir eru
sérsniðnir fyrir hlaupahóp í World Class.“ Billi
segir konur meirihluta iðkenda en að karlarn-
ir sæki sífellt í sig veðrið. „Ég hugsa að sjötíu
prósent þeirra sem sækja tímana séu konur en
ég er þó að fá karlmenn á öllum aldri. Margir
þeirra hafa verið í tækjunum og eru orðnir
sterkir og stífir og veitir ekki af teygjunum. Ég
fæ líka talsvert til mín af íþróttafólki innan um
aðra.“ Billi segir nokkuð um að fólk með bak-
verki sæki jóga enda ganga margar stöðurnar
út á að styrkja vöðvana í kringum hrygginn.
En hver er helsti ávinningurinn af því að
stunda jóga? Ég held að það sé aðallega aukin
líkamsvitund. Tilfinningin í skrokknum verð-
ur betri og við beitum okkur betur í daglegu
lífi. Við njótum betur þess sem er þægilegt og
gerum okkur frekar grein fyrir því þegar við
festumst í vondri líkamsstöðu eins og fyrir
framan tölvu. Þá held ég að mörgum þyki slök-
unin mikilvæg. Fólk æfir sig í að slaka á í
amstri dagsins, sem smitar út í allt annað.“ Billi
tekur fram að allir jógatímar í World Class séu
í opinni stundaskrá og því hafi allir korthafar
frjálsan aðgang.
Helsti ávinningurinn
er aukin líkamsvitund
Brynjúlfur hefur kennt jóga í World Class í á tíunda ár og hefur iðkendum fjölgað mikið á þeim tíma. Það virðist kærkomið að geta stundað jóga í líkamsræktarstöð í bland við
aðra hreyfingu. MYND/STEFÁN
Jógafróðleikur
Jóga gengur út á jafnvægi.
Unnið er jafnt með báðar hlið-
ar, bak og kvið.
Gott er að mæta í þægilegum
og mjúkum fatnaði í jógatíma.
Látið líða meira en klukkutíma
frá máltíð og þangað til farið er
í tíma.
Í heitu tímunum er mikilvægt
að drekka mikinn vökva og
bæta sér upp steinefnatap sem
verður þegar líkaminn svitn-
ar með því að borða stein-
efnaríkan mat. Grænmeti og
grænmetissafar eru tilvaldir.
Mælt er með því að skilja
keppnisskapið eftir fyrir utan
tímann. Það ættu allir að geta
lagað æfingarnar að sér og ef
einhverjir líkamshlutar eru
viðkvæmir skyldi fara var-
lega, sleppa æfingum eða halda
stöðunum skemur. Hver æfir á
sínum hraða.
World Class er með níu stöðvar
á höfuðborgarsvæðinu. Mesta
jógatímaúrvalið er í Laugum og
á Seltjarnarnesi en auk þess eru
jógatímar í Ögurhvarfi, Spöng
og Mosfellsbæ.
Jóga eykur líkamsvitund, sem
smitast út í allar athafnir daglegs lífs.
FJÖLBREYTT JÓGA Í WORLD CLASS
JógaHot Yoga
Hádegisjóga
Hot Vinyasa
Nánari uppllýsingar á worldclass.is eða í síma 553-0000
Rope Yoga
Slökunarjóga
Kraftjóga
Jóga fyrir hlaupara
JÓGA SÉRBLAÐ | ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL | KYNNING