Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 2
6. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR2
EKVADOR, AP Stjórnvöld í Ekva-
dor hafa rekið úr landi Heather
Hodges, sendiherra Bandaríkj-
anna, vegna
þess að hún
sagði fyrrver-
andi lögreglu-
stjóra landsins
vera spilltan.
Þetta sagði
hún í trúnað-
arskýrslu frá
sendiráðinu til
utanríkisráðu-
neytis Banda-
ríkjanna. Skjalið var birt á vef-
síðu Wikileaks eins og þúsundir
annarra leyniskjala bandarískra
sendiráða víða um heim.
Ricardo Patino, utanríkisráð-
herra Ekvadors, kallaði Hodges
á sinn fund á mánudag, en hún
heyrði þó ekki af brottrekstri
sínum fyrr en opinber tilkynning
um hann var gefin út í gær. - gb
Haukur, ertu enn með
á nótunum?
„Ég vona það. Maður reynir að
tryggja að maður sé það.“
Orgelleikarinn Haukur Guðlaugsson lætur
áttræðisaldurinn ekki aftra sér frá því að
spila á hljóðfærið sitt á hverjum degi.
LÖGREGLUMÁL Karlmaður um
fimmtugt sem situr í gæsluvarð-
haldi, grunaður um að hafa beitt
son sinn á áttunda ári grófri kyn-
ferðislegri misnotkun, á að baki
langan sakaferil og hefur meðal
annars verið dæmdur fyrir ofbeld-
isbrot. Frændi föðurins sætir einn-
ig gæsluvarðhaldi, grunaður um
sömu brot.
Mennirnir voru handteknir
fyrir síðustu helgi og úrskurðaðir
í gæsluvarðhald, sem rennur út í
dag, eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær. Þeir verða yfirheyrðir í
dag og í framhaldinu tekin ákvörð-
un um hvort lögð verður fram
krafa um framlengingu gæslu-
varðhalds yfir þeim.
Við handtökur mannanna var
húsleit gerð á heimilum þeirra og
hald lagt á tölvubúnað. Marijúana
og hvítt efni, sem grunur leikur
á að sé kókaín, fannst við leitina.
Lögregla vann að því í gær að leita
í tölvum mannanna, en grunur
leikur á að þar sé að finna mynd-
ir af börnum, þar á meðal syni
mannsins, sem sýna þau á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt.
Þeirri leit var ekki lokið þegar
fréttin var skrifuð.
Foreldrar drengsins eru skilin
og dvaldi drengurinn stundum
hjá föður sínum um helgar. Talið
er að þá hafi kynferðisbrotin gegn
barninu átt sér stað. Talið er að
þau hafi verið mjög gróf og átt sér
stað í nokkurn tíma. Málið barst
ofbeldisbrotadeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu frá barna-
verndarnefnd Kópavogs.
Í fréttum Bylgjunnar í gær kom
fram að móðir drengsins og stjúpi
hans hafi þurft að flýja heimili
sitt með drenginn og börn sem
þau eiga saman vegna hótana frá
mönnunum tveimur, sem nú sitja
bak við lás og slá. Þau vildu ekki
tjá sig um málið við Fréttablaðið.
Faðirinn, sem grunaður er um
að hafa brotið gegn drengnum,
hefur hlotið tíu refsidóma, þar á
meðal fyrir líkamsárásir, fjár-
svik, fíkniefnalagabrot og fleira.
Síðast var hann dæmdur í fang-
elsi á árinu 2007 fyrir að ráðast á
móður drengsins og föður hennar.
Þá sparkaði hann í og skemmdi bíl
afa drengsins.
jss@frettabladid.is
Sat inni fyrir árás á
móðurina og afann
Faðirinn sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa beitt son sinn á átt-
unda ári kynferðislegu ofbeldi, hefur verið dæmdur fyrir ofbeldisverk. Síðast
var hann dæmdur árið 2007 fyrir að ráðast á móður drengsins og föður hennar.
