Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 18
18 28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Vegna fréttar á bls. 2 í Fréttablaðinu 26. apríl sl. um tilboð í uppsteypu og utan-
hússfrágang Naustaskóla, 2. áfanga, finn
ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á
framfæri.
Við meðferð útboðsmála hjá sveitarfé-
lögum og ríkinu er viðtekinn háttur að yfir-
fara gaumgæfilega hagstæðustu tilboð til
að ganga úr skugga um að allir útreikning-
ar standist. Í lýsingu útboða kemur skýrt
fram að ef skekkjur finnast í tilboðsskrá
skal gera viðeigandi leiðréttingar á niður-
stöðutölum tilboðs. Í öllum tilvikum, hvort
sem um hækkun eða lækkun er að ræða,
ber að benda á viðkomandi reiknings-
skekkju og taka tillit til hennar.
Í útboðslýsingum er ennfremur gerð
krafa um að bjóðendur skili ársreikningum
síðustu tveggja ára, árituðum af endur-
skoðanda, og að bjóðendur séu ekki í van-
skilum með opinber gjöld eða lífeyris-
sjóðsgjöld starfsmanna sinna. Skilyrði um
fjárhagsstöðu bjóðenda eru sett fram til að
tryggja fjárhagslega hagsmuni verksins,
að verktaki sem samið er við hafi fjárhags-
lega burði til að klára verkið og til að gæta
jafnræðis meðal bjóðenda.
Við yfirferð útboða vegna framkvæmda
við Naustaskóla á Akureyri, 2. áfanga, kom
í ljós skekkja í tilboði SS Byggis ehf. sem
lækkaði tilboðsfjárhæð um tæpar 84 millj-
ónir króna og gerði það að næstlægsta til-
boði. Einnig varð ljóst
að bjóðandinn Ham-
arsfell ehf./Adakris
UAB, sem átti lægsta
tilboð í verkið, upp-
fyllti ekki ofangreind
skilyrði um skil á árs-
reikningum og opin-
berum gjöldum.
Af þessum ástæðum
var einboðið að taka
næstlægsta tilboði.
Af sömu ástæðum
er fráleitt að halda því
fram að verið sé að hygla heimamönnum
með einhverjum hætti.
Vísa má til fjölmargra dæma um að
stórir verktakar annars staðar af land-
inu hafi, að undangengnu útboði, fengið
umfangsmikil verkefni í byggingariðnaði á
Akureyri. Má í því sambandi benda á hlut
verktakans Ístaks hf. við byggingu Menn-
ingarhússins Hofs.
Lögbannsbeiðni Hamarsfells ehf./Adakr-
is UAB gegn Fasteignum Akureyrarbæjar
vegna málsins hefur verið vísað frá.
HALLDÓR
Af þessum
ástæðum var
einboðið að
taka næst-
lægsta tilboði.
Rétt skal vera rétt
Skipulags-
mál
Eiríkur Björn
Björgvinsson
bæjarstjóri á
Akureyri
Baráttan hefst
Nú, þegar rúmur mánuður er í að
þingið fari í sumarleyfi, hefst hefð-
bundin barátta þingmanna fyrir að fá
mál sín á dagskrá. Þingsályktunartil-
lögur og þingmannafrumvörp sem
bíða umræðu hlaupa á tugum og
eru, eins og gefur að skilja, öll mikil
framfaramál fyrir land og þjóð.
Meðal mála sem eru enn
órædd eru tillaga Árna Johnsen
um fuglaskoðunarstöð í Garði,
tillaga Gunnars Braga Sveins-
sonar um rann-
sókn á athöfnum
þingmanna í
tengslum við
búsáhaldabyltinguna og tillaga Guð-
mundar Steingrímssonar um seinkun
klukkunnar og bjartari morgna.
Líkfrysting og launalækkun
Meðal óræddra þingmannafrumvarpa
er frumvarp Eyglóar Harðardóttur um
þurrfrystingu við greftrun, frumvarp
Árna Johnsen um hægri beygju á móti
rauðu ljósi og frumvarp Einars K.
Guðfinnssonar um fasteignaskatt af
ratsjárstöðvum. Frumvarp Marðar
Árnasonar um afnám sérstakra
álagsgreiðslna til formanna
þingflokka og fasta-
nefnda þingsins er
hins vegar í nefnd.
Þráinn fyrst
Enn ályktar VG-fólk um að þingmenn
sem segi sig úr þingflokki VG eigi að
afsala sér þingmennsku og hleypa að
varamanni. Nú síðast ályktuðu deild-
irnar í Stykkishólmi og Grundarfirði
í þá veru vegna úrsagnar Ásmundar
Einars Daðasonar úr þingflokknum.
