Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 46
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Í KVÖLD KLUKKAN ÁTTA tekur Norræna húsið á móti verðlaunarithöfundinum Carl Jóhan Jensen frá Færeyjum. Bjarni Bjarnason,
rithöfundur og þýðandi, mun ræða við Carl Jóhan um höfundarverk hans, en forlagið Uppheimar er með verk hans Sögur um djevulskap í
þýðingu. Söngkonan Dorothea Højgaard Dam mun einnig koma fram og flytja nokkur lög.
Morkinskinna kom nýver-
ið út í tveggja binda útgáfu
Íslenzkra fornrita. Ármann
Jakobsson hefur unnið
að útgáfu Morkinskinnu
undanfarin átta ár, síðustu
árin í félagi við Þórð Inga
Guðjónsson.
„Morkinskinna var ekki mikils
metin, menn hneigðust til að líta
á hana sem samsteypuhandrit
sem hefði ekki gildi í sjálfu sér,“
segir Ármann Jakobsson, dokt-
or í íslensku og dósent í íslensku-
og menningardeild við Háskóla
Íslands. Ármann hefur undan-
farin átta ár unnið að útgáfu rits-
ins, sem spannar sögu Noregskon-
unga frá því um 1030 þegar Ólafur
helgi féll og til ársins 1157 þegar
Eysteinn Haraldsson var höggv-
inn. „Morkinskinna hefur ekki
verið mikið rædd og mest af því
sem um ritið hefur verið skrifað er
á dönsku. En í tengslum við dokt-
orsvörn mína árið 2003 kom þessi
útgáfa til tals og hef ég unnið að
henni síðan, síðustu árin í félagi
við Þórð Inga Guðjónsson,“ segir
Ármann, en doktorsritgerð hans
fjallaði um Morkinskinnu og
var gefin út undir heitinu Stað-
ur í nýjum heimi: Konungssagan
Morkinskinna.
Ármann segir snemma hafa
komið í ljós að Morkinskinna
myndi spanna tvö bindi. Þeim
fylgir báðum ítarlegur inngang-
ur, auk þess sem ritið er skýrt vel.
„Markmiðið með ritröðinni Íslenzk
fornrit sem hóf göngu sína fyrir 83
árum var að gefa út það sem hét á
sínum tíma aðgengilegar útgáfur
af íslenskum fornritum, en eru
ekki síst ætlaðar fræðimönnum
og háskólastúdentum.“
Þekktustu hlutar Morkinskinnu
eru svonefndir Íslendingaþættir,
sem segja frá samskiptum Íslend-
inga við konunga. Nokkrir þeirra
hafa verið gefnir út, svo sem Auð-
unar þáttur vestfirska og Hreið-
ars þáttur heimska. Ármann segir
áhugavert hvernig þættirnir öðl-
ist nýtt samhengi þegar þeir séu
lesnir sem hluti af Morkinskinnu.
„Þeir veita talsverðar upplýsingar
um það sem er að gerast í sögunni
og maður öðlast annan skilning á
þeim. Þeir eiga mjög vel heima í
heildarfrásögninni en lengi hefur
verið deilt um hvort þeir séu útúr-
dúrar úr henni eða ekki. En mér
finnst erfitt að ræða það, þessar
sögur eru í eðli sínu bútasaumur.
Þetta er ekki verk þar sem sögu-
þráðurinn skapar heildina heldur
er það tíminn, staðurinn og pers-
ónurnar.“
Ármann mælir óhikað með lestri
Morkinskinnu en hann segir
skemmtigildi hennar hafa komið
á óvart þegar hann las hana fyrst.
Hún segi sögu konunganna en
hirðmenn komi talsvert við sögu
og þannig séu verk þeirra sett í
samhengi. „Þannig kynnist maður
konunginum, sér hvernig hann
virkar, hvort hann hefur verið
góður húsbóndi eða erfiður og í
raun öðlast maður meiri virðingu
fyrir konungunum með því að lesa
um ýmis vandamál sem koma upp
og hvernig þeir leysa þau.“
Einn þessara konunga er Sigurð-
ur Jórsalafari, en í Morkinskinnu
er ítarlegasta frásögnin af kross-
ferð hans sem finna má í handrit-
um. Ármann heldur fyrirlestur um
Sverri á rannsóknakvöldi Félags
íslenskra fræða í húsi Sögufélags-
ins í kvöld undir heitinu Oflátung-
ur á erlendri grundu: Jórsalaferð
Sigurðar konungs sem sjónarspil.
Ármann segir áhugavert hvernig
Sigurður virðist hafa notað ferðina
til að sýna sig og sjá aðra. „Hann
er að sanna með konunglegri hegð-
un sinni að hann sé jafningi hinna
konunganna sem þarna voru á
ferðinni. Það minnir okkur á að
Noregur var tiltölulega fátækt jað-
arland og ekkert sjálfgefið að Nor-
egskonungur væri jafnoki Mikla-
garðskeisara.“
sigridur@frettabladid.is
Morkinskinna kemur á óvart
ÁRMANN JAKOBSSON Mælir með morkinskinnu og segir skemmtigildi hennar koma
á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Ég man þig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Djöflastjarnan - kilja
Jo Nesbø
Milli trjánna - kilja
Gyrðir Elíasson
Mundu mig, ég man þig
kilja - Dorothy Koomson
Konan í búrinu - kilja
Jussi Adler Olsen
Á réttri hillu
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
20.04.11 - 26.04.11
Morð og möndlulykt
Camilla Läckberg
Handbók um íslensku
Jóhannes B. Sigtryggsson ritst.
Furðustrandir - kilja
Arnaldur Indriðason
Betri næring - betra líf
Kolbrún Björnsdóttir
íslenskar
kynjaverur
og furðudýr
Ferlegar ófreskjur!
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
EINNIG TIL
Á ENSKU
Loksins fáanleg aftur
Halldór Bjarki Arnarson
hornleikari heldur fram-
haldstónleika sína frá
Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar á laugar-
dag, 30. apríl, klukkan 20.
Tónleikarnir verða í sal
Tónskólans við Engjateig
1. Píanóleikari á tónleik-
unum er Örn Magnússon.
En með Halldóri Bjarka
leikur einnig strengja-
kvartett og hljómsveitin
Frjókorn.
Halldór hóf að læra á
franskt horn sjö ára gam-
all en kennari hans nú er
Joseph Ognibene.
Halldór leikur einnig á
píanó og hefur lagt stund
á orgelnám. Halldór fæst
einnig við tónsmíðar.
Halldór Bjarki leikur á horn
HALLDÓR BJARKI