LÖGREGLUSTÖÐIN Á HVERFISGÖTU
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun
yfirheyra mennina tvo í dag.
STJÓRNMÁL Á fundi sínum á Ísafirði í gær sam-
þykkti ríkisstjórnin sextán verkefni sem eiga að
efla byggð og atvinnusköpun í landshlutanum.
Samtals á að leggja um 5,4 milljarða króna í
þessi verkefni, en af þeirri fjárhæð eru 1,5 millj-
arðar nýtt fé.
Í tilkynningu frá stjórninni hafa þessi verkefni
verið undirbúin í samvinnu allra ráðuneyta og í
samráði við heimamenn.
„Verkefnin snúa meðal annars að menntun, vel-
ferð, umhverfismálum og auknum framkvæmd-
um í vegagerð og snjóflóðavörnum,“ segir í til-
kynningunni.
„Ætlunin er að fylgja verkefnunum eftir á
samráðsvettvangi stjórnvalda og sveitarfélaga
með það að markmiði að ábyrgð þeirra færist í
auknum mæli heim í hérað. Sú vinna tengist gerð
sóknaráætlana landshluta og markmiðum sem
sett eru fram í stefnumarkandi skjali stjórnvalda,
Ísland 2020.“
Stærstur hluti fjárins fer í vegagerð, eða 4,3
milljarðar, en einn milljarður fer í ofanflóðavarn-
ir á Vestfjörðum.
Afgangurinn, um 102 milljónir króna, fer í
ýmis verkefni, svo sem uppbyggingu í mennta-
málum og rannsóknum, aukið framlag til
Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, stofnun Látra-
bjargsstofu og til að tryggja rekstur Melrakka-
seturs.
Þá verður sett fé í öldrunarþjónustu og ýmis
átaksverkefni til atvinnusköpunar. - gb
Ríkisstjórnin leggur fé í vegagerð, ofanflóðavarnir og ýmis átaksverkefni:
Fimm milljarðar til Vestfjarða
FRÁ FUNDINUM Ríkisstjórnarfundur var haldinn á Ísafirði í gær.
MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
M
EST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
Sími: 512 5000
Þriðjudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
5. apríl 2011
79. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
É g hef verið viðriðinn íþróttir frá því ég man eftir mér. Ég hef verið þjálfari, liðsstjóri og flokksstjóri á landsmótum UMFÍ í gegnum tíðina en aldrei verið kepp-andi,“ segir Flemming Jessen, fyrrver-andi skólastjóri. Hann stefnir á að taka þátt á fyrsta landsmóti Ungmenna-félags Íslands fyrir fólk eldra en 50 ára, sem haldið verður á Hvamms-tanga dagana 24.-26. júní í umsjá Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga.Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru golf, pútt, sund, frjálsar, blak, hestaíþróttir, þríþraut, bridds, boccia, skák, línudans, hjólreiðar og starfsíþróttir. Sjálfan langar Flemming að taka þátt í boccia, bridds, pútti og sundi en á sínum yngri árum stundaði hann frjálsar og sund. „Allir sem vilja og hafa heilsu til mega vera með,“ upplýsir Flemming, sem kemur einnig að skipulagningu mótsins og er í Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra.Ungmennafélagsandinn mun svífa yfir vötnum á Hvamms-tanga og meginmarkmiðið er að fólk taki þátt en minni áhersla er lögð á keppnina sem slíka. „Enda stuðlar öll hreyfing að aukinni lífsfyllingu,“ segirFlemmin
Flemming Jessen (64) tekur þátt í fyrsta landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri sem haldið verður í júní.Stuðlar að lífsfyllingu
Krabbamein er algengasta dánarorsök í heimi
en talið er að þrjátíu prósent krabbameinstilfella
megi fyrirbyggja. Helstu áhættuþættir eru reyk-
ingar, áfengisneysla, offita og slæmt mataræði.
