Fréttablaðið - 28.04.2011, Page 6
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR6
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, Sími 528 44OO
hringja í söfnunar-
símann 9O7 2OO2,
gefa framlag á
framlag.is,
gjofsemgefur.is eða
á söfnunarreikning
O334-26-886,
kt. 45O67O-O499.
Ný nálgun við mataraðstoð
Hjálparstarf kirkjunnar ætlar að hverfa frá
matargjöfum í poka og veita í staðinn barnafólki
mataraðstoð með inneignarkortum í verslunum.
Valgreiðsla hefur verið send í
heimabanka þinn. Með því að
greiða hana styður þú innanlands-
aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og
hjálpar til sjálfshjálpar.
www.help.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
10
93
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
INDLAND, AP Lobsang Sangay,
þjóðréttarfræðingur menntað-
ur í Harvard, verður forsætis-
ráðherra útlagastjórnar Tíbeta á
Indlandi. Hann tekur því við af
Dalaí Lama sem pólitískur leið-
togi Tíbeta.
Sangay hlaut 55 prósent
atkvæða í kosningu, sem efnt
var til meðal útlægra Tíbeta um
heim allan. Tenzin Tethong, fyrr-
verandi talsmaður Dalaí Lama í
Bandaríkjunum, kom næstur og
fékk 37 prósent atkvæða.
Dalaí Lama verður stöðu sinnar
vegna áfram trúarleiðtogi Tíbeta.
Hann nýtur mikillar virðingar
svo óljóst er hve mikil raunveru-
leg völd nýkjörni forsætisráð-
herrann fær.
Dalaí Lama hefur hins vegar
sagt að samningaviðræður útlaga
Tíbeta við kínversk stjórnvöld
gætu orðið auðveldari, ef Kínverj-
ar fái einhvern annan að ræða við
en sig.
Kínverskum stjórnvöldum er
mjög uppsigað við Dalaí Lama
og vilja líklega fá að hafa áhrif á
hvaða drengur verður valinn til
að verða arftaki hans, þegar hann
fellur frá. - gb
Tíbetar í útlegð kjósa nýjan forsætisráðherra útlagastjórnarinnar á Indlandi:
Tekur við af Dalaí Lama
LOBSANG SANGAY Verður pólitískur
leiðtogi Tíbeta þótt Dalaí Lama verði
áfram trúarleiðtogi þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhald og einangr-
unarvist yfir fyrrverandi sam-
býlismanni konu sem hefur kært
hann fyrir nauðgun.
Konan kveður manninn hafa
hringt í sig að kvöldi laugardags-
ins fyrir páska og beðið sig að
koma með íþróttatösku heim til
hans.
Maðurinn hafi síðan hent henni
út, en komið á eftir henni og sótt
hana. Hann hafi síðan nauðgað
henni, misþyrmt, svívirt og hótað
að drepa son hennar. - jss
Gæsluvarðhald staðfest:
Kærði mann
fyrir nauðgun
EFNAHAGSMÁL Hætt er við að hækkun á verði mat-
væla og eldsneytis geti dregið úr hagvexti í Asíu og
aukið fátækt verulega.
Þróunarbanki Asíu (ADB) varar við því að vöru-
verð í Asíu hafi hækkað að meðaltali um tíu prósent
frá áramótum og geti þróunin valdið því að hagvöxt-
ur verði 1,5 prósentum lægri í álfunni en búist var
við. Asíuríkin komust ágætlega í gegnum fjármála-
kreppuna og hafa hagspár almennt gert ráð fyrir að
þau muni leiða hagvöxt á heimsvísu á árinu.
Bankinn segir sömuleiðis að verði ekkert að gert
til að draga úr vöruverðshækkunum geti það haft
mjög neikvæð áhrif á lífskjör, jafnvel gert átak
gegn fátækt að engu. Gangi svartsýnustu spár eftir
gæti fátækum í Asíu fjölgað um tæpar 64 milljónir
manna, samkvæmt bankanum.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir Chang-
yong Rhee, aðalhagfræðingi ADB, að fátækar fjöl-
skyldur í álfunni verji sextíu prósentum af tekjum
sínum í matarinnkaup. Hækki vöruverð komi það
harkalega niður á þeim, ekki síst á menntun og heil-
brigði barna.
