Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 30
28. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● skólar & námskeið SÍÐASTI SKILADAGUR TILNEFNINGA Síðasti skiladagur til- nefninga til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla er í dag. Allir sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum sem hafa stuðlað að jákvæðu sam- starfi heimila, skóla og nærsamfélagsins, eru hvattir til að senda inn til- nefningu. Hægt er að senda inn tilnefningar á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað hér á heimasíðu samtakanna www.heimiliogskoli.is. Verðlaunin verða veitt í sextánda sinn í Þjóðmenningarhúsinu 24. maí. Frá verðlaunaafhendingu á síðasta ári. Listdansskóli Íslands var stofn- aður árið 1952. Við skólann hafa alla tíð starfað úrvalskennarar og er ákveðið mat lagt til grundvall- ar inntöku nemenda sem fram fer að vori og hausti. Rafræn skráning fyrir veturinn 2011 til 2012 er nú í fullum gangi og fara inntökuprófin fram laugardaginn 30. apríl næst- komandi. Sjá nánari upplýsingar á www.listdans.is. Í Listdansskóla Íslands fer fram öflug og metnaðarfull dans- kennsla þar sem gæði, skilningur, þekking og fagmennska eru lykil- atriði. Námið í Listdansskólan- um einkennist fyrst og fremst af mikilli og góðri tæknivinnu. Kröf- ur eru gerðar um aga og ástund- un. Jafnframt er lögð áhersla á að í skólanum ríki gott andrúmsloft þar sem nemendum geti liðið vel. Listdansnámi skólans er skipt í tíu samliggjandi stig: sjö stig á grunn- skólastigi, 9 til 15 ára, og þrjú stig á framhaldskólastigi, 16 ára og upp úr. Listdansskóli Íslands hefur það að meginmarkmiði að mennta framtíðarlistdansara og undirbúa nemendur fyrir nám á háskóla- stigi. En það er einnig markmið skólans að veita þeim nemendum sem stunda námið sér til ánægju, framúrskarandi kennslu og þjálf- un og veita þeim innsýn í aðra framtíðarmöguleika tengda dans- inum. Listdansskóli Íslands hefur sýnt fram á að hann hefur um ára- bil byggt upp hæfileikaríka og sterka atvinnudansara. Nemend- ur hafa sýnt framúrskarandi ár- angur hér á landi í undankeppni í klassískum sólóum fyrir nor- rænu keppnina Stora Daldansen sem haldin er árlega í Svíþjóð og hafa jafnframt aðrir náð einstak- lega góðum árangri í keppninni sjálfri. Nemendur úr Listdans- skólanum hafa fengið inngöngu í virta skóla eins og Juilliard í New York, P.A.R.T.S Í Brussel, sænska ballettskólann og víðar. Enn aðrir hafa farið beint í atvinnumennsk- una hjá Íslenska dansflokknum, IT DANZA, Scapino, Gautaborg- arballettinum, Hanover-ballett- flokknum og víðar. Margir hafa unnið sem sóló- og aðaldansarar við ýmsa dansflokka bæði í Evr- ópu, Asíu og í Bandaríkjunum. Þá gerðu nemendur Listdansskólans mikla lukku á Keðju í Kuopio sum- arið 2009 og hlutu þeir styrk frá Finnlandi til að sækja hátíðina í Kuopio 2010. Listdansskóli Íslands setur upp þrjár nemendasýningar á ári í at- vinnuleikhúsum, bæði á haustönn og vorönn. Með því að sýna fyrir áhorfendur öðlast nemendur mik- ilvæga reynslu í því að koma fram og fá að njóta sín á stóru sviði. Nemendasýningar Listdansskól- ans hafa verið einstaklega metn- aðarfullar og glæsilegar og er það gleðiefni að samvinna við ís- lensk tónskáld og hljóðfæraleikara hefur aukist síðustu ár. Þá hefur samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands eflst enn frekar og verða nemendur Listdansskólans með á jóla- og vortónleikum sveitarinnar í Hörpu 2011-2012. Listdansskóli Íslands mun setja upp veglega af- mælissýningu árið 2012 í tilefni þess að 60 ár eru frá stofnun hans. Listdansskóli Íslands er í fararbroddi í listdansnámi Úr Gæsamömmusvítu. Atriði yngstu nemendanna úr vorsýningu Listdansskólans 2011 í Þjóðleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Löng seta yfir kennslubókum getur tekið sinn toll. Til að ná sem bestum árangri við próflesturinn þarf að fara vel með sig og hugsa um líkamann. Hollt mataræði er nauðsynlegt alla daga en þó sérstaklega þegar líkaminn er undir álagi. Heilinn þarf omega-3 fitusýrur til að starfa og fiskur er ríkur af þeim. Borðaðu því fisk í hádeginu og taktu lýsi með morgunmatnum. Drekktu vatn. Oft er talað um að líkaminn þurfi einn og hálfan lítra af vatni á dag til að starfa rétt. Einhverjar rannsóknir hafa þó sýnt að það sé ríflega áætlað, nóg sé að drekka þegar þú finnur til þorsta. Gleymdu bara ekki að fá þér vatnsglas öðru hvoru við lesturinn. Svefn er mikilvægur svo að líkaminn virki á fullum styrk. Of lítill svefn getur haft áhrif á skammtímaminnið, þannig að langar vökur fara ekki saman við próf- lestur. Svefnþörf fólks er einstaklingsbundin en meðal svefnþörf fullorðinna er sjö og hálfur tími. Gættu þess að fá minnst sex tíma svefn og farðu í háttinn fyrir miðnætti. Andoxunarefni holl fyrir heilann. Litríkir ávextir og grænmeti eru rík af andoxunarefnum. Hafðu jarðarber, bláber, mangó eða gulrætur við höndina sem nasl. HOLLRÁÐ VIÐ PRÓFLESTUR Súrefni er líkamanum nauðsynlegt. Ef veðrið er gott er tilvalið að leggjast út í lestur. Gríptu með þér teppi eða svefnpoka og lestu úti í sólinni. Ef veðrið býður ekki upp á að lesa úti undir berum himni skaltu tjalda. Þar sem ferðamannastraumurinn er ekki enn hafinn, ættirðu að fá gott næði á tjaldstæðum landsins. Amínósýran theanín í tei bætir athygli og einbeitni, þannig að fjórir bollar af tei á dag hjálpa til við próflesturinn. Tuttugu mínútum eftir að theaníns er neytt vex magn þess í blóðinu og áhrifin vara í þrjá til fjóra tíma. Nánar má lesa um áhrif theaníns í grein eftir Ævar Jóhannesson á heilsu- hringurinn.is Kaffi eykur einnig einbeitinguna tímabundið en of mikil kaffidrykkja eykur streitu og getur truflað svefn. Takmarkaðu því kaffidrykkjuna við tvo til þrjá kaffibolla á dag. Kaffi er líka vatnslosandi, þannig að gott ráð er að drekka alltaf eitt vatnsglas með hverjum bolla til að halda vatnsbúskap líkamans í jafnvægi. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462 og Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is s. 512 5447. Inntökupróf fara fram: laugardaginn 30. apríl 2011 Grunnskóladeild árgangar 2000 til 2002 (9 til 11 ára) milli klukkan 11:00 og 13:00 Framhaldsdeild árgangur 1995 og eldri, milli klukkan 14:00 og 16:00 Rafræn skráning á listdans.is Farsæl starfsemi í 60 ár Skólaárið 2011–2012 Mynd: Valgarður Gíslason Þekking Reynsla Fagmennska Gæði Úrvalskennarar í klassískum og nútíma listdansi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.