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunaðir um kynferðislega misnotkun á ungum dreng. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldis-brotadeildar lögreglunnar á höfuð-borgarsvæðinu. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um efnisatriði málsins þegar eftir því var leitað að öðru leyti en því að mennirnir hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 6. apríl næstkomandi.Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst barst málið til lög-reglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá Barnaverndarnefnd Kópavogs. Mennirnir, sem eru á fertugsaldri
og um fimmtugt, voru handtekn-ir síðastliðinn fimmtudag. Hús-leitir voru gerðar heima hjá þeim báðum að fengnum úrskurði dóm-ara. Á báðum heimilunum fund-ust fíkniefni, bæði maríjúana og hvítt efni sem talið er vera kókaín. Þá var lagt hald á tölvur beggja mannanna vegna gruns um að í
þeim sé að finna myndir sem sýna börn, þar á meðal unga drenginn, á klámfenginn og kynferðislegan hátt. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald skömmu eftir að þeir voru handteknir.
Samkvæmt heimildum Frétta-blaðsins leikur grunur á að dreng-urinn, sem er átta ára gamall, hafi sætt kynferðislegri misnotkun af hálfu mannanna í einhvern tíma og að brotin hafi verið mjög gróf. Annar mannanna, sá um fimm-tugt, er faðir drengsins en hinn maðurinn er vinur föðurins, sam-kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
- jss
Taldir hafa misnotað
lítinn dreng gróflegaFaðir átta ára drengs og vinur föðurins sitja í varðhaldi grunaðir um að hafa beitt drenginn mjög grófri misnotkun um nokkurt skeið. Heima hjá mönnunum fundust fíkniefni. Leita á að myndum af drengnum í tölvum þeirra beggja.
Betra brauð í
saumaklúbbinn!
FERMINGARBÆKLINGUR FYLGIR BLAÐINU Í DAG
SEX VERSLANIR
ALLTAF BETRA VERÐ
Hollt og gott
veganesti
ms.is
H
V
Í T
A
H
Ú
S
I Ð
/
S
Í A
GILDIR ÞRIÐJUDAG & MI
ÐVIKUDAG
AFSLÁTTUR AF BRAUÐ-RISTUM OG HRAÐSUÐU-
KÖNNUM
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík Sími 5880500 www.rafha.is
48 TÍMA
OFURTILBOÐ
40%
19 GERÐIR
Hasarmynd í bígerð
Auðunn Blöndal og félagar
gera bíómynd upp úr
Leynilögreglustiklunni.
fólk 30
Litrík orgelflóra
Haukur Guðlaugsson heldur
útgáfutónleika í tilefni
áttræðisafmælis síns.
tímamót 18
SJÓNVARP Finnska ríkissjónvarpið YLE hefur keypt sýningarréttinn á sjónvarpsþáttunum Heimsendi. Tökur á þátt-
unum hefjast
þó ekki fyrr en
í júní, en leik-
stjórinn Ragnar
Bragason vinn-
ur nú að hand-
riti ásamt Pétri
Jóhanni Sigfús-
syni, Jörundi
Ragnarsson og
Jóhanni Ævari
Grímssyni.
„Það er kominn góður fílingur eftir sýningar á Vaktaseríunum,“ segir Ragnar, en þáttaraðirnar hafa allar verið sýndar á YLE við góðan orðstír. „Þetta er sami hóp-urinn og sama fyrirtæki á bak við Heimsendi og þeir treysta því.“
- afb / sjá síðu 30
Íslenskt sjónvarpsefni í útrás:
Finnar kaupa
óséða þætti
RAGNAR
BRAGASON
KÖFLÓTT Í dag verða suðvestan 3-8 m/s. Dálítil væta með köflum en þurrt að mestu N-til. Hiti 2-8 stig.
VEÐUR 4
5
6
3
5
5
HEILSA Hlutfall þeirra sem útskrif-ast af Landspítala eftir hjarta-endurlífgun er með því hæsta sem gerist í heiminum. Frá þessu var greint á Vísindaþingi skurð-, svæfinga- og gjörgæslulækna um síðustu helgi.
