Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 29
GRUNNNÁM
MEISTARANÁM
DOKTORSNÁM
MEISTARANÁM
Alþjóðaviðskipti
Ákvarðanaverkfræði
Byggingarverkfræði
Framkvæmdastjórnun
Fjárfestingarstjórnun
Fjármálaverkfræði
Fjármál fyrirtækja
Heilsuþjálfun og kennsla
Lögfræði*
Heilbrigðisverkfræði
Hugbúnaðarverkfræði
Íþróttavísindi og þjálfun
Lífupplýsingafræði
MBA
OBTM
Orkuverkfræði
GRUNNNÁM
Byggingafræði
Íþróttafræði
Lögfræði
Sálfræði
Tæknifræði
Tölvunarfræði
Verkfræði
Viðskiptafræði
Diplómanám í iðnfræði
Diplómanám í kerfisfræði
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ
* Umsóknarfrestur er til 30. apríl
Rafmagnsverkfræði
Reikningshald og endurskoðun
Rekstrarverkfræði
Skipulagsfræði
og samgöngur
Stjórnunarreikningsskil
og viðskiptafærni
Tölvunarfræði
Vélaverkfræði
DOKTORSNÁM
Lögfræði
Tölvunarfræði
Verk- og tæknivísindi
Viðskiptafræði
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011 • KYNNING
Háskólinn í Reykjavík hefur
markað sér sérstöðu á sviðum
tækni, viðskipta og laga.
Þaðan útskrifast til að mynda
tveir af hverjum þremur í
tæknigreinum á Íslandi.
„Okkar hlutverk er að skapa og
miðla þekkingu til að efla sam-
keppnishæfni og lífsgæði,“ segir
Ari K. Jónsson, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, en skólinn hefur
öðlast sterkan sess í íslensku há-
skólasamfélagi á þeim þrettán
árum sem hann hefur starfað.
„Við höfum afmarkað ákveðin
svið og einbeitum okkur að tækni,
viðskiptum og lögum,“ upplýsir
Ari og tekur fram að HR sé með
afar sterka stöðu á þeim sviðum.
Nefna megi að skólinn útskrifi
tvo af hverjum þremur í tækni-
greinum á landinu og helming
allra með viðskiptagráður. „Þá
skiptir ekki síður máli að útskrif-
uðum nemendum okkar gengur
vel að fá vinnu og komast í fram-
haldsnám, enda höfum við, til við-
bótar við áherslu á sterkt bóklegt
nám, einsett okkur að nýta raun-
veruleg verkefni til að styrkja
þekkingu og þjálfun nemenda
og undirbúið þá þannig vel fyrir
þátttöku í atvinnulífinu,“ segir
Ari. Hann segir tengslin við at-
vinnulífið mjög mikilvæg.
„Við fáum til okkar kennara úr
atvinnulífinu og leggjum áherslu
á raunhæf verkefni úr atvinnulíf-
inu. Þannig skapast sterk tengsl
milli skólans og atvinnulífs-
ins sem kemur nemendum mjög
til góða því þeir fá tækifæri til
að skapa sér eigin tengsl við at-
vinnulífið,“ segir Ari.
Í HR er einnig lögð áhersla á
þverfaglega þekkingu, alþjóðlegt
umhverfi og ekki síst nýsköpun.
„Við viljum að nemendur kynnist
öðrum greinum, siðum og þekk-
ingu og læri að skapa nýja þekk-
ingu og koma henni á framfæri.“
Ari segir stöðu skólans mjög
góða í dag. Skólinn sé í jafnvægi
með um 3000 nemendur og búi
yfir einstakri aðstöðu til kennslu
og rannsókna í Nauthólsvíkinni.
„Við höfum náð mjög góðum ár-
angri í kennslu en ekki síður í
rannsóknum,“ segir Ari og telur
að það komi fólki stundum á óvart
að HR sé fremstur í rannsóknum
á sínum sviðum á Íslandi.
Ari telur lykilinn að góðum ár-
angri skólans felast í nokkrum
atriðum. „Við leggjum áherslu
á gæði í okkar starfi sem felast
ekki aðeins í því að gera kröfur
til nemenda heldur einnig í því að
allir leggi sig fram bæði kennar-
ar og starfsfólk. Þannig sköpum
við nemendum þá aðstöðu og veit-
um þeim þann stuðning sem þeir
þurfa til að þeir geti sinnt sínu
námi sem allra best,“ segir Ari
og telur framtíðina bjarta. „Við
erum að komast í gegnum niður-
skurðarskafl og stöndum sterk
með góða aðstöðu og skýra stefnu
til framtíðar. Við ætlum að halda
áfram að byggja upp sterkan há-
skóla á sviðum tækni, viðskipta
og laga hér í Nauthólsvíkinni..“
Stærsti tækni- og
viðskiptaháskóli Íslands
„Við leggjum áherslu á gæði sem felast
ekki aðeins í því að gera kröfur til
nemenda heldur einnig í því að allir
leggi sig fram, bæði kennarar og starfs-
fólk. Við reynum að skapa nemendum
það umhverfi, aðstöðu og hjálp sem
þarf til að þeir geti sinnt sínu námi sem
allra best,“ segir Ari.
MYND/ANTON
● STAÐREYNDIR UM HR
■ Nemendur við Háskólann í
Reykjavík eru um 3.000
■ Kjarnasvið HR eru tækni, við-
skipti og lög.
■ Boðið er upp á grunnnám,
meistaranám og doktorsnám
í öllum deildum skólans. Í
boði eru um 60 námsbrautir.
■ Hægt er að stunda nám
á frumgreinasviði sem er
undanfari háskólanáms.
■ HR útskrifar í dag tvo af
hverjum þremur sem ljúka
tæknimenntun á háskólastigi
og helming allra þeirra sem
ljúka viðskiptamenntun á
háskólastigi.
■ Háskólinn í Reykjavík býður
tæplega 700 námskeið á ári;
rúmlega 500 í grunnnámi og
u.þ.b. 160 á meistarastigi með
þarfir nemenda og atvinnu-
lífsins í huga.
■ Háskólinn í Reykjavík er
þekkingarsamfélag þar sem
lögð er rík áhersla á góða og
persónulega þjónustu við
nemendur.
■ Við Háskólann í Reykjavík eru
starfræktar 16 rannsóknar-
stofnanir.
■ Háskólinn í Reykjavík er stað-
settur í Nauthólsvík í nýrri og
glæsilegri 30.000 fermetra
háskólabyggingu.
■ Umsóknarfrestur um nám í
HR er til 5. júní.