Ríkisstjórnir margra landa hafa beitt sér gegn
verðþróuninni með útflutningsbannni. Það hefur
hins vegar ekki skilað tilætluðum árangri, að mati
bankans sem mælir fremur með uppbyggingu í mat-
vælaiðnaði til að auka framleiðslu. - jab
Verðhækkun á matvöru á árinu gæti dregið verulega úr hagvexti í Asíuríkjum:
Fátækum gæti fjölgað í álfunni
KEYPT Í MATINN Í MANILA Hátt matvöruverð kemur við buddu
margra. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Innstæður á Icesave-
reikningunum eru forgangskröf-
ur í þrotabú Landsbanka Íslands
samkvæmt úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær. Þar með stað-
festir dómstóllinn lögmæti neyðar-
laganna sem stjórnvöld settu eftir
hrun bankanna haustið 2008.
Í neyðarlögunum var kveðið á um
að innstæður væru forgangskröf-
ur í þrotabúum bankanna. Nærri
eitt hundrað almennir kröfuhafar
kröfðust þess hins vegar að inn-
stæðurnar teldust almennar kröf-
ur í þrotabúið. Niðurstöðu héraðs-
dóms verður skotið til Hæstaréttar.
Niðurstaðan í þessu dómsmáli
skiptir höfuðmáli fyrir uppgjör á
Icesave-málinu. Snúi Hæstiréttur
dómi héraðsdóms gæti ríkið setið
eftir með hundruð milljarða króna
kröfur sem nú er útlit fyrir að fáist
greiddar úr þrotabúi Landsbank-
ans.
Almennir kröfuhafar, sem höfð-
uðu málið, telja að með setningu
neyðarlaganna hafi stjórnvöld skert
með ólögmætum hætti verðmæti í
þeirra eigu og með því valdið þeim
umtalsverðu tjóni.
Vísuðu lögmenn þeirra meðal
annars til eignarréttarákvæða
stjórnarskrárinnar í því samhengi,
en þar segir að ekki megi skylda
fólk til að láta af hendi eign sína
nema almenningsþörf krefji.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
líta verði til eðlis neyðarlaganna og
þeirra aðstæðna sem uppi hafi verið
í íslensku samfélagi þegar þau hafi
verið sett. Stjórnvöld geti á grund-
velli stjórnarskrárinnar sett eign-
arrétti manna margvíslegar tak-
markanir.
Héraðsdómur telur að þó setn-
ingu neyðarlaganna hafi borið
brátt að fari ekki milli mála að þau
hafi verið sett með stjórnskipulega
réttum hætti til að bregðast við sér-
stökum aðstæðum á fjármálamark-
aði.
Í úrskurði héraðsdóms segir að
ekki verði fallist á að með setn-
ingu neyðarlaganna hafi eignir
almennra kröfuhafa verið gerðar
upptækar. Í lögunum felist hins
vegar að hluti kröfuhafa hafi feng-
ið aukin réttindi.
Almennum kröfuhöfum tókst
ekki að sýna fram á að aðgerðir rík-
isins hafi gengið lengra en brýna
nauðsyn bar til í því skyni að forða
þjóðinni frá efnahagslegu hruni
og tryggja þar með hag almennra
borgara, samkvæmt úrskurði hér-
aðsdóms.
Í úrskurðinum er málatilbún-
aður hluta almennra kröfuhafa
gagnrýndur. Farið hafi verið yfir
aðdraganda hrunsins í löngu máli,
og lagðar fram skýrslur og álits-
gerðir sem enga þýðingu hafi haft
fyrir málið. brjann@frettabladid.is
Héraðsdómur telur
neyðarlögin lögleg
Kröfum almennra kröfuhafa í þrotabú Landsbankans um að innstæður teldust
ekki forgangskröfur var hafnað af héraðsdómi í gær. Í málinu var tekist á um
hvort neyðarlögin stæðust stjórnarskrána. Málinu verður skotið til Hæstaréttar.
LÖGLEG Neyðarlögin sem Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, kynnti 6.
október 2008 standast stjórnarskrá samkvæmt úrskurði héraðsdóms.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ætlar þú að mæta völlinn og
horfa á fótboltaleik í sumar?
JÁ 25,2%
NEI 74,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að flytja Landhelgisgæsluna
á Keflavíkurflugvöll ef rekstrar-
kostnaður hækkar við það?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN