Fréttablaðið - 28.04.2011, Qupperneq 34
28. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið
Náðu utan
um verkefnin
Kynning á MPM-námi við Háskóla Íslands
fimmtudaginn 5. maí í Námu, við Endurmenntun HÍ kl. 12–13
Hvað er MPM?
MPM stendur fyrir Master of Project
Management eða meistaranám í
verkefnastjórnun.
Mjög hagnýtt stjórnunarnám
samhliða starfi.
Nemendur hljóta alþjóðlega vottun
í verkefnastjórnun sem gefin er
út af Verkefnastjórnunarfélagi
Íslands í umboði alþjóðasamtaka
verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
Markmið MPM-námsins eru að:
- mennta og þjálfa nemendur í að takast á við margvísleg viðfangsefni
með aðferðum verkefnastjórnunar.
- mennta og þjálfa nemendur í sjálfstjórn, samskiptum, forystu,
teymisvinnu og eflingu liðsheilda.
- mennta og þjálfa nemendur til leiðandi starfa á fjölbreytilegum
starfsvettvangi á Íslandi og erlendis.
- undirbúa nemendur undir alþjóðlegar vottanir (IPMA) á þekkingu
sinni, reynslu og færni.
- viðhalda og efla þekkingu á verkefnastjórnun og skapa nýja þekkingu
á sviðinu.
- samþætta innsýn úr hug-, félags-, viðskipta- og verkvísindum með
hagnýtum hætti.
- þjálfa framtíðarleiðtoga sem eru færir um að gera það sem gera þarf.
Fyrir hverja?
Meistaranám í verkefnastjórnun er opið þeim sem hafa lokið BA/BS/B.ed.
eða sambærilegu námi.
Nemendur skulu hafa minnst 3 ára reynslu úr atvinnulífinu og æskilegt er
að þeir hafi umtalsverða reynslu af því að starfa í verkefnum.
www.mpm.is
PI
PA
R
\T
B
W
A
-
S
ÍA
1
1
1
1
0
5
Kennarar í meistaranámi í verk-
efnastjónun (MPM) fylla flokk
fremstu kennimanna á sviði verk-
efnastjórnunar. Þeirra á meðal
eru eftirtaldir: Dr. Steve Epping-
er frá MIT, Dr. Mark Morgan frá
Stanford, Dr. Darren Dalcher frá
Middlesex University, Birgitta
Greger og Fabian Berg frá HLP
Management Consultants í Frank-
furt, Dr. Markus Zoller frá Zü-
rich, Dr. Ethne Swartz frá Fair-
laigh Dickinson University, Flor-
ence Kennedy frá Heriot-Watt í
Skotlandi, Dr. Morten Fangel fyrr-
um forseti International Project
Management Association (IPMA)
og Benjamin Lund frá Danmörku.
Erlendir kennarar
Florence Kennedy er meðal kennara í meistaranámi í verkefnastjórnun.
Meistaranám í verkefnastjórnun, MPM,
við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði-
og tölvunarfræðideild verkfræði- og
náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
hefur sannað gildi sitt. Útskrifaðir
nemendur þess vinna víðsvegar í
samfélaginu að því að bæta skipulag,
verkferla sem og vinnulag innan
fyrirtækja, félagasamfélaga, skóla,
stofnana og stjórnkerfisins.
Til að kynnast meistaranámi í verkefna-
stjórnun nánar var leitað til Dr. Hauks
Inga Jónassonar og Dr. Helga Þórs Inga-
sonar sem komu náminu á laggirnar og
stýra því.
Hvað er Meistaranám í verkefnastjórn-
un - MPM?
„Frómt frá sagt þá er Meistaranám í
verkefnastjórnun (MPM) eitt áhugaverð-
asta og hagnýtasta nám sem er í boði,“
segir Haukur og brosir. „Þetta eru stór orð
en sannleikurinn er sá að það sem kennt er
í náminu er nákvæmlega það sem íslenskt
samfélag — stofnanir þess, félög og fyrir-
tæki — þarfnast: Hugvit, siðvit og verks-
vit. Námið er áhugavert vegna þess að víða
er komið við sögu og nemendur fá að kynn-
ast mörgu af því sem best er vitað um skil-
virkni, hagsýni, gæði, stjórnun, sálræn
ferli, hópa og menningu.“
Helgi tekur við og segir námið vera
hagnýtt vegna þess að í því séu allir þess-
ir þættir settir í það samhengi að nemand-
inn eigi að geta gengið beint til verks. Stutt
sé við uppbyggingu á hvaða sviði sem er.
„Eftir að íslenskt samfélag hefur hlaupið
á vegg er gagnlegt að staldra við, endur-
meta stöðuna og byggja upp með ábyrgum
hætti. Þessu fylgja mögulega vaxtarverk-
ir, en þetta er það sem við leggjum okkur
fram um að kenna í náminu,“ bætir hann
við.
Hverjir ættu að sækja um meistaranám
í verkefnastjórnun?
„Við viljum helst fleyta rjómann og fá til
okkur hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk
með mikinn áhuga á því að byggja upp og
bæta á öllum sviðum. Það sem fólk fær út
úr náminu er þekking og reynsla sem nýt-
ist hvar sem er á jörðinni. Inntökukröf-
urnar eru BA, BS, Bed eða sambærilegt
nám. Þá viljum við að fólk sé ekki að koma
beint frá skólaborði heldur hafi reynslu
úr atvinnulífinu. Það er erfitt að kenna
stjórnun þeim sem aðeins þekkja til henn-
ar úr uppeldi sínu eða frá samstarfi kenn-
ara og nemenda. Mér sjálfum finnst mjög
gaman að kenna fólki sem hefur bakgrunn
í náttúruvísindum, tækni og verkfræði,“
segir Haukur.
Helgi tekur við og segir að sér finn-
ist mjög gaman að kenna fólki sem á bak-
grunn í menntun, listum og hugvísind-
um. „Ég held að okkur finnist báðum mjög
gefandi að kenna heilbrigðisstarfsfólki
og listafólki,“ segir hann. „Og mér sýnist
að samkennurum okkar finnist gaman að
kenna öllum,“ bætir Haukur við og hlær.
„En að öllu gríni slepptu og til að svara
spurningunni, þá ættu allir að sækja um
sem hafa áhuga, getu, vilja og þor til að
taka stakkaskiptum og læra eitthvað sem
er í senn mjög hagnýtt og gefandi.“
Vaxtarverkir og verkefnastjórnun á Íslandi
Haukur Ingi Jónasson og Helgi Þór Ingason komu meistaranámi í verkefnastjórnun, MPM, við iðnaðarverk-
fræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands á laggirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
● MPM MEISTARANÁM Í VERKEFNASTJÓRNUN er kennt á
íslensku, en þótt það miðist fyrst og fremst við íslenskar aðstæður miðast
kennslan við alþjóðleg hæfniviðmið í verkefnastjórn-
un sem gilda í Bandaríkjunum og víðar.
Þótt námið kallist meistaranám í verk-
efnastjórnun hefur það víðari skírskotun því
verkefna-
stjórnun
getur bæði
falið í sér
að einu stóru
verkefni sé
stjórnað, heilli
verkefnastofnun
eða nokkrum
verkefnum sam-
tímis. Sterk áhersla
á siðferðislega ábyrga
framvindu, sjálfbæra
þróun og virðingu fyrir lífi
og menningu er í náminu.