Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2011, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 28.04.2011, Qupperneq 14
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR14 Björn Þór Sigbjörnsson bjorn@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING: Breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu Grand Hótel Reykjavík Fimmtudagur 12. maí kl. 17:00 Dagskrá fundarins: 1. Hefðbundin ársfundarstörf. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál. Tveir aðalmenn í stjórn og einn vara-stjórnarmaður voru kosnir á auka-aðalfundi í september til næsta aðalfundar. Þeim sjóðfélögum sem hafa hug á því að bjóða sig fram er boðið að kynna sig stuttlega á heimasíðu sjóðsins og eru þeir beðnir um að hafa samband við starfsmenn sjóðsins. Í sjóðnum er virkt sjóðfélagalýðræði og hafa allir sjóðfélagar sem mæta á ársfund atkvæðisrétt. Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga Ársfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga Lífeyrissjóður verkfræðinga | Engjateigi 9, 105 Reykjavík | www.lifsverk.is | Sími 575 1000 Markmið sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fiskveiðar umhverfis landið séu hagkvæmar og skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar og vistvænar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa, lífríkis og hafsbotns. Veiðiheimildir skulu ákvarðast af nýtingarstefnu sem byggist á aflareglu hverju sinni. Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá endurreisn atvinnulífsins sem framundan er. Það er því afar mikilvægt að skapa greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða. Þjóðareign og mannréttindi ■ Með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði undirstrikað að fiskistofn- arnir umhverfis landið séu sameign þjóðarinnar. Úthlutun aflaheimilda er tímabundinn afnotaréttur og myndar ekki undir neinum kringumstæðum eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir heimildunum. ■ Bregðast þarf frekar við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, m.a. með því að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind. Brýnar aðgerðir ■ Knýja á um frekari fullvinnslu afla hérlendis með því m.a. að skoða hóflegt útflutningsálag á fisk og/eða að óunninn afli verði settur á inn- lendan markað. ■ Takmarka framsal á aflaheimildum, auka veiðiskyldu og endurskoða til- færslur á heimildum milli ára. ■ Stofna auðlindasjóð sem fer með ráðstöfun fiskveiðiréttinda í eigu þjóðarinnar. Arður af rekstri sjóðsins renni til atvinnuuppbyggingar. ■ Vernda grunnslóð. Kannaðir verði möguleikar þess að veiðar afkastamik- illa skipa á grunnslóð og inni á fjörðum verði takmarkaðar frá því sem nú er með það að markmiði að treysta grunnslóðina sem veiðislóð fyrir smærri báta og umhverfisvænni veiði. ■ Skipa ráðgefandi hópa útgerðarmanna og sjómanna varðandi veiðiráðgjöf og nýtingu sjávarauðlinda og ástand í lífríki sjávar. ■ Heimila frjálsar handfæraveiðar smábáta yfir sumarmánuðina. Endurskoðun laga um fiskveiðar ■ Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að: • stuðla að vernd fiskistofna • stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar • treysta atvinnu • efla byggð í landinu • skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar • leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka. ■ Endurskoðunin mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávar- útvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010. Skipaður verði starfshópur er vinni að endurskoðuninni og kalli til samráðs hagsmunaaðila og sérfræðinga. Vistvænar veiðar – rannsóknir o.fl. ■ Ríkisstjórnin telur brýnt að treysta í sessi siðræn viðhorf í umgengni við hafið og auðlindir sjávar í ljósi þess að maðurinn er hluti af náttúrunni og verður að umgangast hana af ábyrgð. ■ Nýta þarf krafta sjómanna og útgerðarmanna í hafrannsóknum til að efla gagnasöfnun og rannsóknarverkefni sem þeir eru þátttakendur í. Kortleggja vel menntun og fræðslu í sjávarútvegi með það að markmiði að auka menntunarstig í greininni. ■ Íslendingar áskilja sér hér eftir sem hingað til rétt til nýtingar sjávar- auðlinda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Forsendur fyrir veiðum og nýtingu sjávarspendýra, sela og hvala, verði endurmetnar frá grunni með tilliti til sjálfbærni og efnahagslegrar þýðingar fyrir þjóðarbúið í heild sem og alþjóðlegra skuldbindinga og ímyndar Íslands. