Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 8

Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 8
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR8 1 Hvort er dýrara að reka Land- helgisgæsluna í Reykjavík eða á Miðnesheiði? 2 Hvar var kosning til vígslu- biskups ólögmæt? 3 Hvað hefur Snjólaug Bragadóttir þýtt marga þætti af Nágrönnum? SVÖR 1. Á Miðnesheiði. 2. Í Skálholtsumdæmi. 3. Sex þúsund. Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Þú hittir beint í mark með Siemens. BANDARÍKIN, AP Talið er að mikl- ar mannabreytingar verði í yfir- stjórn Bandaríkjahers og leyni- þjónustunnar CIA í sumar í tengslum við varnarmálaráð- herraskipti, sem fyrirhuguð eru þegar Robert Gates hættir. Búist er við því að Barack Obama Bandaríkjaforseti til- kynni í dag að Leon Panetta, yfir- maður leyniþjónustunnar CIA, muni taka við af Gates, en David Petraeus, sem er yfirmaður fjöl- þjóðahersins í Afganistan, komi í staðinn fyrir Panetta hjá CIA. Þá er reiknað með að herforing- inn John Allen taki við af Petra- eus sem yfirmaður hersveita NATO í Afganistan, en Ryan Crocker verði sendiherra Banda- ríkjanna í Afganistan. Bandaríska fréttastofan AP fullyrðir þetta, og vísar í ónafn- greinda heimildarmenn bæði innan og utan Bandaríkja- stjórnar. Gates hefur lýst því yfir að hann muni hætta sem varnar- málaráðherra fyrir árslok, og miðar þá við að ráðherraskipt- in verði gengin um garð áður en kosningabarátta fer í gang af fullum krafti fyrir næstu for- setakosningar, sem verða haldnar haustið 2012. Öldungadeild Bandaríkjaþings þarf að samþykkja val forsetans í embætti varnarmálaráðherra, og er Obama sagður stefna á að Panetta komi fyrir þingnefnd á næstu mánuðum. Talið er að Panetta hafi orðið fyrir valinu sem varnarmálaráð- herra bæði vegna þess að hann hefur langa reynslu af störfum við stjórnsýsluna í Washington, meðal annars af fjárlagagerð og sem starfsmannastjóri Bills Clinton forseta, og vegna þess að hann hefur aflað sér víðtækrar reynslu í tengslum við yfirmanns- störfin hjá CIA. Hann er sagður hafa ferðast til meira en 30 landa og komið á fleiri en 40 bækistöðv- ar Bandaríkjahers og leyniþjón- ustunnar CIA. Vitað var að Petraeus myndi hætta í Afganistan fyrir árslok og miklar vangaveltur hafa verið um það til hvaða starfa hann færi næst. Petraeus hefur ekki starfað lengi sem yfirmaður herliðsins í Afganistan. Hann tók við því embætti í júní síðastliðnum en hafði áður verið yfirmaður fjöl- þjóðaherliðsins í Írak. Petraeus heldur því fram að öflug sókn hersins, einkum gegn talibönum í sunnanverðu landinu, undanfarinn vetur hafi dregið mjög úr mætti þeirra. Bandarík- in stefna að því að hefja brott- flutning herliðs síns frá Afgan- istan nú í sumar og búa jafnframt afganska herinn undir að taka við. gudsteinn@frettabladid.is Obama stokkar upp í yfirstjórn hermála Leon Panetta, yfirmaður leyniþjónustunnar CIA, tekur að öllum líkindum við af Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. David Petraeus, sem nú er yfirmaður herliðs NATO í Afganistan, tekur í staðinn við stjórn CIA. OBAMA OG PANETTA Leon Panetta hefur verið yfirmaður CIA í tvö ár. NORDICPHOTOS/AFP UMFERÐAREFLITLIT Lögreglan hafði í nógu að snúast um páskana eins og endranær. LÖGREGLUMÁL Rúmlega tuttugu ökumenn voru teknir fyrir vímu- efnaakstur á höfuðborgarsvæð- inu um páskana. Þrettán karl- menn voru teknir ölvaðir undir stýri. Þeir voru á aldrinum 18 til 66 ára. Tvær konur voru teknar af sömu sökum. Þær voru 29 og 39 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir öku- leyfi. Þá voru fjórir karlmenn á aldrinum 28 til 36 ára teknir við akstur undir áhrifum fíkniefna. Tvær konur 27 ára og 36 ára voru stöðvaðar af sömu sökum. