Fréttablaðið - 05.04.2011, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
Body Control Pilates hentar þeim sem
vilja styrkja og endurmóta vöðvana.
Heitt jóga og heitt djúpvöðva
fitness eru á meðal vinsælla
námskeiða í boði hjá
Hreyfingu.
Hreyfing í Glæsibæ býður fjöl-
breytt úrval af æfingatímum til
að koma til móts við þarfir við-
skiptavina sinna. Þeir sem leggja
upp úr vellíðan, svokallaðir „well-
ness“ tímar, njóta nú vaxandi vin-
sælda að sögn Önnu Eiríksdóttur,
deildarstjóra þolfimi hjá Hreyfingu.
„Þessir tímar hafa hreinlega
slegið í gegn eftir að við hjá Hreyf-
ingu tókum í notkun nýjan og glæsi-
legan sal sem er hægt að hita upp
í 40 gráður,“ segir Anna og tekur
heitt jóga sem dæmi um æfingar
sem hafa átt miklum vinsældum að
fagna. „Í heitu jóga er markvisst
unnið að því að styrkja og liðka lík-
amann með eigin líkamsþyngd í
jógastöðum í 39 til 40 gráða hita.
Hitinn gerir fólki kleift að komast
dýpra í stöðurnar og þannig næst
þessi góði árangur. Það kemur
hreinlega endurnært úr hverjum
tíma,“ bendir hún á og bætir við að
í boði séu bæði opnir tíma og lokuð
námskeið.
Bjargey Aðalsteinsdóttir og
Þóra Hlín Friðriksdóttir hafa um-
sjón með lokuðu námskeiðunum,
sem fara fram tvisvar í viku í sex
vikur í senn. Það veitir aðgang að
heilsulindinni, tækjasalnum, öllum
opnum tímum, heitum pottum og
gufuböðum. Einnig fylgir vatns-
brúsi og baðhandklæði í upphafi
hvers tíma.
HEITT DJÚPVÖÐVA FITNESS
Þá býður Hreyfing upp á glænýtt
æfingakerfi í sömu línu sem er
sérsniðið fyrir konur. „Það kallast
heitt djúpvöðva „fitness“ eða „HD
fitness“ og er ætlað þeim sem þykir
tónaður líkami og tígulegt fas eftir-
sóknarvert,“ segir Anna, en kerfið
byggir á rólegum styrktar æfingum
og djúpum teygjuæfingum sem
fara fram í heitum sal.
„Áherslan er að styrkja djúp-
vöðva í kvið og baki og lengja og
styrkja alla helstu vöðva líkam-
ans með djúpum teygjuæfingum,
en eingöngu er unnið með eigin
líkamsþyngd,“ segir hún og getur
þess að stjörnur á borð við Jenni-
fer Aniston og Gwyneth Palthrow
hafi iðkað þær með góðum
árangri.
Tónaður líkami
Anna segir iðkendur heits jóga koma endurnærða úr hverjum tíma.
„Þetta hentar þeim sem vilja end-
urmóta líkama sinn og styrkja
vöðvana í leiðinni,“ segir Anna
Eiríksdóttir um námskeiðið Body
Control Pilates, sem Hreyfing
býður upp á.
Námskeiðið byggir á styrkt-
aræfingum, liðleikaæfingum og
hreyfingu sem miða að því að
styrkja bak, mitti og kvið og end-
urbyggja jafnvægi líkamans.
Anna segir námskeiðið henta þeim
sem vilja þjálfa granna og langa
vöðva.
„Þetta æfingakerfi hentar bæði
konum og körlum, byrjendum og
lengra komnum,“ bendir hún á
og bætir við að æfingarnar hafi
sálrænan ávinning í för með sér.
„Fólk hefur haft orð á því að þær
dragi úr streitu jafnt og stífleika
og verkjum.“
Heilbrigð sál í
hraustum líkama
● Á HREYFING.IS hefur fjöldi
viðskiptavina látið ánægju sína í
ljós með HD fitness námskeiðin.
„Hef aldrei farið á námskeið sem
gjörsamlega nær mér alveg. Yfir-
leitt þegar ég hef skráð mig á
námskeið þá er ég farin að bíða
eftir að það klárist þegar það
er rétt hálfnað! En núna bíð ég
eftir æfingadögunum. Anna og
Ágústa eru frábærir kennarar og
það er mjög gott að vera í tíma
hjá þeim. Tónlistin er góð og æf-
ingarnar krefjandi. Ég varð strax
betri í bakinu eftir 3 tíma sem er
frábært! Takk fyrir mig, ég kem
aftur á svona námskeið ef það er
í boði.“
& TÍGULEGT FAS