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar Ágreiningur vinnuveitenda og stjórnvalda um fisk- veiðistjórnunarkerfið er ekki aðeins ágreiningur um hvernig stjórna beri fisk- veiðum heldur líka barátta um völd. Hugsanlegt er að af honum leiði víðtæk verk- föll með tilheyrandi tjóni fyrir samfélagið. Það er af fullri alvöru sem for- ystumenn launþega tala um að beita fyrir sig verkföllum til að ná fram kjarabótum. Þeir hafa fengið nóg af því sem þeir kalla óbilgirni atvinnurekenda og nóg af kröfum þeirra um að ekki verði samið til langs tíma nema stjórnvöld lúti vilja þeirra í málefnum sjávarút- vegsins. Hvað kemur okkur þetta mál við? – spyrja þeir og skyldi engan undra. Bara nokkrar tölur Samtök atvinnulífsins standa fast við kröfu sína. Það verður ekki samið ef stjórnvöld ætla að standa við ítrustu áform sín um innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda. Samtökin hafa rétt út sína sátta- hönd; eyðublað þar sem aðeins þarf að setja inn nokkrar tölur. Í fyrsta lagi í hve mörg ár útgerðir fái að nota aflaheimildir, í öðru lagi hve mörg þúsund þorskígildistonnum ríkið ráðstafi til samfélagslegra verkefna fram hjá aflahlutdeildar- kerfinu, í þriðja lagi hve hátt hlut- fall af hagnaði útgerðar renni í sérstakan skatt sem veiðigjald og í fjórða lagi hve hátt hlutfall af tekjum af sölu aflamarks umfram kaup skuli greiða í skatt. Himinn og haf skilja á milli Þetta virðist einfalt og líklega væri hægt að fylla inn í eyðurnar á hálftíma. Vandinn er bara sá að himinn og haf skilja að hugmynd- ir stjórnmálamanna og útgerðar- manna um tölurnar. Sumir póli- tíkusar hafa til dæmis nefnt að nýtingartíminn eigi að vera tíu ár á meðan útgerðarmenn telja 35 ár vera lágmark. Að sama skapi er óravegur frá hugmyndum manna um hve stór hluti heildaraflans eigi að vera í aflamarkskerfinu og hve stór hluti eigi að fara í svokall- aða samfélagspotta. Veiðigjaldið er svo enn eitt málið. Háar fjár- hæðir ráðast af prósenti til eða frá. Innan stjórnmálanna var hlegið þegar eyðublaðið var kynnt. Sáttin Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar (fiskveiðikaflinn er birtur í heild hér til hliðar) stendur að meðal markmiða sem leggja eigi upp með við endurskoðun laga um stjórn fiskveiða sé að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar. Að þessu hafa ýmsir aðrir hlegið. Önnur markmið lagabreytinganna, auk yfirlýsinga stjórnmálamanna í stjórnarliðinu, séu þess eðlis að enginn leið sé að sátt skapist. Eina sáttin sem sé möguleg felist í því að einhverjir sætti sig við að verða undir í málinu. Í dag er staðan sú að hvorki stjórnvöld né útgerðarmenn/ atvinnurekendur ætla að sætta sig við slíkt. Samningaleiðin Sjávarútvegsráðherra setti á lagg- irnar starfshóp til að vinna að end- urskoðun laganna um stjórn fisk- veiða. Í starfinu tóku þátt næstum tuttugu manns, fulltrúar stjórn- málaflokkanna og hagsmunaaðila. Hver og einn lagði af stað með sínar hugmyndir um hvernig skip- an fiskveiða væri best komið til framtíðar en að meginniðurstöðu varð að best væri að fara samn- ingaleiðina. Það hljómar auðvitað vel en líkt og áður var rakið hafa menn afar ólíkar hugmyndir um hvernig slíkir samningar eigi að vera. Stjórnarflokkana greinir á Þegar skýrslan lá fyrir í sept- ember var hafist handa í sjávar- útvegsráðuneytinu við að smíða frumvarp. Sú smíði stendur enn. Engum öðrum en embættismönn- um og örfáum þingmönnum stjórn- arflokkanna hefur verið hleypt að verkinu. Hvorki útgerðarmenn né aðrir hafa verið hafðir með í ráðum. Ekki einu sinni stjórnar- andstaðan. Samt hefur tekið mun lengri tíma að útbúa frumvarpið en stefnt var að. Ágreiningur stjórn- arflokkanna _ og að einhverju leyti sú staðreynd að viðfangsefnið var flóknara en talið var – hefur nægt til að tefja verkið um marga mán- uði. Hverra mál? Ekki er nóg með að deilt sé um hugmyndir og leiðir um fyrirkomu- lag stjórnar fiskveiða heldur deila menn um hvort útgerðarmenn og aðrir atvinnurekendur eigi að koma að málinu eða yfir höfuð hafa á því skoðun. Málið sé pólitískt og þar með viðfangsefni pólitíkusa. Það verður hins vegar að telj- ast býsna eðlilegt að þeir sem eiga sitt undir lögum um stjórn fisk- veiða vilji hafa eitthvað um þau að segja. Fjárfestingar í sjávarútvegi eru gríðarlegar – nýr togari getur kostað sex milljarða – og skiljan- legt að þegar sest er niður til að smíða frumvarp um greinina vilji hagsmunaaðilar fá sæti við borðið. Stóra málið Í hugum stjórnarliða er málið stærra en sem nemur endurskoðun á einni löggjöf, þótt mikilvæg sé. Á þeim bænum er litið svo á að málið sé í raun barátta um völdin í samfé- laginu. Í aldarbyrjun hafi völd verið færð hagsmunaaðilum með þeim skelfilegu afleiðingum sem birtust í hruninu. Það beri því glöggt vitni að völdum sé betur fyrir komið hjá stjórnmálamönnum en öðrum. Því sé mjög mikilvægt að endurskoðun fiskveiðilaganna fari fram á for- sendum stjórnmálanna með hefð- bundnum umsagnarrétti hagsmuna- aðila við meðferð málsins á Alþingi. Í deilunni um kvótann birtist barátta um völd Á SJÓ Ekki sér fyrir endann á deilum um hvernig eða hverjir eigi að standa að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR Að undanförnu hafa nokkrir stjórn- málamenn lýst yfir vilja til að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiði- stjórnar. Rétt er því að rifja upp að tillaga þess efnis, flutt af níu þing- mönnum Samfylkingarinnar, er til meðferðar á Alþingi. Í henni segir að bera eigi upp grundvallarspurn- ingar, meðal annars um hvort taka eigi upp nýtt fiskveiðistjórnarkerfi, setja sérstakt stjórnarskrárákvæði um eignarhald auðlindarinnar og innkalla aflaheimilidir og endurúthluta þeim gegn gjaldi til þjóðarinnar. Þjóðaratkvæði?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.