Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 12
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR12 10-11 boðið til sölu Rekstrarfélag Tíu-ellefu ehf. er til sölumeðferðar hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Félagið er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka. Rekstrarfélag Tíu-ellefu ehf. rekur 23 verslanir undir merkjum 10-11 á höfuðborgar- svæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri. Vörumerkið 10-11 er meðal þeirra þekktustu á markaðnum og verslanirnar vel staðsettar, en hjá félaginu starfa um 200 manns. Stefna félagsins er að 10-11 sé fyrsti valkostur neytenda sem vilja nýta sér fljóta og einfalda þjónustu hvenær sólarhringsins sem er. Verslanakeðjan var í eigu Haga hf. þar til á síðasta ári, þegar Rekstrarfélagið tók við rekstri keðjunnar ásamt eignum og skuldum. Söluferlið Boðið er til sölu allt hlutafé í Rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. og er gert ráð fyrir að það verði selt í einu lagi. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem að mati seljanda geta sýnt fram á að hafa viðeigandi þekkingu og til þess bæran fjárhags- legan styrk, eða aðgang að a.m.k. 300 milljónum króna í auðseljanlegum eignum. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að viðkomandi fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Skulu þeir leggja fram trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi. Sölugögn verða afhend þátttakendum frá og með miðvikudeginum 4. maí næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun taka við óskuldbindandi tilboðum til kl. 16.00 miðvikudaginn 18. maí. Tilboðum skal skila á þar til gerðu formi. Í kjölfarið verða tilboðin metin og völdum fjárfestum boðin áframhaldandi þátttaka í söluferlinu. Munu þeir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og fjárhag félagsins áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endan- legra samninga um kaup og sölu á félaginu. Seljandi áskilur sér rétt til að i) gera breyt- ingar á skilmálum og/eða viðmiðum söluferlisins og/eða ii) ganga til samninga við hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum. Frekari upplýsingar Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í síma 444-6000 eða með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.10-11@arionbanki.is. LÖGREGLUMÁL Gunnar Þorsteins- son, fyrrverandi forstöðumaður trúfélagsins Krossins, var yfir- heyrður hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í gærmorgun. Gunn- ar vildi lítið tjá sig efnislega um yfirheyrsluna að svo stöddu máli. „Mér líður vel. Ég er bjartsýnn á niðurstöðuna,“ sagði hann. Gunnar býst ekki við því að verða kallaður aftur til yfir- heyrslu og segir málinu lokið á þessu stigi. Sjö konur hafa lagt fram kæru á hendur Gunnari vegna kynferð- isbrota gegn þeim á meðan þær voru í Krossinum. Konurnar hafa ýmist sakað Gunnar, sem þá var forstöðumaður Krossins, um að káfa á sér, láta óviðeigandi orð falla eða að hafa kysst þær inni- lega. Hann hefur neitað öllum ásökunum. Ásta Knútsdóttir, talskona kvennanna, segir að líklegt sé að ekki verði ákært í málinu sökum aldurs brotanna. „Okkur þykir stór sigur unn- inn. Markmiðið var að koma þess- um skilaboðum á framfæri,“ segir Ásta. „En við vonumst til þess að þetta verði að minnsta kosti til þess að Gunnar missi réttinn til þess að gegna stöðu forstöðu- manns.