Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 24

Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 24
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR24 timamot@frettabladid.is 37 Einn ötulasti safnari landsins, Þórður Tómasson, safnvörður Byggðasafns- ins í Skógum, stendur á níræðu í dag. Í tilefni tímamótanna kemur út bók eftir Þórð; Svipast um á söguslóðum – þættir um land, menn og mannaminj- ar í Vestur-Skaftafellssýslu. Skrudda gefur bókina út. „Bókin er úttekt á kynnum mínum af landi og fólki í Vestur-Skaftafells- sýslu á meira en fimmtíu ára tímabili. Bókin nær yfir alla sýsluna. Bæði eru þar minja- og minningarþættir um sögustaði, fólk og svo ágrip af minni eigin sögu sem safnara,“ segir Þórður. Þeir menn og konur sem koma við sögu í bók Þórðar er fólk sem hann kynntist í gegnum starf sitt við söfn- un hluta fyrir Byggðasafnið í Skógum. Söfnun hans byrjaði snemma. „Ég var um fermingaraldur þegar ég byrjaði að safna gömlum hlutum og þá í fyrstu fyrir sjálfan mig. Síðar byrjaði ég að safna fyrir samfélagið, fyrir Rangár- vallasýslu árið 1946 og Vestur-Skafta- fellssýsla bættist við árið 1952 þann- ig að safnið er sameign Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga.“ Með því fyrsta sem Þórður safnaði voru hlutir sem bændur í nágrenni hans voru að leggja til hliðar. „Bænd- urnir voru að leggja hin gömlu atvinnutæki á hilluna sem hafði verið bjargast við um aldaraðir og það voru þau sem ég var að sníkja. Sum af þess- um tækjum voru þá þegar orðin mjög sjaldséð. Það voru algjör tímamót um miðja 20. öldina, ný menning var að nema land og það lá ekkert annað fyrir öllum þessum gömlu tækjum en að hverfa.“ Byggðasafnið á Skógum er fjölsótt- asta safn landsins utan Reykjavíkur í dag, með yfir 40.000 gesti á ári. „Safn- ið er bæði sjóminja- og landbúnaðar- safn sem og listiðnaðarsafn þar sem það hýsir mikið af merkilegum hlut- um bæðir úr trésmíði og málmsmíði og hannyrðum kvenna,“ segir Þórður. Fólkið í Skaftafellssýslu, sem Þórð- ur hafði kynni af og reifar í bók sinni, segir safnvörðurinn hafa verið afskap- lega þægilegt, gestrisið, yfirlætislaust og velviljað. „Mörg heimili voru þar svo framúrskarandi gestrisin að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Bjuggu veisluborð hversdagsfólki sem kom í heimsókn. Og allir virtust hafa góðan skilning á þessu erindi mínu. Ég hygg að menn hafi sumir talið í byrjun að þetta væri einhver andleg truflun í mér þegar ég byrjaði að safna göml- um hlutum en skilningur fólks virt- ist fljótlega vakna fyrir því að þetta væri gott verk að vinna fyrir framtíð- ina – að bjarga minjum hinnar gömlu þjóðmenningar á safn sem allir ættu aðgang að.“ Þórður ætlar ekki að efna til veislu á afmælisdaginn, verður að heiman og segist heldur vilja láta lítið fara fyrir sér. „Það er einhver ósjálfráð hvöt sem hefur stjórnað lífi mínu og hvatt mig til starfa á þessu sviði og ég tel að það hafi verið af hinu góða. Ef ég hefði ekki gert það held ég að enginn hefði gert það.“ Þórður segir starf sitt hafa gefið sér hamingju upp á hvern einasta dag. „Umgengni við þessa gömlu hluti og umgengi við fólk hefur verið mín lífsfylling. Ég þakka guði fyrir hvern góðan dag sem hann gefur mér. Ei fyrir dagsmorgni komandi kvíð.