Ekki er mark takandi á
þessum ályktunum fyrr
en sama fólk ályktar með
sama hætti um Þráin
Bertelsson, sem sagði sig
úr Borgarahreyfingunni og
gekk síðar í VG.
bjorn@frettabladid.isÖ
gmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ákveðið
að flytja ekki Landhelgisgæzluna til Suðurnesja að svo
stöddu og þar með gengið þvert gegn væntingum heima-
manna og rofið þau fyrirheit sem margir töldu að ríkis-
stjórnin hefði gefið þegar hún fundaði í Reykjanesbæ og
lofaði að skoða málið. Þetta er engu að síður rétt ákvörðun.
Eftir að varnarliðið yfirgaf Keflavíkurflugvöll kom hugmyndin
um flutning Gæzlunnar fljótlega
upp. Réttilega hefur verið bent
á að þar sé aðstaða sem gæti
hentað stofnuninni ágætlega og
nóg sé af höfnum á Suðurnesjum.
Þá hafa menn séð möguleika í að
Gæzlan yfirtæki verkefni sem
Varnarmálastofnun sáluga hafði
með höndum.
Þarna var komið prýðilegt mál fyrir kjörna fulltrúa Suðurnesja-
manna að taka höndum saman um. Í nóvember lofaði ríkisstjórnin
að skoða vandlega kosti þess að flytja Gæzluna og hét því að athuga
hagkvæmni flutningsins. Í janúar tóku allir þingmenn Suðurkjör-
dæmis og oddvitar meirihluta og minnihluta bæjarstjórna á Suður-
nesjunum sig saman og skoruðu á ríkisstjórnina að klára málið.
„Samstaða alþingismanna og sveitarstjórnarmanna þvert á stjórn-
málaflokka um flutning Landhelgisgæslunnar gefur væntingar um
að ákvörðun um flutning stofnunarinnar til Suðurnesja gangi eftir
hið fyrsta,“ sagði í þeirri áskorun.
Í framhaldinu lögðu svo allir þingmenn kjördæmisins fram
þingsályktunartillögu, þar sem áskorunin er endurtekin og ein-
göngu útlistaðir kostirnir við flutning. „Með flutningi Landhelgis-
gæslunnar á Suðurnes mundi ríkisvaldið sýna í verki stuðning við
eflingu atvinnulífs þar auk þess að gera Landhelgisgæsluna að enn
öflugri stofnun til hagsbóta fyrir landsmenn alla,“ segir í greinar-
gerð með tillögunni. Þar gleymist þó að spyrja um hugsanlegan
kostnað skattgreiðenda af flutningnum.
Þetta er gamla kjördæmapotsaðferðin. Þingmenn kjördæmisins
og aðrir sameinast um að þrýsta á framkvæmdarvaldið að taka
flotta pólitíska ákvörðun sem aflar atkvæða. Kostnaðinn má reikna
út seinna, eða þá búa til bjartsýnar áætlanir sem ekki standast – og
of seint er að endurskoða þegar verkið er komið á fleygiferð.
Nú er hins vegar hagkvæmniathugun innanríkisráðuneytisins
á flutningi Gæzlunnar lokið, eins og Fréttablaðið sagði frá í gær.
Niðurstaðan er sú að bæði sé mjög dýrt að flytja stofnunina til Suð-
urnesja, kosti um 700 milljónir, og gera megi ráð fyrir að árlegur
rekstrarkostnaður hækki um aðra eins upphæð á nýja staðnum.
Kapp er bezt með forsjá. Við núverandi aðstæður, þegar Land-
helgisgæzlan er svo fjársvelt að hún getur varla sinnt lágmarks-
skyldum sínum, er ekkert vit í að henda peningunum í dýra
flutninga. Vandi Suðurnesjamanna í atvinnumálum er vissulega
alvarlegur, en meira að segja ráðherrar Vinstri grænna eru farnir
að átta sig á að það er ekki hlutverk ríkisins að skapa störf á kostnað
skattgreiðenda til að leysa úr þeim vanda.
Vonandi er ákvörðun innanríkisráðherra til marks um ný vinnu-
brögð – eða kannski eigum við bara að þakka fyrir að Ögmundur er
ekki þingmaður Suðurkjördæmis.
Það er rétt ákvörðun að flytja Landhelgis-
gæzluna ekki til Suðurnesja vegna kostnaðar.
Kapp með forsjá
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Farfuglar ❚ Borgartúni 6 ❚ 105 Reykjavík ❚ Sími 575 6700 ❚ info@hostel.is
Í samstarfi við verkefnið Grænn apríl bjóða
Farfuglar öllum náttúruunnendum í gönguferð í
náttúruparadísina Valaból. Lagt verður af stað frá
bílaplani við Kaldársel kl. 18:00 þann 28. apríl og
reiknað er með að gangan taki um 2 tíma.
Göngufólk taki með sér hlýjan og skjólgóðan
fatnað en Farfuglar bjóða upp á heitt kakó og
kruðerí þegar áð verður við Músarhelli sem hefur
verið verða áningar- og gististaður Farfugla og
annars útivistarfólks í yfir 70 ár.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
28. apríl kl. 18:00
Gönguferð
Farfugla í Valaból