“ Ásta segir konurnar margar hafa lent í miklu áreiti af hendi meðlima Krossins að undanförnu, þá sér í lagi eigin- konu Gunnars, Jónínu Benedikts- dóttur. „Við höfum alla tölvupósta undir höndum og allt sem hefur frá þessari konu komið. Það er líka komið til lögreglunnar,“ segir Ásta. Björgvin Björgvinsson, yfir- maður kynferðisbrotadeildar, segir mál Gunnars verði sent til ákæruvaldins. - sv Mál kvennanna sjö gegn Gunnari í Krossinum nú á leið til ákæruvaldsins: Var yfirheyrður í gærmorgun GUNNAR EFTIR YFIRHEYRSLU Gunnar Þorsteinsson sagði sér líða vel eftir yfirheyrslu hjá kynferðisbrotadeild í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Innbrotsþjófur var handtekinn í Grafarvogi um miðjan dag í fyrradag. Hann hafði brotið bílrúðu og hugðist stela verðmætum úr ökutækinu. Ökumaðurinn var hins vegar skammt undan, sá þjófinn, handsamaði hann og hafði í haldi þar til lögregla kom á vettvang. LÖGREGLUMÁL Ökumaður gómaði þjóf VINNUPALLARNIR FARNIR Skakki turn- inn í Písa er loksins laus við vinnupall- ana, sem hafa hulið hann að hluta í tvo áratugi samfleytt vegna endurnýjunar og viðgerða. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fer- tugsaldri og kona á þrítugsaldri voru handtekin í tvígang fyrir þjófnað og innbrot í Hafnarfirði á laugardag. Fyrst voru þau handtekin snemma morguns eftir að hafa stolið GPS-tæki og fleiri verð- mætum úr ólæstum bílum. Hinum stolnu munum var komið aftur í réttar hendur og fólkinu síðan sleppt eftir að málið taldist upplýst. Þjófarnir brutust þá inn í bíl á öðrum stað í bænum þegar nokk- uð var liðið á daginn. Skötuhjúin voru því handtekin á nýjan leik, nú með þýfi úr bílnum. - jss Tvö tekin með þýfi: Handtekin tvisvar sama dag NOREGUR Maður fannst látinn í bíl á áningarstað við þjóðveg skammt suður af Ósló í gær. Bíllinn var skráður í Lithá- en en lögregla veit engin deili á manninum, né hvað dró hann til dauða. Þó þykir líklegt að dauða hans hafi ekki borið að með eðli- legum hætti og hefur rannsókn- ardeild verið kölluð að málinu. Maðurinn fannst þegar lög- regla athugaði yfirgefna bíla við áningarstaðinn, en ekki var vitað hve lengi maðurinn hafði verið í bílnum. - þj Dularfullt mál í Noregi: Fannst látinn við þjóðveginn UNDIR YFIRBORÐINU Kókaínsmyglarar hafa hingað til notað litla kafbáta eins og bátinn hér að ofan. NORDICPHOTOS/AFP KÓLUMBÍA Kólumbísk stjórnvöld hafa lagt hald á hálfkláraðan kaf- bát sem fíkniefnabarónar voru með í smíðum. Þetta er annar kafbáturinn sem fundist hefur í fórum fíkniefnasmyglara, að því er BBC greinir frá. Smyglararnir hafa hingað til notað litla kafbáta sem siglt hafa rétt undir yfirborði sjávar, og hefur bandarísku strandgæslunni orðið vel ágengt í að stöðva þá. Nú hafa smyglararnir fært sig upp á skaftið og smíðað alvöru kafbáta sem geta siglt talsvert undir yfirborði sjávar. Afar erfitt getur verið að finna slíka kafbáta og því greið leið fyrir kólumbískt kókaín á markað í Bandaríkjun- um og víðar. - bj Smíða fullkomna kafbáta: Kókaíni smygl- að í kafbátum LÖGREGLUMÁL Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar í Vest- mannaeyjum eftir skemmtana- hald páskahátíðarinnar. Árásin átti sér stað á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt annars í páskum. Karlmaður sló konu þannig að hún fékk sár á enni, auk þess sem hann reif í hár hennar. Ekki liggur fyrir ástæða árásarinnar en flest bendir til þess að maðurinn hafi farið konuvillt. Málið er í rann- sókn Skömmu áður höfðu tveir menn brotist inn í Lundann. Lögreglan greip annan á vettvangi og sótti svo hinn til skýrslutöku. Þeir ját- uðu báðir. - jss Líkamsárás kærð til lögreglu: Maðurinn réðst á ranga konu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.