“ juliam@frettabladid.is ÞÓRÐUR TÓMASSON SAFNVÖRÐUR BYGGÐASAFNSINS Í SKÓGUM: ER NÍRÆÐUR Söfnunin hófst um fermingu FRUMKVÖÐULL Í SAFNSTARFINU „Ég hygg að menn hafi sumir talið í byrjun að þetta væri ein- hver andleg truflun í mér þegar ég byrjaði að safna gömlum hlutum en skilningur fólks virtist fljótlega vakna fyrir því að þetta væri gott verk að vinna fyrir framtíðina – að bjarga minjum hinnar gömlu þjóðmenningar á safn sem allir ættu aðgang að,“ segir Þórður Tómasson, safnvörður Byggðasafnsins í Skógum. MYND/ÚR EINKASAFNI Á þessum degi árið 1988 varð uppi fótur og fit í búðum íslensku sendinefndarinnar í Eurovison-söngvakeppn- inni það árið þegar söngvari íslenska Eurovision-lagsins, Stefán Hilmarsson, fékk svæsna hálsbólgu. Aðeins tveir dagar voru þá í lokakvöldið og Stefáni var því fyrirskipað að halda sig innandyra fram að keppninni, ekki syngja nema á þeim tveimur æfingum sem eftir voru og almennt ekki mæla orð frá munni nema brýna nauðsyn krefði. Stefán sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann væri þó viss um að hann myndi hafa það af að syngja en talsmaður frá sjónvarpinu sagði að ef svo ólíklega vildi til að Stefán gæti ekki sungið myndi Ísland falla frá þátttöku í keppninni. Fleiri Íslendingar sem voru í för með Eurovison- hópnum veiktust af téðri hálsbólgu. Þeirra á meðal kraftajötuninn Jón Páll Sigmarsson og þáttagerðarmaðurinn Hermann Gunnarsson. Sverrir Stormsker var höfundur lagins sem Stefán söng í keppninni, sem kallaðist Þú og þeir. Lagið hafnaði í 16. sæti. ÞETTA GERÐIST: 28. APRÍL 1989 Eurovison-söngvari með hálsbólgu PENÉLOPE CRUZ leikkona er 37 ára. „Ég kann vel við að leika hlutverk sem gera mig óþekkjanlega.“ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Eva Pálmadóttir Greniteig 10, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi laugardaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 29. apríl kl. 14.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlévangi fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Þórlína Ólafsdóttir Vilhjálmur Kr. Eyjólfsson Jóhannes Ólafsson Rósa Björk Guðmundsdóttir Pálmi Ólafsson Jóhanna Malena Karlsdóttir Ólafur Ólafsson Rosalia Novanti Soliwoa Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona, móðir, amma og langamma, Sunna Karlsdóttir frá Vestmannaeyjum, til heimilis að Æsufelli 4, Reykjavík, lést að heimili sínu þriðjudaginn 26. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Andri Valur Hrólfsson Ívar Andrason Sigrún Guðnadóttir Ólafur Darri Andrason Kristjana Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær frænka okkar, Maja J. Berg. Jónsson lést 19. apríl síðastliðinn. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Ásbjörn Haukur Kristjánsson Kjartansgötu 19, Borgarnesi, andaðist á heimili sínu að morgni þriðjudagsins 26. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Kristín Stefánsdóttir Dóra Sigríður Gísladóttir Jakob Guðmundsson Páll Aðalsteinn Svansson Margrét Skúladóttir Svanhildur Björk Svansdóttir Sigurður Arilíusson Anna Kristín Svansdóttir Gísli Már Kristjánsson og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Kristján Sigurbjarnarson verkfræðingur, Leirutanga 19, Mosfellsbæ, lést sunnudaginn 24. apríl á heimili sínu. Ólöf S. Valdimarsdóttir Áslaug Kristjánsdóttir Valdimar Kristjánsson Anna Magdalena Helgadóttir Áslaug Kristjánsdóttir Thor Thors Katrín Kristjánsdóttir Peter Gadermeier og afabörn. AFMÆLI JAY LENO þáttastjórn- andi er 61 árs í dag. JESSICA ALBA leik- kona er 30 ára í dag. Merkisatburðir 1819 Konungur fyrirskipar að tugthúsið í Reykjavík verði emb- ættisbústaður stiftamtmanns. 1945 Einræðisherrann Benito Mussolini er tekinn af lífi ásamt hjákonu sinni, Clarettu Petacci, og nokkrum fylgdarmönn- um. 1965 Fimmtíu ára leikafmælis Haraldar Björnssonar er minnst hjá Leikfélagi Reykjavíkur með sýningu á Ævintýri á gönguför. 1969 Charles de Gaulle segir af sér forsetaembætti Í Frakklandi og Georges Pompidou tekur við. 1993 Alþingi samþykkir aukaaðild landsins að Vestur-Evrópu- sambandinu. 2007 AFL Starfsgreinafélagið er myndað með sameiningu þriggja stéttarfélaga á Austurlandi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.