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. - jss Bakkus undir stýri: Rúmlega 20 í vímuefnaakstri BANDARÍKIN Hvíta húsið gaf út afrit af fæðingarvottorði Bar- acks Obama Bandaríkjaforseta í gær. Með birtingunni vilja for- svarsmenn Hvíta hússins stöðva sögusagnir þess efnis að for- setinn sé ekki fæddur í Banda- ríkjunum. Á vottorðinu stendur að Obama sé fæddur á Kapiolani- spítalanum á Honolulu þann 4. ágúst 1961. Því hefur verið hald- ið fram að Obama hafi fæðst í Keníu, fæðingarlandi föður hans. Obama sagði við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær að undir venjulegum kringumstæðum myndi hann ekki svara rugli sem þessu, en verkefnin sem Bandaríkjastjórn stæði frammi fyrir væru svo brýn að hann vildi fá þetta mál frá. - sv Hvíta húsið slær á sögusagnir: Fæðingarvott- orð Obama birt DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða húseig- endum á Akureyri rúmlega 3,2 milljónir króna vegna mistaka við þinglýsingu. Fólkið bjó á 1. hæð húss og hugðist kaupa kjallaraíbúð í sama húsi af eiganda hennar. Áður en af þeim kaupum gat orðið þurfti að gera eignaskipta- lýsingu. Við þinglýsingu hennar urðu þau mistök að 1.750 þús- unda lán með veði í kjallaraíbúð- inni féll úr þinglýsingabókum sýslumannsins á Akureyri. Fólkið keypti síðan íbúðina á verði sem miðað var við að ekkert hvíldi á henni, en varð að greiða upp lánið, sem komið var í rúmar 3,2 milljónir vegna vanskila og gjaldþrots seljanda hennar. - jss Lán féll úr þinglýsingabókum: Ríkið greiðir fyrir mistökin VIÐSKIPTI Sala áfengis var tals- vert minni í nýliðinni páskaviku heldur en í páskavikunni í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Vín- búðunum. Í páskavikunni nú voru seldir 462 þúsund lítrar af áfengi en 507 þúsund lítrar í páskavikunni 2010. Um er að ræða 8,8 prósent samdrátt. Enn fremur er greint frá því að 85.109 viðskiptavinir hafi komið í Vínbúðirnar í páska- vikunni eða sex prósent færri en í Páskavikunni 2010 þegar 90.541 viðskiptavinir komu í Vínbúðirn- ar. - jss Samdráttur í sölu áfengis: Minna áfengi keypt um páska DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan karlmann fyrir þjófnað, húsbrot, brennu og eignaspjöll. Manninum er gefið að sök að hafa brot- ist inn á neðri hæð íbúðarhúss í Reykja- nesbæ í febrúar 2007. Hann komst inn með því að spenna upp glugga. Úr íbúðinni stal hann skartgripum að andvirði ríflega hundrað þúsund króna, að því er segir í ákæru. Þá skemmdi hann bæði innan- stokksmuni og gólfefni í svefnherbergi íbúðarinnar. Einnig er manninum gefið að sök að hafa síðan farið í heimildarleysi í íbúð á efri hæð hússins. Þar braut hann spegil á baðherbergi og kveikti svo í rúmi í svefn- herbergi. Með þessu olli hann eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu, því eldurinn barst í aðliggjandi herbergi íbúð- arinnar og fram á stigagang. Slökkviliðið náði fljótlega að ráða niðurlögum eldsins, en talsverðar skemmdir urðu á húsinu. Maðurinn er ennfremur ákærður fyrir að stela lyklum og peningum úr bíl og taka svo annan bíl í nágrenninu í heimildar- leysi og aka um á honum þar til lögreglan stöðvaði hann. Maðurinn er krafinn um rúmar 15,5 milljónir króna af tveimur tryggingafélög- um. -j ss Tæplega þrítugur maður krafinn um rúmar fimmtán milljónir í skaðabætur: Braust inn, stal skartgripum og kveikti í rúmi KIRKJUTEIGUR Húsið í Reykjanesbæ sem maðurinn er ákærður fyrir að hafa kveikt í. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.