„Af þeim sjúklingum sem kom-ust lifandi á Landspítala eftir endurlífgun vegna hjartaáfalls útskrifaðist fjórðungur lifandi,“ segir Brynjólfur Mogensen, yfir-læknir á bráðasviði Landspítala, en árangurinn í öðrum löndum er yfirleitt 10-15 prósent. Meðal þess sem útskýrir góðan árangur er hátt hlutfall grunnendurlífg-unar, en í 62 prósentum tilvika var endurlífgun reynd fyrir komu neyðarbíls. - sg / sjá Allt í miðju blaðsins
Góður árangur endurlífgana:
Fjórðungur lifir
ENDURLÍFGUN Íslendingar eru vel upp-lýstir um fyrstu hjálp.
BJÖRG Í BÚ Sigurður H. Guðfinnsson grásleppukarl var ánægður með aflann sem hann dró úr sjó og
landaði í Reykjavíkurhöfn í gær. Þau 600 kíló af grásleppu sem voru í karinu gefa um 280 kíló af hrognum. Áður
fyrr hentu Íslendingar sjálfum fisknum en eru nú í auknum mæli farnir að hirða hann, sérstaklega til útflutnings.
FÓLK „Ég æpti upp yfir mig af gleði. Þetta er mikill léttir, það er von,“ segir Priyanka Thapa sem fékk að vita það seinni partinn í gær að Útlendingastofnun ætlar að endurskoða umsókn hennar um dvalarleyfi hér á landi. Priyanka sótti sem kunnugt er um dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi þar sem fjöl-skylda hennar í Nepal hefur gefið hana manni til
að komast hjá örbirgð. Það hugnast Priyönku ekki. Hún hefur aldrei hitt manninn og vill heldur vera hér og ná sér í frekari menntun. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fagnar ákvörðun Útlendingastofnunar. Hann átti fund með stjórnendum stofnunarinnar í gær og boðar breytingar á stefnu hennar og regluverki.
- kh / sjá síðu 2
Útlendingastofnun endurskoðar umsókn Priyönku Thapa um dvalarleyfi:Æpti upp yfir mig af gleði
ár er aldur drengsins
sem mennirnir tveir
eru grunaðir um að
hafa misnotað kynferðislega.
8
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Oddaleikur
Keflavík vann KR öðru
sinni í framlengdum leik.
Liðin þurfa að mætast í
hreinum úrslitaleik.
sport 26
FORSÍÐA FRÉTTABLAÐSINS
Sagt var frá máli litla drengsins í Frétta-
blaðinu í gær.
HEATHER HODGES
Leyniskjal birt á Wikileaks:
Sendiherra rek-
inn frá Ekvador
FJÁRMÁL Einstaklingum fjölgar
stöðugt á vanskilaskrá og fjöldi
einstaklinga með mál í löginn-
heimtu er nú meiri en nokkru
sinni fyrr eða 24.260 manns
miðað við 1. apríl síðastliðinn.
Fjölgað hefur um rúmlega 1.800
í þessum hópi á síðustu 6 mán-
uðum eða að meðaltali um 305 á
mánuði, að því er fram kemur í
nýjum gögnum frá Creditinfo.
Eins og áður eru það einstæð-
ir foreldrar sem virðast vera
hvað verst settir þar sem yfir 14
prósent eru í alvarlegum van-
skilum. Einstæðar mæður standa
þar sýnu verr en einstæðir feður.
Næst á eftir einstæðum foreldr-
um koma karlkyns einstaklingar
sem eru ekki í sambúð en tæp-
lega 13 prósent þeirra eru í alvar-
legum vanskilum.
Nýjar tölur frá Creditinfo:
Stöðug fjölgun
á vanskilaskrá
SPRENGJUR FALLA Uppreisnarmenn
voru hraktir frá Brega. NORDICPHOTOS/AFP
LÍBÍA, AP Atlantshafsbandalag-
ið segir að loftárásirnar á Líbíu
hafi nú þegar eyðilagt þriðjung-
inn af þungavopnum Múammars
Gaddafí og liðsmanna hans.
Engu að síður hröktu liðsmenn
Gaddafís uppreisnarmenn frá
olíuborginni Brega, sem nokkrum
sinnum hefur fallið í hendur upp-
reisnarmanna eða stjórnarhers-
ins á víxl í átökunum undanfarnar
vikur.
Liðsmenn Gaddafís eru teknir
upp á því að fara með þungavopn-
in inn í borgirnar, í von um að
NATO geri ekki loftárásir á þau
vegna hættu á manntjóni. - gb
Átökum linnir ekki í Líbíu:
Stjórnarherinn
nær Brega á ný
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Laurent
Gbagbo hafði hreiðrað um sig í
kjallarabyrgi ásamt fjölskyldu
sinni í gær, umkringdur herliði
andstæðinga sinna, en neitaði
fram á síðustu stundu að semja um
brotthvarf sitt frá völdum.
Stjórnarherinn var hættur að
berjast gegn liði uppreisnarmanna
en leiðtogi þeirra lagði áherslu á að
hann kæmist frá átökunum lifandi.
Gbagbo hefur verið forseti
Fílabeinsstrandarinnar í áratug,
en tapaði í forsetakosningum í
nóvember. Hann neitaði að viður-
kenna þau úrslit, þótt bæði Sam-
einuðu þjóðirnar og Afríkubanda-
lagið segi ekkert athugavert við
framkvæmd kosninganna.
Sigurvegari kosninganna, Alass-
ane Ouattara, reyndi lengi vel að
fá hann til að láta af völdum með
friði. Leiðtogar nágrannaríkjanna
fóru sömuleiðis margsinnis á fund
hans til að semja um málið.
Frakkar settu Gbagbo þau skil-
yrði í gær, að hann myndi undirrita
staðfestingu þess að hann hafi látið
af völdum og viðurkenna Ouattara
sem eftirmann sinn í embætti.
Hann hafnaði þeim skilyrðum í
gærkvöld. - gb
Flóknar samningaviðræður um brotthvarf Gbagbos fram á síðustu stundu:
Gbagbo hrökklast frá völdum
SIGURVISSIR Liðsmenn Ouattaras
komnir inn í Abidja, þar sem Gbagbo
hafði hreiðrað um sig í kjallarabyrgi.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Sigurður Ingi Jóhannsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
telur brýnt að sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd Alþingis komi
saman og ræði sérstaklega stöðu
bænda í Engidal og Skutulsfirði
vegna díoxínmengunar.
Ríkið hefur bannað sölu afurða
frá þeim bændum. „Ríkisvaldið
getur ekki setið hjá í þessu máli
og látið tjónþolana eina um að
þurfa að sækja sinn rétt án þess
að fyrir liggi skýr stefna um opin-
bert aðgerðaplan í sambærilegum
málum,“ segir Sigurður Ingi.
Ríkið getur ekki setið hjá:
Vill fundi um
díoxínmengun
SVÍÞJÓÐ, AP Þau Stefan og Erika
Svanström kynntust ýmsum
verstu hamförum sögunnar á
brúðkaupsferð sinni í vetur.
Þau héldu fyrst til Þýskalands
í desember síðastliðnum, þar sem
þau urðu strandaglópar vegna
einnar mestu snjóatíðar síðustu
áratuga. Þaðan héldu þau til Ástr-
alíu þar sem þau lentu í fellibyl í
Cairns og stórflóðum í Brisbane,
en rétt sluppu við kjarreldana í
Perth.
Þaðan lá leiðin til Christchurch
á Nýja-Sjálandi, þar sem 6,3 stiga
jarðskjálfti reið yfir. Loks varð
9 stiga jarðskjálfti í Tókíó þegar
þau voru komin þangað.
Heim til Svíþjóðar komust þau
heilu og höldnu í lok mars. - gb
Sænskt par í hremmingum:
Brúðkaupsferð
á hamfaraslóðir
SPURNING DAGSINS
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt