Fréttablaðið - 28.04.2011, Page 33
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011
Vel ígrundað námsval sem byggir
á áhuga, réttum upplýsingum og
skilningi getur margfaldað ávinn-
ing námsmannsins af námi sínu.
Hjá Endurmenntun Háskóla Ís-
lands starfar Kristín Birna Jónas-
dóttir, náms- og starfsráðgjafi, og
geta áhugasamir pantað viðtal hjá
henni þar sem hún veitir endur-
gjöf á vangaveltur varðandi nám.
Náms- og starfsráðgjafi veit-
ir einnig upplýsingar um náms-
möguleika, forkröfur, uppbygg-
ingu náms, væntanlegan afrakst-
ur þess og fleira.
Öllum sem hefja nám hjá End-
urmenntun er boðið á námstækni-
námskeið hjá Kristínu Birnu í
upphafi misseris þeim að kostn-
aðarlausu. Meðan á náminu stend-
ur er jafnframt hægt að leita til
hennar varðandi bætt vinnubrögð
í námi og fleira er lýtur að náms-
tækni, tímastjórnun, samskiptum
og skipulagningu í hópastarfi og
stjórnun prófkvíða. Hægt er að
hafa samband við Kristínu Birnu
á netfanginu kristind@hi.is eða í
síma 525 5296.
Námsráðgjöf við
Endurmenntun HÍ
Kristín Birna Jónasdóttir, námsráðgjafi
Endurmenntunar Háskóla Íslands.
SKAPAÐU ÞÍNA
EIGIN FRAMTÍÐ
TAKTU SKREFIÐ
Námsráðgjöf og upplýsingar:
sími 525 4444 endurmenntun.is
- umsóknarfrestur til 9. september
LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI
GÆÐASTJÓRNUN
FRAMKVÆMDAFERLI MANNVIRKJAGERÐAR
– fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör
VERKEFNASTJÓRNUN – LEIÐTOGAÞJÁLFUN
HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ
- Eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám
- Tveggja ára nám fyrir sálfræðinga og geðlækna
FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ - NÁM Á MEISTARASTIGI
NÁM TIL LÖGGILDDINGAR FASTEIGNA-,
FYRIRTÆKJA OG SKIPASALA
REKSTUR, STJÓRNUN OG MARKAÐSSETNING
SMÁFYRIRTÆKJA – MARKVISS LEIÐ
Einnig í
fjarnámi
Fjölskyldumeðferð er
nýtt diplómanám við
Endurmenntun Háskóla
Íslands sem hægt er að
ljúka með mastersprófi
frá félagsráðgjafadeild
HÍ. Kennslustjóri er Helga
Þórðardóttir.
„Fyrsti hópurinn er að útskrif-
ast í vor með diplóma í fjölskyldu-
meðferð og stór hluti hans heldur
áfram og tekur mastersritgerðina.
Þetta er þverfaglegt nám fyrir þá
sem vinna með fólk,“ segir Helga
Þórðardóttir, félagsráðgjafi og
fjölskylduþerapisti. Hún segir
vaxandi áherslu lagða á það í þjóð-
félaginu að styrkja aðstandendur
þeirra sem stríði við erfiðleika á
borð við alvarleg veikindi, enda
hafi þeir áhrif á alla í fjölskyld-
unni.
Helga segir hið nýja nám byggt
á Evrópustaðli, því geti þeir sem
hafi próf í því upp á vasann, sótt
um vinnu hvar sem er í álfunni.
En hvaða grunn eiga þeir að hafa
þegar þeir byrja? „Undirstaðan er
BA eða BS á félags- og heilbrigðis-
sviði. Þeir sem sækja um þurfa að
hafa tveggja til þriggja ára starfs-
reynslu og vera í vinnu til að geta
nýtt teoríuna þar. Þeir verða því
að fá leyfi frá vinnuveitandanum
til að geta farið í vikulangar náms-
lotur þrisvar á hverri önn. Fyrir
utan að praktisera í vinnunni það
sem þeir læra í skólanum, eru
nemendurnir í handleiðsluhópi og
leshópi. Vettvangsferðir eru líka á
dagskrá þannig að náminu fylgir
mikil vinna meðan á því stendur.“
Það er tuttugu og fjögurra
manna hópur sem er að útskrif-
ast í vor að sögn Helgu og dreif-
ist hann inn í heilbrigðiskerf-
ið, félagslega kerfið, skólakerf-
ið og kirkjuna. „Þá kemur þessi
nýja sýn inn og áherslur um hvað
fjölskyldan skiptir miklu máli og
styrking hennar,“ segir Helga.
„Það á við á öllum þessum svið-
um.“
Sem dæmi nefnir Helga að
sjálf vinni hún á átröskunardeild
innan geðdeildar Landspítalans.
Þar komi aðallega ungar stúlkur í
meðferð inn á dagdeild eða göngu-
deild. „Við sjáum hverju það skilar
í þeim málaflokki að fá fjölskyld-
una inn í okkar vinnu. Hún kemur
í meðferð og við vinnum saman,
hvort sem um er að ræða maka,
foreldra eða systkini.“
Opið málþing verður í húsnæði
Endurmenntunar þann 6. maí
milli klukkan 13 og 16. Þar gerir
útskriftarhópurinn grein fyrir
verkefnum sem hann hefur verið
að vinna. „Þá er fólk velkomið til
okkar að hlusta,“ segir Helga. Hún
tekur fram að umsóknarfrestur
um námið sé til 30. maí og allir
sem sæki um séu boðaðir í ein-
staklingsviðtal. Upplýsingar eru
á www.endurmenntun.is.
Nám fyrir fólk sem
vinnur með fólk
„Fólk þarf að vera í vinnu með náminu til að fá þar efnivið í sín verkefni,“ segir Helga. MYND/VILHELM